Golf á Íslandi - 01.12.2010, Qupperneq 59
59GOLF Á ÍSLANDI •DESEMBER 2010
Hvað segja fRAMKVÆMDASTJÓRARNIR?
1 Það er nú ekkert sem var sérstaklega erf-
itt í sumar sem leið, það var mikið að
gera, vinnudagurinn langur, mikið var um að
vera í kringum mótahald sumarsins sem var við-
burðaríkt og skemmtilegt . Það er alltaf mjög
skemmtilegt að taka þátt í vinnu við Arctic Open
og Hjóna og parakeppnina okkar, nú svo var
klúbburinn okkar 75 ára á þessu herrans ári 2010
og það var mikið um að vera í sambandi við það.
Skemmtilegt sumar að baki.
2 Það sem stendur mér næst í starfi GA þá
varð öldungasveit GA Íslandsmeistarar í
sveitakeppni í ágúst.
3 Það er 16. braut á Jaðarsvelli.
4 Það sem við höfum þurft að leita til skrif-
stofu GSÍ með hefur alltaf verið vel leyst.
5 Með 50 milljónir væri unglinga- og afreks-
starfi klúbbsins borgið í góðan tíma og
myndi ég sjá fyrir mér að setja hluta af því fjár-
magni til uppbyggingar á æfngasvæði klúbbs-
ins bæði úti og inni, sem er undirstaða þess að
unglinga- og afreksstarf eflist og dafni.
1 Þetta er ekki erfitt starf. Það er skemmtilegt.
Skemmtilegast var allt það góða fólk sem
maður fær að hitta og kynnast.
2 Árangur unglinga Golfklúbbs Borgarness.
Þeir voru að gera það gott á liðnu sumri. Þar ber
helst að nefna árangur Bjarka Péturssonar en
hann varð Íslandsmeistari í höggleik, holukeppni,
stigameistari (15-16 ára) og klúbbmeistari GB.
Þá verð ég að nefna völlinn okkar, hann hefur
aldrei verið betri. Allir þeir sem heimsækja okkur
bera honum gott orð, er líklega að verða einn
heitasti völlur landsins. Þá verð ég að lokum að
segja í þessu svari: Góðir vellir á landsvísu, vel
heppnað landsmót, jákvæðir kylfingar og Ólafur
Þór Ágústsson.
3 Þriðja holan á Hamarsvelli.
4 Ég myndi vilja sjá meiri tengingu við klúbb-
ana á landsbyggðinni með einhverjum
hætti. Meira samband.
5 Borga niður skuldir, kaupa vélar og halda
áfram með framkvæmdir á vellinum o.fl.
Gunnar Jóhannsson
framkvæmdastjóri GS
Halla Sif Svavarsdóttir
framkvæmdastjóri GA
Jóhannes Ármannsson
framkvæmdastjóri GB
1 Kannski það erfiðasta í starfinu í sumar -
er það sem gerir það svo skemmtilegt en
það er fjölbreytileikinn sem því fylgir.
2 Langt golftímabil á Íslandi þetta árið
stendur örugglega upp úr. En einstaka
atvik mundi ég segja 58 höggin hjá Birgir Leifi
nú í sumar.
3 Önnur holan í Leirunni, einnig þykir mér
11. á Hvaleyri og 15. á Kiðjabergi flottar
golfholur.
4 Ég tel að Golfsambandið standi sig
ágætlega á flestum sviðum, en ef ég ætti
að taka eitthvað eitt fyrir, þá tel ég að það fari
of mikið púður í afreksstarf og ekki nógu mikið í
hinn almenna kylfing.
5 Byrja á því að endurnýja vökvunarkerfið
á vellinum. Síðan mundi nota afganginn í
endurnýjun á tækjakosti klúbbsins.
11. brautin á Hvaleyri.
Frá Hamarsvelli.