Golf á Íslandi - 01.12.2010, Page 60
60 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
Hvenær og af hverju lá leið þín út á golfvöll?
Vorið 2009, það var hvoru tveggja af forvitnis-
sökum og einnig til að auka á fjölbreytileikann í
daglegri hreyfingu. Ekki skemmdu áhugaverðar
umræður á vinnustað þar sem ég ræði daglega
við vinnufélaga sem eru ,,illa” smitaðir af þessari
góðlátlegu bakteríu.
Hvað heillaði þig við golfið?
Skemmtileg ögrun (nákvæmni/úthald/kraftur/
einbeiting), skemmtilegt sama hvernig maður
spilar, stórskemmtilegur félagsskapur og ekki má
gleyma útiverunni.
Morgunhanar hafa rekist á þig snemma í Leir-
unni?
Við félagarnir, ég og Guðmundur Jón Bjarnason
lærimeistari minn höfum undanfarin tvö sumur
mætt á völlinn þrisvar í viku um kl. 05:45 og spil-
um til kl. 07:20. Það er ekkert betra en að vera úti
í Leiru á þessum tíma, sólin að koma upp og oftast
stafalogn.
Hvað með forgjöfina?
Fyrsta sumarið fór ég úr 36 niður í 23, í sumar
vann ég mig niður í 17,3. Stefnan er sett á ca. 13,5 -
14 næsta sumar.
Áttu þinn uppáhalds golfvöll?
Þessi er auðveld, „Leiran comes second to none“.
Hefur gamli keppnis-sundmaðurinn keppt á golf-
vellinum?
Tók þátt í GS meistaramótinu í sumar og krækti í
þriðja sæti í 4. flokki. Stefni á það að keppa meira
næsta sumar.
Hvað finnst þér erfiðast í golfi?
Þetta er hugaríþrótt, maður verður að geta hamið
sig einstaka sinnum, haldið aftur af sér og spilað
rétt úr hlutunum.
Erfiðasta og auðveldasta kylfan?
Ég og pútterinn eigum eftir að ná töluvert betur
saman þó við eigum í innihaldsríku sambandi.
Driverinn hefur hlýtt mér frá byrjun.
Hver er þín skýring á því að golf sé orðin stærsta
almenningsíþrótt á Íslandi (16 ára og eldri)?
Vísa beinustu leið í svarið við spurningu 2 plús að
þessi íþrótt grípur mann með öðruvísi og vænt-
anlega skemmtilegri hætti en þær íþróttir sem ég
hef prufað í gegnum tíðina.
Draumahollið með þér?
Guðmundur Jón Bjarnason, Lee Westwood og Jack
Nicklaus.
G O L F nýir kylfingar Eðvarð Þór Eðvarðsson, sundþjálfari og kylfingur
Eðvarð Þór Eðvarðsson var um tíma
besti sundmaður Íslands og var m.a.
kjörinn Íþróttamaður ársins á Íslandi
1986. Eðvarð setti á sínum ferli mörg
Íslandsmet en einnig á hann að baki
Norðurlandamet, verðlaunasæti og
úrslitasæti á Evrópu- og Heimsmeist-
aramótum. Eðvarð Þór komst nýlega
í kynni við golfíþróttina og það var
ekki að sökum að spyrja. Hann tók
íþróttina með sama trompi og sund-
ið. Er mættur nánast fyrstur í Leir-
una flesta morgna og hefur heillast
af íþróttinni. Við lögðum fyrir hann
nokkrar spurningar til að forvitnast
aðeins meira um golfkappann Eðvarð.
Fátt betra en morgungolf
í sól og Leirulogni