Golf á Íslandi - 01.12.2010, Side 74
74 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
Nafn, aldur og heimili:
Sigurður Þorbjörn Ingimund-
arson, 44 ára og bý í
Reykjanesbæ
„Við opnum 18 holu golfvöll næsta haust, það er
á hreinu,“ segir Steinn en framkvæmdir hafa tafist
nokkuð vegna skorts á jarðefni í brautir. „Allar flatir
eru tilbúnar en við eigum ennþá eftir að sá í eina
braut. Það sem hefur tafið okkur er að við höfum
hvergi getað fengið nothæft jarðefni undanfarin tvö
ár,“ segir Steinn. „Það átti að byggja nýtt íbúðahverfi
hér fyrir ofan völlinn og þaðan áttum við að fá jarð-
efni en sökum kreppunnar varð ekkert af því,“ segir
Haukur „Þetta hefur orðið til þess að við höfum þurft
G O L F vellir
Golfklúbburinn Kjölur fullorðnast á
næsta ári og opnar 18 holu Hlíðavöll
v llir
Það ríkir mikil eftirvænting meðal meðlima Golfklúbbsins Kjalar í Mosfellsbæ eftir að
Hlíðavöllur verði loksins opnaður sem 18 holur. Fjórar nýjar golfholur verða teknar í
notkun á næsta ári og er það mikið fagnaðarefni fyrir Kjalarmenn og íslenska kylfinga.
Árið 2004 var hafist handa við að stækka völlinn í 18 holur. Sökum efnahagskreppunn-
ar var slegið úr hraða framkvæmda en árið 2008 opnuðu fimm nýjar holur og völlurinn
því 14 holur í dag. Nýi hluti vallarins er hannaður af Edwin Roald Rögnvaldssyni golfvall-
arhönnuði. Kjölur fagnar 30 ára afmæli sínu um þessar mundir og því var kátt á hjalla
þegar blaðamaður Golfs á Íslandi settist niður með þeim Hauki Hafsteinssyni, fram-
kvæmdastjóra GKj, og Steini G. Ólafssyni, vallarstjóra Hlíðavallar.
að breyta teikningum en erum engu að síður mjög
ánægðir. Við sjáum auðvitað eitt og eitt atriði hér og
þar sem mætti vera betra en þetta lítur mjög vel út.
Það sem gæti helst orðið til vandræða er að við náð-
um ekki að harpa nægjanlega jarðefnið og því leynist
nokkurt magn af stórgrýti í brautunum. Það fer mikill
tími og kostnaður við að fjærlægja þetta grjót og við
höfum örugglega fjarlægt yfir tonn af grjóti nú þeg-
ar,“ bætir vallarstjórinn við.
Fjölgun í 1000 meðlimi við stækkun
Með því að stækka völlinn í 18 holur opnast svigrúm
hjá Kili til að fjölga meðlimum. Í Kili í dag eru um 670
kylfingar en Haukur telur að hægt sé að fjölga kylf-
ingum um rúmlega 300 sem á eftir að stytta biðlista
kylfinga á höfuðborgarsvæðinu til muna.
„Það ríkir mikil eftirvænting í klúbbnum og sér-
staklega meðal meðlima. Með þessari stækkun mun-
um við geta bætt við okkur félögum og fjölgað allt
upp í 1000 meðlimi. Að stækka í 18 holur á einnig eftir
að umbylta rástímaskráningu hjá okkur. Við tóvkum
upp rafræna skráningu í sumar og það þótti heppn-
ast mjög vel,“ segir Haukur og Steinn bætir við: „Það
eru skemmtileg tímamót að nú skuli vera komið að
þessu, þrjátíu árum eftir að klúbburinn var stofnaður.
Stofnendur klúbbsins eru mjög kátir og eru að upplifa
langþráðan draum. Það er frábært að ráðamenn skuli
sýna þann skilning að leyfa byggingu 18 holu golf-
vallar inni í miðri borg. Að hafa golfvöll svona nærri
Nýju brautirnar eru flottar
og útsýnið glæsilegt.