Golf á Íslandi - 01.12.2010, Blaðsíða 75
75GOLF Á ÍSLANDI •DESEMBER 2010
byggð hefur gríðarlega jákvæð áhrif á unglingastarf
og hefur gert það að verkum að unglingastarfið hjá
okkur er með blómlegri hætti en víða annars staðar,“
segir Steinn en hvernig falla nýju holurnar inn í eldri
hluta vallarins?
„Þessar nýju holur eru gjörólíkar eldri hluta vallarins.
Bæði landslag og umhverfi er tvennt ólíkt og það
má segja að kylfingar gangi inn í annan heim,“ segir
Haukur „Einnig eru nýju flatir vallarins allar mun
stærri og eru útbúnar vatnsúðarakerfi af fullkomn-
ustu gerð. Við lögðum upp með völlinn þannig að
hann væri fyrir alla kylfinga. Með því að hafa stærri
flatir erum við að auðvelda lakari kylfingum að hitta
flötina í tilætluðum höggfjölda. Betri kylfingar nýta
því aðeins hluta flatanna meðan lakari kylfingar þurfa
jafnvel að glíma við 30 metra pútt,“ segir Steinn vall-
arstjóri.
Nýtt klúbbhús í biðstöðu
Kjalarmenn höfðu áformað að byggja nýtt klúbbhús
sem stæði í miðju vallarins en sökum kreppunnar
hefur þeim framkvæmdum verið slegið á frest um
sinn. Haukur segir það skipta klúbbinn miklu máli að
fá nýtt klúbbhús þegar fram líða stundir.
„Staðan er mjög óljós og við höfum ekkert í hendi.
Málið er í rauninni í biðstöðu. Í framtíðinni mun
koma nýtt og glæsilegt klúbbhús en allt annað er
óráðið fyrir utan staðsetningu. Nýtt klúbbhús verður
staðsett í miðju vallarins, nærri 4. teig. Það skiptir
okkur miklu máli að fá klúbbhús miðsvæðis á vell-
inum til að kylfingar geti komið inn eftir níu holur og
einnig myndi það hjálpa okkur hvað ræsingu varðar,“
segir Haukur en Kjalarmenn geta þó státað sig af
frábærri 540 fermetra vélaskemmu sem skartar
einnig skemmtilegum púttvelli á efri hæðinni. Kjal-
armenn munu svo geta æft stuttu járnahöggin á
flottu „pitch“-svæði sem stendur í skjóli við hlið véla-
skemmunnar.
„Við erum líklega með flottustu og bestu véla-
skemmu norðan Alpafjalla. Þetta er allavega besta
vélskemma sem íslenskur golfklúbbur hefur uppá að
bjóða þó tækin inni í henni mættu vera betri,“ segir
Steinn og hlær. „Húsið er allt upphitað og það mun-
ar mikið um það. Þetta sparar örugglega hundruð
þúsunda króna í viðhaldskostnað. Það er gríðarlega
gaman að vinna í svona aðstöðu og forréttindi að fá
að taka þátt í þessari uppbyggingu.“
Þeir kylfingar sem hafa leikið Hlíðavöll á undanförn-
um árum hafa vafalaust tekið eftir því að göngustíg-
ar vallarins eru nokkuð sérstæðir. Göngustígarnir eru
gervigraslagðir og segir Steinn að sú framkvæmd
hafi verið einkar vel heppnuð. „Við fengum gervigras
gefins frá Fylkismönnum sem voru að skipta og
kostnaðurinn hjá okkur var því aðeins í formi flutn-
ings. Í stuttu máli algjör snilld og við höfum fengið
mjög jákvæð viðbrögð frá okkar meðlimum.“
Hlíðavöllur tilbúinn fyrir Íslandsmót 2020
Það er draumur hvers íslensks golfklúbbs að fá að
halda stærstu golfmót ársins með tilheyrandi um-
gjörð og fjölmiðlaathygli. Haukur telur að klúbburinn
verði ekki tilbúinn í fyrsta lagi fyrr en eftir fimm ár til
að taka að sér mótahald á íslensku mótaröðinni og
búast má við lengri bið eftir að Kjalarmenn taki að
sér Íslandsmótið í höggleik.
„Það kemur auðvitað að því einn daginn að við mun-
um sækjast eftir stórum mótum. Völlurinn verður
líklega ekki tilbúinn fyrir stór mót fyrr en í fyrsta lagi
eftir fimm ár,“ segir Haukur. „GSÍ þarf að passa sig á
því að fara ekki með stóru mótin sín á of hráa velli ef
svo má að orði komast. Við munum vafalaust fá ein-
hver mót þegar völlurinn hefur náð að vaxa og dafna
en ég held að það sé ekki keppikefli GKj að halda hér
Íslandsmót í nánustu framtíð. Við verðum tilbúnir
þegar klúbburinn verður fertugur, árið 2020,“ segir
Steinn að lokum.
„Það átti að byggja nýtt
íbúðahverfi hér fyrir ofan völl-
inn og þaðan áttum við að fá
jarðefni en sökum kreppunn-
ar varð ekkert af því“