Golf á Íslandi - 01.12.2010, Síða 86

Golf á Íslandi - 01.12.2010, Síða 86
86 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is Sara Margrét Hinriksdóttir úr Golfklúbbnum Keili er ungur og upprennandi kylfingur. Sara er 14 ára gömul og lék vel á Arion-banka unglingamótaröð- inni í sumar þar sem hún varð í öðru sæti stigalistans í stelpuflokki. Hún bar sigur úr býtum á öðru móti sumarsins sem fram fór á Korpúlfsstaðavelli og var alltaf í verðlaunasæti á mótaröðinni. Sara Margrét varð tvisvar í öðru sæti og þrisvar í þriðja sæti í sum- ar og lækkaði forgjöfina einnig töluvert. Birgir Leifur og McIlroy í uppáhaldi Staðreyndir Aldur: 14 ára Nafn: Sara Margrét Hinriksdóttir Klúbbur: Keilir Forgjöf: 15,2 Golfpokinn: MD kylfur, Odyssey pútter, Gary Player 56 og 52 gráður Golfskór: Nike og Ecco Golfhanski: Callaway Golfbolti: Callaway og Titelest Uppáhalds matur: Purusteik Uppáhalds drykkur: Fanta Lemon Uppáhalds kylfa? 3-tré Ég hlusta á: Fm957 Besta skor: 83 högg á Hvaleyrarvelli Kaymer eða McIlroy? Mcllroy Besta vefsíðan: Facebook Besta blaðið: Golf á Íslandi Besta bókin: Ef þú bara vissir Besta bíómyndin: Engin sérstök bara allt nema hryllingsmyndir! Hvað óttastu mest? Eðlur Hver er ástæðan fyrir að þú hófst að leika golf? Ég byrjaði í golfi eftir að pabbi skráði mig á tvö golfnámskeið. Hvað er það sem heillar þig við golf? Það er gaman að reyna að gera betur. Útiveran og félagsskap- urinn heillar einnig og alltaf gaman að læra eitthvað nýtt. Hverjir eru þínir framtíðardraumar í golfinu? Komast í atvinnumennsku og keppa á stóru mótaröðunum. Hvernig var árangur í samræmi við væntingar í sumar í golfinu? Ég er nokkuð sátt eftir sumarið en auðvitað vil ég alltaf gera betur. Hver er helsti galli þinn í þínum leik og af hverju telur þú að svo sé? Púttin eru minn helsti galli og líklega vegna þess að ég er ekki nógu dugleg að æfa þau. Hver er þinn helst kostur í golfinu og af hverju? Stöðugleiki. Hvert er eftirminnilegasta atvikið sem þú manst eftir úr golfi? Þegar ég fékk örn. Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í á golfvell- inum? Klúðra nokkurra sentimetra pútti fyrir framan marga áhorf- endur. Hverjir eru uppáhalds kylfingarnir og af hverju? Birgir Leifur og Rory Mcllroy, þeir eru flottir kylfingar. Í hvaða skóla ertu og hvernig gengur í náminu? Ég er í Álfhólsskóla og námið gengur mjög vel. Hvað æfir þú mikið í hverri viku? Ég er á æfingum þrjá tíma á viku en fyrir utan það þá æfi ég mig eitthvað meira. Hver er uppáhalds golfvöllurinn og hvers vegna? Golfvöllurinn á Costa Ballena á Spáni, því það er skemmtilegur og flottur völlur. Hvaða þrjár golfholur á Íslandi eru í sérstöku uppáhaldi hjá þér? Sjöunda holuna í hrauninu á Hvaleyrarvelli, níunda holan í Leir- unni og fimmtánda holan í Vestmannaeyjum. Hvaða fjórir kylfingar skipa draumaráshópinn að þér með- taldri? Birgir Leifur, Rory Mcllroy og leyfum Tiger Woods að vera með. Hver eru helstu áhugamál fyrir utan golf? Dans. Ef þú værir ekki í golfi, hvað værir þú að gera? Þá væri ég örugglega ennþá í körfubolta. UNGIR OG EFNILEGIR Sara M. Hinriksdóttir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Golf á Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.