Golf á Íslandi - 01.12.2010, Blaðsíða 92
92 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
Dustin Johnson var í auga stormsins í einum
umdeildasta endi í golfsögunni. Þar missti Johnson
af bráðabana á PGA meistaramótinu á Whistling
Straits vellinum á móti Bubba Watson og Martin
Kaymer. Sár vonbrigði fyrir Johnson en hann tók
atvikinu afar fagmannlega. Hann missti ekki stjórn
á skapi sínu né reyndi að kenna öðrum um ófarirn-
ar. Ekkert væl. Johnson einfaldlega hristi þetta af
sér og kláraði mótið eins og sannur atvinnumaður.
Þó hann hafi þarna misst af sigri á mótinu má
með sanni segja að Dustin Johnson hafi dregið
lærdóm af þessu öllu saman, hann öðlaðist það
sem margir myndu meta fram yfir sigur, það er
að segja virðingu. Á sama hátt brást hann við
er hann lék á 82 höggum á lokadegi U.S. Open á
Pebble Beach og tapaði tilinum. Sama var uppi á
teningnum í æsku Johnson, þegar foreldrar hans
skildu og þegar hann var viðriðinn innbrot 16 ára
gamall. Hann einfaldlega hélt sínu striki. Nú 26 ára
að aldri er Johnson búinn að slípa grófu brúnirnar
og fínpússa óumdeilanlega hæfileika sína. Johnson
er ekki aðeins gríðarlega högglangur, hann getur
troðið körfubolta eins og að drekka vatn og skartar
svokallaðri slefmottu fyrir neðan neðri vör. Já hann
er svalur, öflugur, þrautseigur og kannski, næsta
stjarnan í bandarísku golfi.
Hefur þig dreymt lokin á PGA og U.S. Open undan-
farið?
Eiginlega ekki, ég er nokkuð góður í því að fást við
svona hluti. Ég læt þetta ekki angra mig um
of. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem að
eitthvað umdeilt gerist á stórmóti
og svo sannarlega ekki það síð-
asta.
Hversu oft hefurðu fengið víti
fyrir að setja kylfuna niður
í glompu á lífsleiðinni fyrir
utan atvikið á PGA ?
Aldrei. En ég hefði aldrei átt
að slá þangað til að byrja
með. Hefði ég bara verið inn
á braut þá værum við ekki að
velta þessu fyrir okkur núna.
Af hverju lastu ekki reglur
mótsins þessa vikuna?
Sjáðu til, við fáum reglur
vikulega sem segja t.d.: „Það er
í lagi að færa steina í glompum
þessa vikuna“. Þegar ég svo las
reglurnar úr PGA mótinu eftir á, þá gat ég ekki séð
neitt óvenjulegt. Auðvitað veit ég líka að það má ekki
leggja niður kylfuna í glompu. Ég vissi bara ekki að
þetta væri glompa. Það var ómögulegt að greina mið-
að við fjöldann af fólki sem stóð í kring og ofan í þess-
ari svokölluðu glompu þarna. Ég hefði sennilega áttað
mig á því að þetta var glompa hefði ekki allt þetta fólk
staðið þarna.
Fyrir mótið á Whistling Straits taldi Golf Digest
Tímaritið glompurnar á vellinum og fengu út 967.
Hve margar eiga þær að vera þegar að PGA snýr aftur
þangað árið 2015?
966!
Hefði ekki verið talsvert verra ef þú hefðir sett
niður púttið á átjándu flöt og staðið í þeirri trú að
þú hefðir verið að vinna risamót?
Ég hugsaði aðeins út í það, það hefði pottþétt
verið mun verra.
Víkjum að Pebble Beach, þú ert með þriggja
högga forskot fyrir lokahring á U.S. Open þegar þú
færð þrefaldann skolla á annarri
holu. Hvernig leið þér á meðan
það gerðist?
Svona á meðan þetta gerist
líður tíminn svo hratt. Þegar
að ég lít til baka og reyni að
sjá hvað fór úrskeiðis, jafnvel
eftir allt sem gerðist á ann-
ari holu og það sem gerðist á
þeirri þriðju (tvöfaldur skolli).
Mér leið ennþá eins og ég ætti
möguleika á sigri, ég var ekki alveg
úr leik. Ég þurfti að fá eitt pútt til að detta og allt
hefði breyst.
Það hljómar eins og þú hafir ekki verið að svekkja
þig of mikið á þessu, ekkert frekar en
PGA atvikinu. Þú hefur ekkert grátið
þetta eftirá?
Alls ekki, ég tek það góða úr
báðum atvikum og læri af
þessu. Ég verð bara að vera
þolinmóðari með sveifluna
mína og í sambandi við allar
mínar venjur. Mér gengur
yfirleitt vel frá fimmtudegi
Dýr gleymska hjá Dustin í
glompu á PGA risamótinu
framh. á bls. 92.