Golf á Íslandi - 01.07.2014, Qupperneq 10
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
10
vefverslun og kennsla
Hápunktur sumarsins, Íslandsmótið í
höggleik verður á Leirdalsvelli. Vegleg
umfjöllun tengd mótinu er í blaðinu.
Íslandsmótið
Golfklúbbur Reykjavíkur fagnar 80 ára
afmæli á þessu ári. Við kíkjum í mynda-
safn klúbbsins og skoðum skemmtilegar
myndir úr sögunni.
Hver æfir stutta spilið meira en löngu
höggin. Áhugaverður pistill um stutta
spilið hjá Sigurpáli Geir Sveinssyni,
PGA golfkennara.
Í dómarapistli blaðins er fjallað um
útfyllingu skorkortsins. Það eru margir
sem fá frávísun í keppni út á ranga
útfyllingu skorkortsins
Við fjöllum að venju um unga og
efnilega kylfinga og segjum einnig frá
mótahaldi þeirra á Íslandsbankamóta-
röðinni og Áskorendamótaröðinni.
Ágúst Jensson er nýr framkvæmda-
stjóri Golfklúbbs Akureyrar. Við
hittum kappann sem ætlar að koma
Jaðarsvelli aftur á kortið eftir erfið ár.
SkorkortiðStutta spilið
Á Vestfjörðum er Sjávarútvegsmóta-
röðin vinsæl og mikið sótt enda haldin
á öllum golfvöllum svæðisins. Við
heyrum í forsprakkanum Kristni Þ.
Kristjánssyni.
Fimmtugi Spánverjinn, hinn skemmti-
legi Miguel A. Jimenez er engum líkur
og við birtum skemmtilegt viðtal við
hann.
VestfirðirUngir og efnilegir
JimenezJaðarinn
SMÁ SÝNISHORN AF EFNI BLAÐSINS
82
92
RITSTJÓRAPISTILL 26 32
88
114
118 128
Þótt ótrúlegt sé á golfíþróttin víða úti í heimi
undir högg að sækja af ýmsum ástæðum. Tvö
atriði vega nokkuð hátt. Aðgengi er misjafnt og
kostnaður hreinlega of mikill. Hér á Íslandi eru
þessir tveir þættir hins vegar mun betri. Aðgengi
að sjötíu golfvöllum er auðvelt og kostnaður ekki
svo hár.
Það er ljóst að Golfsamband Íslands í samvinnu
við golfklúbba og fleiri aðila þarf að huga að
frekari útbreiðslu íþróttarinnar á næstu árum,
sérstaklega er þörf á fjölgun meðal þeirra yngstu.
Hulda Birna Baldursdóttir, PGA golfkennaranemi er með áhugaverða
grein í blaðinu um barna- og unglingastarf á landsbyggðinni. Hún
segir að þegar hún sé spurð að því erlendis hversu margir golfvellir
séu á Íslandi verði fólk gapandi hissa að hér séu um sjötíu golfvellir á
þessari eyju. Hún hefur haldið námskeið fyrir börn og unglinga í sumar
á Blönduósi og á Skagaströnd en þar eins og víðar eru áhugasamir
krakkar. Þá stóð hún líka fyrir stelpugolfi í byrjun sumar. „Þarna eru
áhugasamir og efnilegir kylfingar sem, því miður, fá ekki næga þjálfun
vegna þess að klúbbarnir hafa ekki bolmagn til að halda úti reglulegum
æfingum,“ segir Hulda og hvetur aðila bæjarfélaganna að huga betur
að þessu. Hún bendir á að foreldrar ættu að hrífast af mörgum kostum
golfíþróttarinnar, ekki aðeins vegna góðrar hreyfingar og útiveru auk
félagsskapar heldur líka vegna margra skemmtilegra gilda sem fylgja
golfinu. Á lista sem hún birtir eru atriði eins og auðmýkt og virðing,
stundvísi, heiðarleiki, einbeiting og vandamálalausnir auk fleiri atriða.
Virkilega áhugaverður listi sem við ættum öll að lesa.
Forráðamenn SNAG (Starting New At Golf), Ingibjörg Guðmunds-
dóttir og Magnús Birgisson vinna líka öflugt starf við útbreiðslu
íþróttarinnar og þau hafa náð áhugaverðu samstarfi víða um land. Í
blaðinu má m.a. sjá myndir frá SNAG golfi á Norðfirði.
Að venju er mikil umfjöllun um Íslandsmótið í höggleik í þessu blaði en
mótið er nú haldið í fyrsta sinn á Leirdalsvelli hjá Golfklúbbi Kópavogs
og Garðabæjar sem fagnar 20 ára afmæli á þessu ári. Þar hefur farið
fram áhugaverð uppbygging og nú státar GKG af 27 holum, miklum
félagafjölda og einu öflugasta barna- og unglingastarfi á landinu.
Þar er margt annað áhugavert í blaðinu, skemmtilegur PGA kennslu-
pistill frá Sigurpáli Sveinssyni, viðtal við hinn magnaða Spánverja
Miguel A. Jimenez og margt fleira.
Njótum golfsumars þrátt fyrir hikst í veðurguðunum. Eltum bara góða
veðrið í fríinu. Það eru golfvellir úti um allt land!
Páll Ketilsson
ritstjóri
Holukeppnin
Mögnuð gildi golfsins
Okkar vinsælu
golfferðir
Islantilla, El Rompido,Valle del Este á
Spáni, Morgado og Penina í Portúgal
Islantilla, El Rompido,
Penina og Morgado:
24. september – 1. október
1. október – 11. október
Valle del Este:
7 og 14 nætur í boði
30. september
7. október
14. október
21. oktober
ISLANTILLA
Vinsældirnar aukast og
aukast. Frábær staður.
Nauðsynlegt að bóka
strax!
EL ROMPIDO
Tveir 18 holu vellir,
5 stjörnu hótel og
íbúðagisting þar sem allt
er innifalið.
PENINA
Okkar lúxus 5 stjörnu
flaggskip sem hefur slegið
í gegn.
MORGADO
Tveir gríðarlega skemmti
legir og fjölbreyttir vellir
í algjörri náttúruparadís.
Hótelið við vellina er fyrsta
flokks.
VALLE DEL ESTE
Nýuppgert hótel við
frábæran golfvöll.
VITA
Skógarhlíð 12
Sími 570 4444
Ótakmarkað golf
í haust og vetur
„Þessi áfangastaður er sá mest spennandi sem ég hef
séð lengi, jafnt fyrir kylfinga og þá sem spila ekki golf.“
Peter Salmon, VITA golf.
Tenerife – Golf Del Sur á verði
sem mun koma öllum á óvart!
TENERIFE – Golf del Sur
Morgunrástímar á flottum 27 holu golfvelli í 2 mínútna
akstursfjarlægð frá glæsilegu hóteli við ströndina. Fjölmargir
veitingastaðir, barir og skemmtistaðir eru í göngufæri við
hótelið. Golf del Sur pakkinn okkar á Tenerife er einfaldlega
mest spennandi haust og vetrarnýjung sem við höfum boðið
upp á lengi.
Fararstjóri: Sigurður
Hafsteinsson, golfkennari.
UPPSELT 1. OKTÓBER
til Islantilla og Penina