Golf á Íslandi - 01.07.2014, Blaðsíða 130

Golf á Íslandi - 01.07.2014, Blaðsíða 130
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is 130 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is 97 Póstdreifing | Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | www.postdreifing.is Póstdreifing býður upp á fjölbreytta og örugga dreifingu á blöðum og tímaritum. Við komum sendingunni í réttar hendur. Örugglega til þín. GSÍ treystir okkur fyrir öruggri dreifingu á Golf á Íslandi Við færum þér lægri forgjöf B ra nd en bu rg Segðu okkur frá venjulegum degi á æfinga- svæðinu. Ég er kominn í klúbbhúsið um níuleytið á morgnana og reyni að hafa æfingarnar fjölbreyttar. Á miðvikudögum til dæmis, þá æfi ég glompuhögg í svona tvo tíma, pútta í klukkutíma, slæ löng högg í tvo tíma og lýk svo deginum aftur úti á æfingaflöt. Hefur þú alltaf stefnt að því að verða at- vinnumaður. Nei, alls ekki. Pabbi kom mér af stað út á golfvöll og síðan í kennslu hérna, en mér hefur reyndar alltaf fundist ég vera á eftir jafnöldrum mínum og þurft að leggja sérlega hart að mér til að ná þeim. Ég hef alltaf reynt að setja mér ákveðið markmið – verða bestur hér í klúbbnum, spila fyrir Sheffield og verða bestur þar, síðan bestur í Yorkshire og svo í Englandi. Þegar ég komst á topp heimslistans fyrir áhugamenn, þá var kominn tími til að horfa á atvinnumennina og segja; ´nú vil ég verða eins góður og þið´. Þú ert heimakær Yorkshirebúi, en hefur dvalið nokkuð í Bandaríkjunum. Gætir þú hugsað þér að búa þar í framtíðinni? Já, mér finnst fínt að vera í Bandaríkjunum. Við höfum oft farið í sumarleyfi þangað og mér hefur alltaf líkað vel. Golfferðirnar þangað hafa líka verið ánægjulegar, þannig að til langs tíma litið, þá held ég að ég hefði ekkert á móti því að spila á PGA móta- röðinni. En núna er forgangsatriði að fá keppnisrétt á evrópsku mótaröðinni. Hvernig hefur þú náð að hvíla þig á golfinu síðasta árið? Ég fer bara í bíó, hitti vini mína, spila golf með þeim og eyði tíma með Amy, kærustunni minni. Ég er ekkert sérstaklega fyrir drykkju eða partístand. Ég er líka mikill aðdáandi Sheffield United og hefði gaman af því að komast á fleiri leiki næsta vetur. En takist það ekki, þá ætla ég ekki að kvarta, því það þýðir að ég verð upptekinn á móta- röðinni. Þú ert væntanlega orðinn mun þekktari núna, eftir velgengnina síðasta ár? Já, og þetta er svolítið skrýtið. Við vorum um daginn í Alton Towers (skemmtigarður í Stafforshire), og þegar við vorum í biðröð voru nokkrir strákar að horfa á mig. Síðan drógu þeir upp símana sína og ég heyrði þá segja: ´já, þetta er hann!´ Þeir voru greinilega að tékka á mér á Google. Seinna um daginn fékk ég skilaboð á Instagram; „við sáum þig í Alton Towers – frábært að hitta þig!“ Þetta er frekar nýtt fyrir mér og fjölskyldunni og okkur finnst þetta svolítið fáránlegt. Annars eru allir mjög almennilegir, en ég þarf bara að venjast þessu aðeins. Chubby Chandler: Matt hefur tekist vel á við þessa velgengni. Hann er með hæfileikana og skapgerðina til að ná eins langt og hann vill. Okkur finnst frábært að geta hjálpað honum að gera það. Adam Scott (mynd): Augusta völlurinn var mjög erfiður, en Matt virtist líða vel. Hann á bjarta framtíð fyrir sér. Rory McIlroy: Ég var mjög hrifinn af þessum kylfing. Leikur hans er stöð- ugur og stutta spilið mjög gott. Justin Rose: Hann er góður drengur og frábær kylfingur. Mér fannst mikið til stutta spilsins koma hjá honum. Dan Walker, meðlimur í Hallamshire og sjónvarpsmaður hjá BBC: Sérstaða Matts er viljinn til að æfa mikið – og svo er hann líka vænn piltur. Bob Hill, framkvæmdastjóri Hal- lamshire: Foreldrum hans er sómi að þessum dreng. Hann er frábær fulltrúi klúbbsins og er með báða fætur á jörðinni. Þeirra orð:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148

x

Golf á Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.