Golf á Íslandi - 01.07.2014, Blaðsíða 78
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
78
Þegar ég spila golf erlendis er ég oft spurð
hve margir golfvellir séu á Íslandi. Þegar ég
segi 60-70 verður fólk skiljanlega gapandi
hissa. Allt í kringum landið eru vellir sem
byggðir hafa verið upp af hugsjónafólki
með þann draum að geta leikið golf á
heimaslóðum.
Dæmi um slíka velli eru á Blönduósi og
Skagaströnd, þar sem ég hef haldið námskeið
fyrir börn og unglinga, í sumar og fyrra-
sumar. Á síðasta námskeiði voru 16 krakkar
á Blönduósi og 14 á Skagaströnd og hefur
þeim fjölgað töluvert frá því í fyrra. Þarna
eru áhugasamir og efnilegir kylfingar sem,
því miður, fá ekki næga þjálfun vegna þess að
klúbbarnir hafa ekki bolmagn til að halda úti
reglulegum æfingum.
En hverjir eru kostir þess að krakkar um allt
land geti lært og leikið golf? Hreyfing og úti-
vera eru óumdeildir kostir. Á níu holum eru
gengnir fjórir til fimm kílómetrar um holt
og hæðir og oftast í góðum félagsskap. Golf
er einstaklingsíþrótt þannig að hver og einn
iðkandi leikur á eigin forsendum sem hentar
mörgum betur en hópíþróttir.
Það er því til mikils að vinna að efla golfí-
þróttina á landsbyggðinni. Dalvík er dæmi
um bæ sem hefur lagt mikinn metnað í
barna- og unglingastarf og þar kennir Heiðar
Davíð Bragason krökkunum golf árið um
kring með frábærum árangri.
Ég vil hvetja bæjaryfirvöld á Blöndu-
ósi, Skagaströnd og annars staðar að
íhuga hvernig stutt er við bakið á ungum
kylfingum. Er regluleg og góð kennsla? Er
auðvelt fyrir krakkana að komast á golf-
völlinn? Er góð æfingaaðstaða yfir veturinn?
Íþróttaiðkun barna og unglinga er gott vega-
nesti út í lífið og þar er golfið fremst í flokki.
Kær kveðja
Hulda Birna Baldursdóttir
PGA Trainee
Golfkennaranemi
Barna- og unglinga-
starf á landsbyggðinni:
Tíu ástæður af hverju
börn ættu að leika golf
Foreldrar ættu að hrífast af golfinu vegna þeirra gilda sem þar eru höfð í heiðri. Hér
eru tíu ástæður sem vinur minn Páll Sveinsson formaður Barna og unglingaráðs GHG
benti á í grein í fyrra:
1. Auðmýkt og virðing. Golfið fer fram á að iðkendur þess sýni hverjum öðrum virðingu,
jafnt innan sem utan vallar. Auðmýkt fyrir náttúrunni, virðingu fyrir þér og öðrum með
heiðarleika og kurteisi að leiðarljósi.
2. Stundvísi. Á hverjum degi leika hundruð iðkenda golfvelli landsins. Til þess að slíkt geti
farið fram með eðlilegum hætti og án árekstra er farið fram á rástímaskráningu. Ef tímar
skráningarinnar eru ekki virtir missir þú af þínum hring. Sama gildir um mót, ef þú mætir
ekki á réttum tíma tekur þú ekki þátt.
3. Heiðarleiki. Börn læra heiðarleika af golfi, svindl líðst ekki og þátttakendur læra að taka
ábyrgð á sinni hegðun og framkomu á golfvellinum.
4. Öryggi. Golfkylfur og boltar geta verið hættuleg tæki ef þeim er ekki rétt beitt. Lögð er
áhersla á að iðkendur séu meðvitaðir um það og að þeir hugi að öryggi og gæti þess hið
fyllsta við sína golfiðkun. Þetta læra iðkendur og heimfæra á aðra þætti lífsins.
5. Þögn. Golfíþróttin krefst mikillar einbeitingar. Svo slík einbeiting náist er nauðsynlegt að
iðkendur fái næði til að einbeita sér á meðan golfhögg er slegið. Þá læra börn að sýna hverju
öðru virðingu og tillitssemi.
6. Ímyndunarafl. Kylfingar læra að virkja ímyndunaraflið hvort sem það er daginn fyrir
mót, í leik eða við æfingar. Fyrir hvert högg þarf að sjá hvaða afleiðingar val á verkfæri
(kylfu) og hvernig það er framkvæmt hefur á útkomuna.
7. Vandamálalausnir. Tré, vindur, rigning, sandglompur og skurðir eru hluti af golfleiknum.
Barn sem lærir að takast á við vandamál í leik er líklegra til að geta brugðist við vanda-
málum sem koma upp í hinu daglega lífi.
8. Einbeiting. Eins og áður hefur komið fram krefst golfið einbeitingar. Þrátt fyrir mikla ein-
beitingu er eðli golfíþróttarinnar þannig að auðvelt er að gera mistök. Golfið kennir sínum
þátttakendum að mistök eru hluti af leiknum og þeim ber að taka af auðmýkt en ekki láta
þau brjóta sig niður.
9. Æfing, þrautseigja og hlustun. Afar sjaldgæft er að árangur náist í golfi strax í upphafi.
Til þess að ná árangri verða iðkendur að æfa mikið og halda æfingum stöðugum og til streitu
ásamt því að vera opnir fyrir tilsögn. Börn sem tileinka sér þetta eru reiðubúin í áskoranir
hins daglega lífs.
10. Tignarleiki. Í golfinu læra börn virðingu fyrir fullorðnum og hverju öðru. Í lok hvers
golfhrings takast þátttakendur í hendur, barn (iðkandi) hlær ekki að óförum keppinautar né
sýnir honum vanvirðingu á annan hátt.
Sjónlag augnlæknastöð var stofnuð árið 2001 og er í fararbroddi hér á landi
hvað varðar tæknibúnað og þjónustu við sjúklinga. Við erum með nýjustu
tækin og bjóðum ein fyrirtækja á Íslandi upp á hníflausar laseraðgerðir.
Hringdu í síma 577 1001 og pantaðu tíma í forskoðun
og kannaðu þína möguleika.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu okkar www.sjonlag.is
Glæsibær . Álfheimar 74 . 104 Reykjavík . Sími 577 1001 . www.sjonlag.is
Sérstakt tilboð til golfara
Sjónlag býður golfurum 40.000 kr. afslátt af hníflausum (Femto-LASIK)
augnlaseraðgerðum í sumar. Við erum með nýjustu tæknina og nýjustu tækin.
Sjónlag er eina fyrirtækið á landinu sem býður upp á sjónlagsaðgerðir sem eru
algjörlega hníflausar.
Hníflausar aðgerðir þýða m.a. skjótari bata og meiri gæði en með þeim
aðferðum sem beitt hefur verið hér á landi hingað til.
Hefur þú skoðað hvort augnlaseraðgerð gæti hentað þér
og losað þig við gleraugun í daglega lífinu s.s. golfinu?
40.000 kr.
afsláttartilboð!
Gildir til 31. ágúst 2014
Við bjóðum;
Nýju tækin
Nýjustu tækni
Mikla reynslu
Gott verð
Frábæra þjónustu
Fullt verð 350.000 kr. Tilboðsverð 310.000 kr.