Golf á Íslandi - 01.07.2014, Blaðsíða 30
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
30
Guðmundur
Ágúst Krist-
jánsson úr GR
gat ekki mætt
í titilvörnina á
Íslandsmótinu í
holukeppni, Securi-
tasmótinu, þar sem hann komst ekki inn í
mótið. Guðmundur Ágúst var stigalaus á
Eimskipsmótaröðinni á þessu tímabili en
aðeins 32 stigahæstu kylfingarnir á þessu
tímabili komust inn. Reglugerð mótsins
verður breytt fyrir næsta tímabil til þess að
þessi staða komi ekki upp aftur.
Á næsta ári fá 32 stigahæstu kylfingarnir
keppnisrétt en stigin vera talin frá síðasta Ís-
landsmóti í holukeppni en Íslandsmeistarinn
fær 2000 stig fyrir sigurinn – og það hefði
dugað til að vera í fimmta sæti á stigalist-
anum. Axel Bóasson úr Keili er í sömu stöðu
og Guðmundur Ágúst og hefur Axel verið
í ýmsum störfum hjá Keili á meðan hann
hefur horft á mótið frá hliðarlínunni.
Guðmundur Ágúst tók að sér annað hlutverk
á mótinu var aðstoðarmaður Andra Þórs
Björnssonar félaga hans úr GR.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR var ekki
á meðal keppenda á mótinu í ár en hún
fagnaði sigri í fyrra á Hamarsvelli í Borgar-
nesi. Ólafía Þórunn valdi að taka sér frí frá
keppnisgolfi eftir erfitt tímabil í Bandaríkj-
unum þar sem hún leikur með Wake Forest
háskólaliðinu. „Tímabilið hjá mér er búið að
vera mjög langt hjá mér og ég þurfti að taka
mér frí frá golfinu. Ég var búinn að missa
gleðina úr golfinu mínu og eftir að hafa tekið
mér frí þá finn ég að ástandið er að lagast,“
sagði Ólafía Þórunn við Golf á Íslandi.
MEISTARINN FRÁ ÞVÍ FYRRA
KOMST EKKI INN Í MÓTIÐ
- Guðmundur Ágúst var kaddý fyrir Andra Þór á Íslandsmótinu í holukeppni
Leið Kristjáns að titlinum
Kristján Þór Einarsson lék 18. brautina
á Hvaleyrarvelli aðeins einu sinni á sex
keppnishringjum á Íslandsmótinu í holu-
keppni. Það var í riðlakeppninni gegn Ara
Magnússyni úr GKG þar sem Kristján náði
að jafna metin á 18. flöt og hann knúði fram
sigur á fyrstu holu í bráðabana.
Riðlakeppni: Helgi Anton Eiríksson, GSE 4/3, Ari
Magnússon, GKG 19. hola, Arnar Snær Hákonarson,
GR 4/3.
8-manna úrslit: Birgir Leifur Hafþórsson, GKG 2/0.
Undanúrslit: Haraldur Franklín Magnús, GR 2/1
Úrslitaleikur: Bjarki Pétursson, GB 2/1.
Leið Tinnu að titlinum
Tinna Jóhannsdóttir lék sex leiki á Íslandsmótinu í holu-
keppni og hún tapaði ekki leik í riðlakeppninni. Hún lék
fjórum sinnum gegn liðsfélögum sínum úr Keili en 7-riðill
keppninnar var skipaður fjórum kylfingum úr Keili. Tinna
sigraði Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur úr Keili í undanúr-
slitum en þær eru systkinabörn og í riðlakeppninni var
Þórdís Geirsdóttir úr Keili mótherji Tinnu en Þórdís er gift
föðurbróður Tinnu.
Riðlakeppni: Anna Sólveig Snorradóttir, GK 1/0, Þórdís Geirsdóttir GK,
19. holu, Högna Kristbjörg Knútsdóttir GK, 3/1.
8-manna úrslit: Berglind Björnsdóttir, GR 3/1.
Undanúrslit: Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK 2/1.
Úrslitaleikur: Karen Guðnadóttir, GS 5/4.