Golf á Íslandi - 01.07.2014, Side 140
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
140
Við vorum báðir að vinna sem lögmenn –
og okkur leiddist báðum frekar mikið. Eitt
kvöldið vorum við að tala um hvernig við
gætum fundið gleðina í lífinu aftur og þá
kviknaði hugmyndin að „Pure Golf 2010.“
Reglurnar voru einfaldar: við þurftum
að ferðast um heiminn í eitt ár og spila á
nýjum velli á hverjum degi.
Við áttum auðvitað ekki fyrir svona ævintýri,
og vinir okkar gáfu lítið fyrir hugmyndina.
En eftir að við eyddum næstu vikum í að
senda fyrirspurnir til golfklúbba um allan
heim og tala við félaga okkar og fjölskyldu-
meðlimi, þá fórum við að sjá að þetta væri
gerlegt. Fjöldi klúbba var til í að bjóða okkur
að spila frítt, og fólk um víða veröld var til í
að leyfa okkur að gista. Draumurinn var að
verða að raunveruleika.
Við byrjuðum á Nýja Sjálandi og fórum
síðan til Ástralíu, þar sem við spiluðum í
nokkra mánuði. Síðan flugum við til San
Francisco, keyrðum þvert yfir Bandaríkin,
flugum til Skotlands, fórum um Bretland
og Evrópu, þaðan til Dubai, svo til Ástr-
alíu og aftur til Nýja Sjálands, þar sem við
ferðuðumst um í mánuð. Hvorugur okkar
átti bíl, þannig að við fengum lánaða druslu
hjá félaga okkar sem hann hafði keypt sjö
árum áður fyrir lítinn pening.
Erfiðasti leggurinn var frá Dubai til Ástralíu.
Við slógum af fyrsta teig í Dubai rétt eftir
miðnætti og spiluðum við flóðljós. Síðan
náðum við fluginu til Perth í Ástralíu
klukkan sex um morguninn; komum þangað
fjögur að morgni og fórum beint í áhuga/
atvinnumannamót á Royal Perth. Mesta
stressið var hins vegar 6. júní.
Þann dag var þrumuveður í kringum Sea
Island í Georgíu í Bandaríkjunum. Veður-
spáin gerði ráð fyrir að þrumurnar stæðu
allan daginn, þannig að við héldum áfram
á næsta völl til að forðast það. Við vorum
um það bil að komast þangað á réttum
tíma, þegar bílaleigubíllinn okkar bilaði.
Við fengum dráttarbíl til að koma okkur og
bílnum til Hilton Head, og beinlínis hlupum
um bæinn að leita að golfvelli. Þegar við
fundum einn slíkan, þá klifruðum við yfir
girðinguna, földum pokana okkar í runnum,
tókum þrjár kylfur og tvo bolta og skokkðum
svo 18 holu hring. Golfið var ekki gott – og
við vorum í leyfisleysi – en við héldum
skipulaginu gangandi.
Við myndum alveg vilja gera þetta aftur – en
með rýmri fjárráð í það skiptið, (það er ekki
skemmtilegt að sofa í bílum) og færri kylfur.
Við lögðum auðvitað af stað með 14 kylfur í
pokanum – næst förum við með léttan poka
og aðeins nokkrar kylfur.
ÓBILANDI ÁHUGI
Það besta og versta við ferðina:
Uppáhalds golfvellir: „Á topp
fimm listanum voru Old Course
(St. Andrews), Royal Melbourne,
Cypress Point, Pine Valley og
North Berwick.“
Erfiðasti völlurinn: „Ocean
völlurinn á Kiawah Island er
fáránlega erfiður. Við vorum báðir
að spila vel og enduðum á yfir 90
höggum.“
Besti dagurinn: „Þegar við
vorum búnir að spila á Augusta
Country Club, þá spurði einn
meðlimurinn hvort við vildum
kíkja yfir á Augusta National. Við
máttum ekki spila, en fengum þó
að labba völlinn og skoða klúbb-
húsið.“
Versta veðrið: „Við vorum
tvær vikur á Írlandi og það rigndi
stanslaust allan tímann.“
VIÐ SPILUÐUM GOLF Í HEILT ÁR
– HVERN DAG Á NÝJUM VELLI!
Michael Goldstein og Jamie Patton fengu bilaða hugmynd – og gerðu hana að veruleika
Michael og Jamie
njóta útsýnisins á
Waterville vellinum
á vesturströnd Ír-
lands.
Meira að segja á Cypress Point var félögunum
boðið að spila.
Hannað til að vernda þig
BJB | Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is | Opið: mán. til fim. kl. 8 - 18, fös. kl. 8 - 16:30
Skoðaðu verð hjólbarða og þjónustu [ www.bjb.is ] Veldu gæðaþjónustu BJB.
Önnur
þjónusta
Dekk Púst Smurning Bremsur Fjöðrun Rafgeymar
Vredestein eru hollenskur hjólbarðaframleiðandi sem sérhæfir sig í dekkjum
undir stóra sem smáa fólksbíla, jepplinga og sportjeppa. Vrederstein er í gæða-
flokki með Bridgestone, Pirelli og Michellin. Dekkin eru framleidd í Hollandi og
leggur Vredestein allt sitt kapp á að bjóða vöru sem stenst ströngustu kröfur um
öryggi, rásfestu, grip og þægindi.
Vertu í hópi þeirra öruggu á gæðadekkjum.
Hjá BJB færðu réttu dekkin - kíktu við.