Golf á Íslandi - 01.07.2014, Blaðsíða 24
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
24
ÞRETTÁNDA Í GRAFARHOLTI
EFTIRMINNILEGUST
Sigurður Sigurðsson GS, Íslandsmeistari 1988:
UPPÁHALDSBRAUTIN MÍN:
„Þegar maður er spurður hver er fallegasta hola sem maður hefur
leikið koma ansi margar upp í hugann hjá mér, bæði erlendis og hér
heima. En ég ætla að halda mig við heimaslóðirnar hér á landi og
erfitt er að gera upp á milli þeirra tveggja golfvalla sem hafa alltaf
verið í mínu uppáhaldi, þ.e. Hólmsvöllur í Leiru og Grafarholtið. En
eftir að hafa hugað vel hvaða hola mér finnst fallegust, þá verð ég að
segja hvaða hola er mér eftirminnilegust á mínum ferli. Líklega er ég
eini kylfingur landsins sem er með þessa skoðun, en það er 13. holan
í Grafarholtinu. Ástæðan er einföld, þar átti ég þýðingarmesta golf-
höggið á mínum ferli. Annað höggið mitt fór yfir flötina í lokahring á
Íslandsmótinu 1988 sem ég reyndar vann, en ég kláraði fuglinn með
að vippa beint ofan í. Alltaf þegar ég kem þarna á flötina, þá verð
ég að kíkja á staðinn sem ég kláraði fuglinn minn sem gerði það að
verkum að ég nældi mér í Íslandsmeistaratitilinn.
„Uppháhalds holan mín er 4. brautin á Hlíðavelli í Mosó. Þetta er
ein af nýju holunum á vellinum. Stutt par 4 braut sem býður upp
á það að reyna við flötina af teignum, jafnvel af bláu teigunum ef
vindáttin er rétt. Virkilega flott hola með stórri flöt sem gaman
er að slá inn á,“ segir Nína Björk Geirsdóttir, lögfræðingur og Ís-
landsmeistari í höggleik kvenna árið 2007.
Golf á Íslandi átti von á því að Nína myndi nefna 3. braut á
Garðavelli á Akranesi en hún fór holu í höggi þar þegar hún var í
keppni á Eimskipsmótaröðinni fyrir nokkrum árum. Það náðist á
myndband, en þetta er í eina skiptið sem hola í höggi hefur náðst á
myndband í keppnum hér á landi.
„Jú, það hvarflaði að mér að nefna hana en mér finnst hún yfirleitt
bara erfið og ekkert mjög skemmtileg nema í þetta eina skipti“.
FJÓRÐA Í MOSÓ ER FLOTT
Nína Björk Geirsdóttir, Íslandsmeistari í höggleik 2007:
„Mín uppáhalds hola er 12. brautin
á Korpu. Það er braut sem maður
ber mikla virðingu fyrir, minni-
stætt er þegar hún var spiluð með
pútter í Íslandsmóti um árið en þá
var mikill hliðarvindur.
Þessi braut reynir á alla þætti
golfsins, skekkjumörk eru lítil og
erfiðleikastuðullinn fer ansi hátt ef
það er einhver vindur, bæði fyrir
upphafshöggið og inná-höggið.
Þetta er mjög krefjandi hola og
reynir á taugarnar.
Gott skor gefur sjálfstraust fyrir
næstu holur sem ekki veitir af,“
segir Grímur Kolbeinsson í GR.
TÓLFTA Á KORPU
Grímur Kolbeinsson GR áhugaljósmyndari:
HVER PASSAR TÖLVUKERFIÐ
ÞITT?
Premis sér um rekstur tölvukerfisins þíns að hluta eða í heild, hvort sem
það er hýst í vélasal Premis eða hjá fyrirtækinu þínu – og hvort sem þú
ert með 1 eða 1000 starfsmenn. Hafðu gögnin í öruggum höndum!
Traustur
rekstur tölvukerfa
Starfsfólk Premis hefur
mikla reynslu, menntun og
sérhæfða þekkingu á ólíkum
tölvukerfum, getur aðstoðað
tölvudeildina þína, eða
einfaldlega verið tölvudeildin
sem þig hefur alltaf vantað.
Örugg
hýsing gagna
Premis er einn stærsti
hýsingaraðili landsins
og vélasalurinn einn sá
fullkomnasti á landinu
með tilliti til öryggismála
og krafna um uppitíma.
Allir netþjónar eru vaktaðir
allan sólarhringinn og öll
nauðsynleg gögn afrituð
reglulega.
Sérhannaðar
hugbúnaðarlausnir
Starfsmenn Premis hafa
hannað og smíðað ýmsar
sértækar hugbúnaðarlausnir,
t.d. innri net, verkbókhald
og tengingar milli kerfa og
þannig aðstoðað fyrirtæki við
að hagræða í sínum rekstri.
Um Premis
Premis, sem áður hét Nethönnun, er 15 ára gamalt fyrirtæki sem
sérhæfir sig í rekstri tölvukerfa, hýsingu og hugbúnaðarsmíði.
HAFÐU SAMBAND
Við erum alltaf með lausnir!
Hádegismóum 4 · 110 Reykjavík · 547 0000 · premis.is
PI
PA
R\
TB
W
A
·
S
ÍA
·
1
41
6
03