Golf á Íslandi - 01.07.2014, Page 38

Golf á Íslandi - 01.07.2014, Page 38
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is 38 Ertu með ofnæmi? Lóritín® – Kröftugt ofnæmislyf án lyfseðils Þekkir þú helstu einkenni ofnæmiskvefs? · Kláði í augum og nefi · Síendurteknir hnerrar · Nefrennsli/stíflað nef · Rauð, fljótandi augu Einkennin geta líkst venjulegu kvefi og margir þjást af „kvefi” á hverju sumri áður en þeir átta sig á að um ofnæmiskvef er að ræða. Lóritín er ætlað til meðferðar á einkennum ofnæmiskvefs og langvarandi ofsakláða af óþekktum toga. H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA - A ct av is 4 14 08 2 Notkun: Lóritín inniheldur virka efnið lóratadín 10 mg og er ætlað til meðferðar á einkennum ofnæmiskvefs og langvarandi ofsakláða af óþekktum toga. Skömmtun: Fullorðnir og börn yr 12 ára aldri: 1 taa á dag. Börn 2-12 ára: Með líkamsþyngd meiri en 30 kg: 1 taa (10 mg) á dag. Börn með líkamsþyngd undir 30 kg: 1/2 taa (5 mg) á dag. Lyð er ekki ætlað börnum yngri en 2 ára. Töuna má taka hvenær sem er, án tillits til matmálstíma. Hea ætti meðferð hjá sjúklingum með verulega skerta lifrarstarfsemi með minni skammti. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða hjálparefnum. Varúðarreglur: Gæta skal varúðar ef Lóritín er geð sjúklingum með mikið skerta lifrarstarfsemi. Lyð inniheldur laktósa. Langvarandi notkun getur leitt til aukinnar hættu á tannskemmdum vegna munnþurrks. Notkun Lóritíns á meðgöngu og við brjóstagjöf er ekki ráðlögð. Í einstaka tilfellum nnur fólk fyrir syu sem getur haft áhrif á hæfni þeirra til aksturs eða notkunar véla. Aukaverkanir: Lóritín þolist almennt vel en algengustu aukaverkanirnar hjá börnum á aldrinum 2-12 ára eru höfuðverkur, taugaveiklun og þreyta. Algengustu aukaverkanirnar hjá 12 ára og eldri eru svefnhöfgi, höfuðverkur, aukin matarlyst og svefnleysi. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lynu. Texti síðast endurskoðaður í mars 2013. Yrði skemmtilegt ef ég þyrfti að afhenda sjálfum mér bikarinn Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsam- bands Íslands verður meðal þátttakenda á Íslandsmótinu í höggleik 2014. „Ég hef aldrei áður tekið þátt í stigamóti á vegum Golfsam- bands Íslands, hvað þá í sjálfu Íslandsmótinu. Ég hef hins vegar verið viðloðandi þessi mót um afar langt skeið fyrir hönd sambandsins. Það má því segja að ég þekki skipu- lagshlið mótanna vel en mig langar til að upplifa mótið frá sjónarhóli kylfingsins. Þar fyrir utan fannst mér tilvalið, í ljósi þess að ég uppfylli forgjafarskilyrði mótsins, að forseti Golfsambandsins taki þátt í mótinu. Það er ekki á hverjum degi sem það tækifæri gefst. Ég held að þetta verði mjög skemmtilegt, að minnsta kosti ætla ég að njóta hverrar mínútu,“ segir Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsam- bands Íslands en hann verður í hópi þátttakenda á Íslands- mótinu í höggleik á Leirdalsvelli. Hefur það gerst áður að forseti GSÍ hafi tekið þátt í Íslandsmóti í höggleik? „Ég þekki það ekki, það er að minnsta kosti langt síðan. Það má vel vera að forseti sambandsins hafi tekið þátt í mótinu þegar keppendur voru færri og sambandið var minna en ekki eftir að fyrirkomulagi þess og nafni var breytt í Íslandsmótið í höggleik.“ Hefðurðu undirbúið þátttöku þína sérstaklega? „Ég get ekki sagt það. Ég leik eingöngu golf af félagslegum ástæðum, þ.e. ég leik golf með vinum eða fjölskyldu og ekki mikið oftar en einu sinni í viku. Ég er því miður ekki nógu duglegur að æfa mig og hef aldrei verið. Ég set golf- kylfurnar í bílskúrinn á haustin og tek þær aftur fram á vorin. Ég hef samt náð að halda forgjöfinni í kringum fjóra undanfarinn áratug og vonast til að hanga á forgjöfinni fram eftir aldri. Ég mun samt setja aukinn kraft í æfingar fyrir mótið því ég ætla að reyna að standa mig vel. Kylfu- beri minn í mótinu og frændi, Birgir Sverrisson, hefur haft mikinn metnað fyrir verkefninu og hefur skammað mig mikið fyrir slakan undirbúning. Hann vill ekki þurfa að taka fram kaddýgallann fyrir einungis tvo keppnisdaga.“ Ertu bjartsýnn á gott gengi, hvað er markmiðið? „Maður sigrar ekki nema vera með og þar sem ég verð meðal þátttakenda þá er möguleiki á því að ég standi uppi sem sigurvegari, fræðilegur möguleiki. Það yrði skemmti- legt ef ég þyrfti að afhenda sjálfum mér bikarinn í leikslok, ég á hins vegar ekki von á því. Að öllu gamni slepptu þá er markmiðið að komast í gegnum niðurskurðinn. Ef það tekst þá verð ég mjög sáttur við sjálfan mig.“ Haukur Örn Birgisson er lágforgjafarkylfingur og er fyrsti forseti GSÍ sem keppir á Íslands- móti í höggleik. Það sakar ekki að hafa „lúkkið“ í lagi og hver veit nema forsetinn mæti svona.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Golf á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.