Golf á Íslandi - 01.07.2014, Page 104

Golf á Íslandi - 01.07.2014, Page 104
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is 104 BÆÐI MÖMMU OG PABBA Á SAMA HRING SEM KYLFUBERA „RAK“ UNG & EFNILEG – MELKORKA KNÚTSDÓTTIR Hver er ástæðan fyrir að þú hófst að leika golf? Fjölskyldan dró mig í sportið þar sem allir í henni stunda golf. Hvað er það sem heillar þig við golf? Einstaklingsíþrótt, félagsskapurinn og útiveran. Hverjir eru þínir framtíðardraumar í golfinu? Ég verð að viðurkenna að ég er ekki alveg viss því margt spilar inn í. Það væri alla vega draumur að fara í góðan háskóla í Bandaríkjunum á annað hvort golf- eða fótboltastyrk. Hefur þú verið að bæta þig mikið í golfinu á undanförnum árum? Já ég myndi segja það en auðvitað er alltaf hægt að gera betur. Forgjöfin hefur lækkað hratt á seinustu árum og skapið batnað. Hver er þinn helsti kostur og galli í golfinu og hvers vegna? Helsti kostur eru tréhöggin og púttin. Ég þarf að bæta vippin, u.þ.b. 10-50 metra. Hvað er það sem þú ætlar helst að bæta í sumar? Stutta spilið. Hvert er eftirminnilegasta atvikið sem þú manst eftir úr golfi? Það er þrennt sem kemur í hugann. Þegar ég og Hekla Sóley vorum að keppa saman í sveitakeppninni árið 2011 í Leirunni. Ef ég man það rétt þá vorum við 8 undir eftir 9 holur en unnum leikinn í bráðabana. Þegar ég fékk bolta í hausinn í þéttri þoku á Hvaleyrinni og síðast en ekki síst þegar við stelpurnar í GK unnum tvöfaldan sigur í sveitakeppninni á Flúðum árið 2013. Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í á golfvellinum? Ég man ekki eftir einhverju sérstöku en þó er alltaf vandræðalegt að hugsa til baka þegar ég keppti á Áskorendamótaröðinni fyrir nokkrum árum og rak bæði mömmu og pabba á sama hring sem kylfubera út af skapinu í mér. Hverjir eru uppáhalds kylfingarnir og af hverju? Tiger Woods, hann er alveg með þetta. Í hvaða skóla ertu og hvernig gengur í náminu? Nýútskrifuð úr Lækjarskóla á leiðinni í MR. Námið gengur vel. Hvað æfir þú mikið í hverri viku? Mjög misjafnt. Á veturna æfi ég þrisvar sinnum í viku með þjálfara og eitthvað aðeins aukalega. Á sumrin reynir maður að vera á golfvellinum hvern einasta dag en það fer eftir ýmsu hversu lengi maður er. Hver er uppáhalds golfvöllurinn og hvers vegna? Ég held að uppáhalds golfvöllurinn minn sé heimavöllurinn. Hvaleyra- völlur hefur einfaldlega upp á margt að bjóða og mér þykir alltaf gaman að spila þar. Einnig elska ég að koma til Eyja og taka 18 holur. Frábær golfvöllur þar sem náttúran fær að njóta sín. Hvaða þrjár golfholur á Íslandi eru í sérstöku uppáhaldi hjá þér? 15. holan á Oddi, 11. holan á Hvaleyravelli og 17. holan í Eyjum. Hvaða fjórir kylfingar skipa draumaráshópinn að þér meðtaldri? Væri til í að spila Texas með Þóru Ragnars úr GK í liði á móti Tiger Woods og Barack Obama. Hver eru helstu áhugamál fyrir utan golf? Fótbolti og íþróttir almennt. Síðan er ekkert leiðinlegt að ferðast hérlendis og erlendis. STAÐREYNDIR: Nafn: Melkorka Knútsdóttir Aldur: 15 ára Klúbbur: GK Forgjöf: 12,8 Uppáhalds matur: Rjúpur, humar og pizza Uppáhalds drykkur: Vatn Uppáhalds kylfa: Pútter Ég hlusta á: Allt mögulegt Besta skor: 84 Rory McIlroy eða Tiger Woods? Tiger Woods Strand- eða skógarvellir? Skógarvellir Besta vefsíðan: Facebook Besta blaðið: Golf á Íslandi Besta bókin: The Divergent og Grafarþögn Besta bíómyndin: Gæti aldrei valið eina en t.d. Casino Royale, Slumdog Millionaire, Shaws- hank Redemption og Hangover 1 Hvað óttastu mest í golfinu? Að slá golfbolta í rúðu og brjóta hana Golfpokinn: Poki: Titleist Dræver: King Cobra Brautartré: Callaway Legacy Blendingur/Hybrid: Mizuno MP Járn: Mizuno MX 200 Fleygjárn: Mizuno MX 200 Pútter: Scotty California Del Mar Hanski: FootJoy Skór: Ecco Biom C M Y CM MY CY CMY K Hertz_Golf_2014_005_OK_Lokautg.pdf 1 16.4.2014 11:39:10
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Golf á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.