Golf á Íslandi - 01.07.2014, Side 142
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
142
Spurðu sérfræðinginn
ÉG SPILAÐI Á
14 UNDIR PARI
– LÆGSTA SKORI
SEM HEFUR
VERIÐ SKRÁÐ
Hvernig á að halda saman góðum hring?
Ræðum málin við Bretann sem spilaði par-73
völl á undir 60 höggum.
Á þessum
tímapunkti
var Richard
einu höggi
frá því að
komast í sögu-
bækurnar.
Sérfræðing-
urinn:
Richard Wallis,
32 ára. Hann er
golfkennari á
North Foreland
vellinum í Kent.
Tilkall hans til
frægðar: Spilaði
á lægsta skori
miðað við par
í keppni, þegar
hann spilaði á 59
höggum í Virgin
PGA South Open
meistaramótinu
(Pro/Am) á Drift
vellinum í Surrey.
Fylgstu með
Richard á Twitter
@richie59wallis
Á evrópsku mótaröðinni hefur
skorið 59 aðeins verið skráð sex
sinnum. En þegar Richard Wallis,
32 ára gamall atvinnumaður fékk
tíu fugla, tvo erni og sex pör á velli
þar sem parið er 73, þá setti hann
markið enn hærra. Við báðum hann
að deila með okkur leyndarmál-
inu að því að halda saman góðum
hring...
Hversu góður ertu?
Ég er búinn að sigra á meira en 100
mótum atvinnumanna og hef orðið
efstur á peningalistanum fyrir suður-
svæðið á Bretlandi síðustu tvö ár. Ég
hef líka spilað á nokkrum mótum á
evrópsku mótaröðinni og þar ætla
ég að reyna að komast betur að. Mig
langar til að spila reglulega á móta-
röðinni og taka þátt í risamótum.
Hefurðu spilað á undir 60 áður?
Nokkrum sinnum já, en þetta var
í fyrsta skiptið sem mér tókst það í
móti og á par 73 velli.
Hvernig undirbýrðu þig?
Maður verður að geta sett boltann
á réttan stað í hvert skipti til að geta
slegið beint á flaggið. Ég er þess
vegna með leikáætlun fyrir hverja
einustu holu áður en ég byrja. Ég gríp
ekki bara drífarann og reyni að koma
boltanum niður á braut, heldur vel
ég kylfuna til að setja boltann hægra
megin, um það bil 130 metra frá
pinna.
Hvernig undirbýrðu höggið?
Ég kem að boltanum – slekk á
öllum öðrum hugsunum, sé fyrir
mér höggið sem ég vil slá, stíg að
boltanum, hugsa um skotmarkið
og boltaflugið, og slæ síðan. Það er
ómögulegt fyrir hvern mann að halda
einbeitingu í fjóra fimm klukku-
tíma, og þess vegna er svo mikilvægt
að slaka á milli högga. Ég rabba við
spilafélagana eða hugsa um eitthvað
annað. Svo kem ég að boltanum, næ
einbeitingunni aftur og fer í gegnum
ferlið.
En það hlýtur að vera erfitt að
hugsa um eitthvað annað þegar þú
er kominn níu undir par eftir tíu
holur?
Þarna verður það svo mikilvægt að
geta tekið eitt högg í einu. Það skiptir
ekki máli hvort maður er níu undir
eftir tíu holur, með forystu á loka-
holunni eða bara að ljúka þokkalega
góðum hring á venjulegum degi. Ef
þú getur haldið þig við þitt undirbún-
ingsferli og venjur, þá hjálpar það til
að halda niðri spennunni og óttanum
við að mistakast.
Eftir fjórtán holur varstu kominn
ellefu undir par. Á fimmtánda teig,
par 4 holu, reyndir þú að stytta þér
leið yfir trjálínuna, beint inn á flöt.
Hvað varstu að hugsa?
Haha! Ég sá þetta ekki svona. Ég var
einfaldlega kominn á þá holu þar
sem ég ætlaði mér alltaf að slá svona
högg. Það er þetta sem ég á við, þegar
ég tala um að halda sig við leikskipu-
lagið. Það er lykillinn að því að ná
góðu skori. Ef þú ert sáttur við það
leikskipulag, þá skiptir ekki máli
hvort þú ert að spila vel eða ekki.
Ekki gleyma því að á þessari holu
endaði teighöggið rúma þrjá metra
frá holu og ég setti púttið í fyrir erni...
Á næstu holu misstirðu hins vegar
eins og hálfs metra pútt fyrir fugli.
Varstu farinn að hafa áhyggjur af
því að ná ekki undir sextíu?
Nei, í rauninni ekki, því það þýðir
ekkert að hafa áhyggjur af því sem
er búið og gert. Ef maður er alltaf að
rifja upp misheppnuð pútt eða slæm
högg, þá hjálpar það ekki til við að
ná góðu skori. Já, ég missti stutt pútt,
en ég lét það ekki á mig fá. Ég átti á
þessum tíma ennþá tvö tækifæri til að
fá fugl og komast í 59.
Þú endaðir með tveggja og hálfs
metra langt pútt fyrir fugli á 18 flöt.
Það hlýtur að hafa verið stressandi.
Já vissulega, en ég var frekar að ein-
beita mér að því að setja púttið niður
en að spila á 59. Ég sagði sjálfum
mér að ég stæði frammi fyrir stuttu
pútti sem myndi brotna frá vinstri til
hægri. Ég minnti sjálfan mig líka á
að ég setti niður u.þ.b. 95% af öllum
svona púttum. Ég fór í gegnum undir-
búningsferlið – setti púttið niður – og
byrjaði að fagna.
Skorkortið. 29 högg á fyrri níu settu tóninn fyrir methring Richards.
Hole 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Front 10 11 12 13 14 15 16 17 18 Back Total
Par 4 4 3 4 5 4 4 5 4 37 5 3 4 4 4 4 3 4 5 36 73
Score 3 4 3 3 3 3 3 4 3 29 4 3 4 3 3 2 3 4 4 30 59