Golf á Íslandi - 01.05.2015, Page 28
Guðjón stefnir á að klára meistarapróf í stjarneðlisfræði í haust. Hann hefur
lítið getað einbeitt sér að golfíþróttinni undanfarin misseri vegna námsins
en hann fór m.a. í hálft ár til Helsinki í Finnlandi.
Eins og áður segir hefur „fókusinn” hjá
Guðjóni verið á náminu á undanförnum
misserum en hann ætlar að rifja upp
„golftaktana” í sumar þegar Eimskips
mótaröðin hefst að nýju.
„Ég kom heim s.l. vor úr framhaldsnáminu
í Finnlandi og ég var þá lítið sem ekkert
búinn að spila golf í heilt ár. Ég tók þátt í
nokkrum mótum á Eimskipsmótaröðinni
en ég var lengi í gang og var í raun enn
ryðgaður í ágúst. Áhuginn var að kvikna
aftur á þeim tíma og mig langaði þvílíkt
mikið að spila áfram eftir s.l. sumar. Það var
bara ekki hægt þar sem námið er krefjandi
og fótboltameiðsli settu strik í reikninginn.
Ég var „klipptur” niður aftanfrá í fótboltaleik
enda er það eina leiðin til þess að stöðva
mig,” bætti Guðjón við í léttum tón.
Stjarneðlisfræðineminn ætlar að láta
reyna á golfhæfileikana að nýju þegar sólin
hækkar á lofti. „Ég hef eiginlega ekkert
æft frá því í fyrra - en ég ætla að taka upp
þráðinn eftir prófin í apríl og sjá hvernig
staðan er á mér. Og hvort ég eigi eitthvað
erindi í þetta aftur.”
Guðjón Henning segir að hann sé ekki að
hugsa um geimryk, stjörnur og blossa þegar
hann slær kúluna hvítu á golfvellinum.
„Það er frekar einfalt að „kúpla” sig út úr því
sem ég er að gera flesta daga úti á golfvellinum.
Það sem ég er að rannsaka er eitthvað sem
við sjáum ekki. Verkefnið sem ég er að vinna
að heitir „fast radio bursts” - sem eru örstuttir
blossar sem sjást bara í útvarpsbylgjum. Við
sjáum þessa blossa ekki með berum augum
þannig að þetta er ekkert að trufla mig þegar
ég er að leika golf. Ef ég tek útvarpssjónaukann
út á völl gæti ég kannski „misst” fókusinn á
golfið. Ég get hvort sem er ekki hugsað um
marga hluti í einu.”
Kylfingurinn segir að hann hafi lagt stærstu
golfdraumana á hilluna í bili - þar sem
erfitt sé að vera með marga bolta á lofti
í einu. „Ég býst við að fara á næsta ári í
doktorsnám í stjarneðlisfræði - vonandi
tekst mér að komast til Evrópu í það nám.
Í versta falli enda ég í Bandaríkjunum. Það
er erfitt að vera með ofurmetnað í golfinu
samhliða krefjandi námi. Ég vil gera hlutina
vel. Markmið sumarsins er að geta strítt
einhverjum af þessum ungu kylfingum á
Eimskipsmótaröðinni. Ég er nú reyndar
ekki nema 27 ára gamall en telst vera á
meðal þeirra „gömlu” í þessu núna. Það eru
ótrúlega margir spennandi ungir kylfingar
að koma upp og ég ætla að reyna að „stríða”
þeim aðeins. Stefnan er sett á að leika á
nokkrum mótum á Eimskipsmótaröðinni og
að sjálfsögðu á Íslandsmótinu,” sagði Guðjón
Henning Hilmarsson.
Stjarneðlisfræðin
nýtist ekkert í golfinu
Það er erfitt að vera með ofurmetnað í golfinu samhliða
krefjandi námi. Ég vil gera hlutina vel.
Markmið sumarsins er að geta strítt einhverjum af
þessum ungu kylfingum á Eimskipsmótaröðinni.
Nei, stjarneðlisfræðin nýtist mér ekkert í
golfinu. Ég veit um bók sem fjallar um golf
og eðlisfræði en ég hef aldrei sett mig inn
í það. Þar er eflaust eitthvað áhugavert
að finna sem snýr að eðlisfræði og
golfíþróttinni,” segir Guðjón Henning
Hilmarsson úr GKG en hann hefur
einbeitt sér að námi í stjarneðlisfræði
á undanförnum misserum eftir að
hafa leikið með A-landsliði Íslands á
árunum 2012-2013. Það eru ekki margir
stjarneðlisfræðingar í heiminum og
örugglega ekki margir afrekskylfingar
sem hafa slíka menntun.
„Eðlisfræðikennarinn
minn í Verslunar
skólanum er sjálfur
stjarneðlisfræðingur
– og hann vakti
áhuga hjá mörgum
okkar á eðlisfræði og
stjarneðlisfræði. Þar
kviknaði þessi áhugi.”
ÞARFTU
AÐ GEYMA
GAMLA SETTIÐ
OG UPPSTOPPAÐA
FUGLA?
WWW.GEYMSLA24.IS
GEYMSLA24 | Skemmuvegi 4 | 200 Kópavogur
28 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Stjarneðlisfræðin nýtist ekkert í golfinu