Golf á Íslandi - 01.05.2015, Side 58

Golf á Íslandi - 01.05.2015, Side 58
Um þúsund kylfingar eru á Suðurnesjum. Meira jafnræði er með öðrum land svæðum samkvæmt athugun Golfs á Íslandi. Á höfuðborgarsvæðinu eru 23% stjórnarmanna konur, 24% á Norðaustur landi og Austurlandi, 21% á Norðvestur landi, 18% á Suðurlandi, og 17% á Vesturlandi. Hugnast ekki kynjakvóti Þegar staldrað er við niðurstöður Golfs á Íslandi um hlutfall kynja í stjórnum golfklúbba á Íslandi velta eflaust einhverjir því fyrir sér hvers vegna konur eru aðeins fimmtungur stjórnarmanna? Ein skýring sem nefnd hefur verið er að konur eru aðeins 28% af félögum í Golfsambandi Íslands. Karlar eru enn mun fjölmennari hópur innan golfhreyfingarinnar og því kannski eðlilegt að karlar séu fjölmennari við stjórnarborðið. Fjölga þarf konum í stjórnum golfklúbba um tæplega 10% til að fjöldi þeirra endurspegli fjölda aðildarfélaga GSÍ. Sú leið sem golfklúbbar landsins gætu farið til að efla stöðu kvenna við stjórnarborðið er að innleiða svokallaðan „kynjakvóta“. Í marsmánuði árið 2010 setti Alþingi lög um að lágmark 40% hvors kyns skuli sitja í stjórnum fyrirtækja með fleiri en 50 starfsmenn. Hefur „kynjakvótinn“ skilað ágætum árangri. Í þeim viðtölum sem undirritaður átti við kvenformenn og aðra aðila innan golfhreyfingarinnar virðist hins vegar mjög lítil stemmning fyrir að fara þá leið. Ástfríður Sigurðardóttir, formaður Golfklúbbsins á Selfossi, segir að helst þurfi að skapa meiri umræðu hjá konum um að sækjast eftir að sitja í stjórnum golfklúbba. Hvort fámenni kvenna í stjórnum golfklúbba sé vandamál eða ekki skal ósagt látið. Ljóst er að hlutfall kvenna í stjórnum golfklúbba mætti vera mun hærra í sumum landshlutum - það kemur glögglega í ljós í athugun Golfs á Íslandi. Innlegg kvenna í golfíþróttina er mikilvægt því þær sjá hlutina oft með öðrum augum og hafa aðrar áherslur en karlar. Það bætir hvern golfklúbb til muna að sterkar kvenmannsraddir ómi við stjórnarborðið. Tækifærið er þeirra - okkar íslensku kvenna. himneskt.is vökvi lífsins kókoshnetuvatn frískandi svaladrykkur, beint úr brunni náttúrunnar! Náttúrulegur drykkur sem slekkur þorstann, unninn úr lífrænt rækt- uðum kókoshnetum. Án allra aukefna, mjólkursykurs, kólesteróls og rotvarnarefna. Stútfullur af nauðsynlegum amínósýrum. Einungis unnið úr safa ungra grænna kókoshneta „Eðlilegt að hlutfall kvenna endur spegli fjölda þeirra í íþróttinni“ – segir Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsambands Íslands „Út frá tölfræðilegu sjónarmiði þætti mér eðlilegt ef hlutfall kvenna í stjórnum golfklúbba væri það sama og hlutfall þeirra af heildarfélagsmönnum í golfhreyfingunni. Það væri lógískt. Það vekur því furðu hvers vegna hlutfallið er lægra,“ segir Haukur Örn Birgisson, forseti GSÍ. „Ef til vill má finna skýringuna í því að konum í golfi hefur fjölgað mikið undanfarin 10 ár en fólk sækist ef til vill ekki eftir stjórnarsætum fyrr en það hefur verið félagi í klúbbnum í nokkur ár. Þetta mun því vafalaust breytast á næstu árum þannig að hlutur kvenstjórnenda endurspegli fjölda kvenna í golfi. Konur hafa alveg jafn mikið til málanna að leggja og karlar þegar kemur að rekstri golfklúbba. Þær mega því vera duglegri við að bjóða fram krafta sína. Árið 2013 var samþykkt ný og öflug stefna fyrir golfhreyfinguna. Á meðal stefnumála er að auka áhuga kvenna enn frekar á íþróttinni. Það er í sjálfu sér ekki yfirlýst markmið GSÍ að fjölga konum í stjórnum, ég held að það gerist bara af sjálfu sér um leið og kvenkylfingum fjölgar. Ég hef því ekki stórar áhyggjur af þessu þótt vissulega megi fjölgunin vera hraðari. Lykilatriðið er að allir félagsmenn mega bjóða sig fram til stjórnarsetu og það er síðan undir félagsmönnunum komið að kjósa stjórnarmenn. Bæði konur og karlar mættu vera duglegri við að taka að sér störf fyrir sinn golfklúbb, því margar hendur vinna létt verk. Golfklúbbarnir geta ekki lifað án félagsmannanna eða sjálfboðaliðanna og það þarf að vinna markvisst að fjölgun þessara aðila – karla og kvenna.“ „Markmiðið að fá konu inn í stjórn“ – segir Halldór Smárason, formaður GG „Hjá Golfklúbbi Grindavíkur hafa bara setið tvær konur í stjórn eftir því sem að ég best veit. Ég veit ekki hverju er um að kenna. Ástæðurnar eru eflaust margvíslegar og klassískt svar er að konan eyðir frítíma sínum í að sinna börnum og búi. Það eru hins vegar engin rök árið 2015,“ segir Halldór Einir Smárason, formaður Golfklúbbs Grindavíkur. Engin kona situr í stjórn klúbbsins í dag. „Ég veit ekki hvernig þetta er hjá íþróttahreyfingunni í heild en grunur minn er sá að konur sinni meira stjórnar störfum hjá kvennadeildum innan félaganna. Fámenni kvenna í golfinu í Grindavík hefur haft sitt að segja um dræma þátttöku í stjórn klúbbsins. Án kvenna í stjórn félaga verða áherslurnar karllægari hvað sem hver segir. Mín tilfinning er líka sú að konur nálgast golfið á annan hátt en karlar. Vonandi sjáum við fleiri konur í stjórn GG á komandi árum, og mætti jafnvel setja núverandi stjórn GG það markmið að fá konu í stjórn.“ 58 GOLF.IS - Golf á Íslandi Konur 20% stjórnarmanna golfklúbba landsins
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Golf á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.