Golf á Íslandi - 01.05.2015, Síða 88
Æfðu stutta spilið
Tilfinningin fyrir stutta spilinu í kringum flatirnar og á
flötunum er oft „ryðguð” eftir vetrardvalann. Þetta á einnig við
um þá sem hafa æft vel fyrir vetrartímann - því það er mikill
munur á því að leika á náttúrulegu grasi og gervigrasi.
Góður fatnaður
Það styttist í sumarið en íslenska vorveðrið getur oft bitið í og
verið blautt og kalt. Það er betra að klæða af sér kuldann með
því að vera í mörgum þunnum flíkum í stað þess að klæðast
þykkum fatnaði sem hindrar hreyfingarnar í golfsveiflunni.
Leitaðu til PGA kennara
Það er auðvelt að festast í fari sem erfitt er að komast upp
úr. Fáðu PGA kennara til að fara yfir helstu grunnatriðin.
Gripið, stöðuna, líkamsstöðu, boltastöðu, jafnvægi og miðið.
Æfingarnar verða mun markvissari og skemmtilegri í kjölfarið.
Þetta á jafnt við um þá sem eru með lága eða háa forgjöf.
Mæling hjá fagmanni
Það getur borgað sig að fá fagmann til að mæla þann útbúnað
sem þú ert með í notkun nú þegar - áður en fjárfest er í
nýjum útbúnaði. Kylfurnar eiga að henta þeim líkamlegum
eiginleikum sem þú býrð yfir, sveifluhraða, líkamsstyrk og
öðrum þáttum sem skipta máli þegar kemur að vali á réttum
útbúnaði.
Góð tilboð
Það eru alltaf góð tilboð í gangi hjá golfverslunum landsins
og þá sérstaklega þegar nýjar kylfur eru kynntar til leiks. Það
borgar sig að fylgjast vel með og landa hagstæðum tilboðum.
Skynsemi
Það þarf ekki alltaf að endurnýja allt settið. Fleygjárnin
þarfnast endurnýjunar oftar en aðrar kylfur - og mikilvægt að
þær séu ekki með slitnum höggfleti. Einnig er vert að skoða
hvort það vanti kylfur til þess að fylla upp í göt í högglengdinni.
Það getur oft breytt miklu að bæta einni kylfu í safnið.
Fjölbreytt leikform
Það getur oft breytt miklu að prófa nýtt leikform til þess að ná
fram leikgleðinni og „hungrinu” í golfíþróttinni. Fjórbolti, Texas
Scramble og holukeppni eru allt góðar leiðir til þess að brjóta
upp hið hefðbundna mynstur í punktakeppni eða höggleik.
golf.is
Það er nauðsynlegt að fara yfir upplýsingarnar sem skráðar
eru um þig á golf.is. Er forgjöfin rétt, heimilisfang, klúbbur?.
Það er ekki góð upplifun að fara með ranga forgjöf eða vera
skráður í rangan klúbb í fyrsta golfmóti ársins.
Hlustaðu á líkamann
Það eru margir vöðvar sem við notum í golfsveiflunni sem
liggja í dvala yfir veturinn. Það er mikilvægt að meiðast ekki
í upphafi tímabilsins og því nauðsynlegt að gera æfingar sem
nýtast í golfsveiflunni. Samhæfing, jafnvægi og styrkur koma
þar við sögu - leitaðu til fagaðila sem gefur þér góð ráð á þessu
sviði.
Þolinmæði
Það er nauðsynlegt að sætta sig við að getustigið er oft ekki í
hámarki á vorin þegar fyrstu golfhringirnir eru leiknir. Njóttu
þess að vera úti að slá á grasi, sjá boltann fljúga, og andaðu að
þér ferska loftinu. Vallaraðstæður eiga einnig eftir að batna og
það er því um að gera að njóta og sýna þolinmæði.
Níu holur er valkostur
Það er ekki alltaf nauðsynlegt að leika 18 holur. Margir
golfklúbbar bjóða upp á 9 holu hringi - það tekur styttri tíma
og er prýðisæfing. Það er góð lausn að leika golf í rúmlega 1 ½
klukkustund.
Settu þér markmið
Það er nauðsynlegt að setja sér markmið til þess að bæta árangurinn
í golfinu. Skráðu tölfræðina, hittar brautir, hittar flatir, fjölda
pútta. Þar með færðu betri yfirsýn um veikleika og styrkleika í leik
þínum. Það leiðir af sér að auðveldara er að setja upp markvissa
æfingaáætlun til þess að ná enn lengra.
12 ráð
í upphafi tímabils
88 GOLF.IS