Golf á Íslandi - 01.05.2015, Síða 90
Hver er ástæðan fyrir því að þú hófst að
leika golf? Foreldrar mínir skráðu mig á
golfnámskeið, og svo vildi ég bara ekki
hætta eftir það.
Hvað er það sem heillar þig við golf?
Það er eitthvað sem ég er góð í, og mér
finnst svakalega gaman að sjá hvað
mikið ég get bætt mig ef ég vinn fyrir
því.
Hverjir eru þínir framtíðardraumar í
golfinu? Að komast eins langt og ég get.
Hefur þú verið að bæta þig mikið í
golfinu á undanförnum árum?
Ég tók mér pásu í tvö ár, síðastliðið
sumar var fyrsta sumarið sem ég spilaði
aftur, og miðað við það finnst mér ég
hafa bætt mig frekar mikið.
Hver er þinn helsti kostur og galli í
golfinu og hvers vegna?
Ég get orðið mjög einbeitt þegar ég er
stressuð, en ég hugsa of mikið fram í
tímann.
Hvað ætlar þú að bæta í þínum leik
fyrir næsta sumar? Ég ætla að vera
ákveðnari í stutta spilinu.
Hvert er eftirminnilegasta atvikið sem
þú manst eftir úr golfi? Þegar ég var að
keppa á Borgarnesi þegar ég var 10 ára.
Regnhlífin okkar eyðilagðist á þriðju
holu, við fórum allar átján og það rigndi
allar átján holurnar.
Hvað er það vandræðalegasta sem þú
hefur lent í á golfvellinum?
Þegar systir mín vann mig á átjándu
holu á Íslandsmótinu í sumar.
Hverjir eru uppáhaldskylfingarnir og af
hverju? Phil Mickelson, ég bara veit ekki
af hverju.
Hvað æfir þú mikið yfir vetrartímann?
Eins mikið og ég get.
Hver er uppáhalds golfvöllurinn og
hvers vegna? Leiran, ég þekki hann
best.
Hvaða þrjár golfholur á Íslandi eru í
sérstöku uppáhaldi hjá þér?
2. á Oddi, 7. í Leirunni, og 10. á Akureyri.
Hvaða golfhola á Íslandi er ekki í
sérstöku uppáhaldi hjá þér?
1. á Hellu.
Hvaða fjórir kylfingar skipa drauma
ráshópinn að þér meðtöldum?
Tom Watson, Phil Mickelson, Ian Poulter.
Hver eru helstu áhugamál fyrir utan
golf? Aðallega að teikna og lesa.
Staðreyndir:
Nafn: Zuzanna Korpak.
Aldur: 14 ára.
Klúbbur: GS
Forgjöf: 13,7.
Uppáhaldsmatur: Allt sem mamma
eldar.
Uppáhaldsdrykkur: Mjólk.
Uppáhaldskylfa: 9 járnið.
Ég hlusta á: Ed Sheeran, Imagine
Dragons, Lana Del Rey, Pink.
Besta skor: 80 á Korpúlfsstöðum.
Besta vefsíðan: YouTube og Wattpad.
Besta blaðið: Golf á Íslandi.
Besta bókin: After- Anna Todd og
Eragon.
Besta bíómyndin: The Amazing
Spiderman 2.
Hvað óttastu mest í golfinu: Að systir
mín vinni mig.
Ung og efnileg
Zuzanna Korpak
Ljúffengar múslístangir með súkkulaði, banana og hnetum.
SLÁANDI GOTT MILLIMÁL ÞEGAR ÞIG VANTAR SMÁ AUKA ...
freyja.is
Fáðu smá auka
kraft í sveifluna
38
01
-F
R
E
–
V
E
R
T.
IS
90 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Ung og efnileg