Golf á Íslandi - 01.05.2015, Síða 92
Hver er ástæðan fyrir því
að þú ert í golfi? Golf er bara
svo rosalega skemmtileg og
spennandi íþrótt.
Hvað er skemmtilegast við
golfið? Æfa og spila með vinum
mínum.
Framtíðardraumarnir í golfinu?
Bestur í heimi og vinna Fed-Ex
listann.
Hver er styrkleikinn þinn í
golfi? Drive-in.
Hvað þarftu að laga í þínum
leik? Púttin.
Hvað er það eftirminnilegasta
sem hefur gerst hjá þér í golfi?
Klúbbmeistari GKj.
Hvað er vandræðalegasta
atvikið á golfvellinum hjá þér?
Man ekki eftir neinu.
Draumaráshópurinn? Rory,
Tiger og Rickie Fowler.
Uppáhaldsgolfvöllurinn og
hvers vegna? Álamos, Portúgal.
Ekki langur og breiðar brautir,
mjúkar flatir og margar
glompur.
Hvaða þrjár golfholur eru í
uppáhaldi hjá þér og hvers
vegna?
9. á Flúðum. Mikill
hæðarmismunur. 9. Morgado,
stutt og hægt að dræva inná
flötina og 17. á Hellishólum.
Geggjuð par 3 hola.
Hvaða áhugamál hefur þú fyrir
utan golf? Fótbolta.
Í hvaða skóla og bekk ertu?
Lágafellsskóla, 6. MLG.
er geggjuð
par 3 hola
á Hellis
hólum
Sveinn Andri lækkaði sig
um 21 í forgjöf á síðasta ári
Sveinn Andri Sigurpálsson, nemandi
í 6. bekk í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ,
náði ótrúlegum framförum í golfinu á
síðasta ári. Kylfingurinn efnilegi sem
er í Golfklúbbi Mosfellsbæjar lækkaði
sig um tæplega 21 í forgjöf á síðasta
ári samkvæmt gögnum frá golf.is -
og er hann sá kylfingur landsins sem
sýndi mestar framfarir hvað forgjöfina
varðar. Sveinn Andri hefur lagt hart að
sér við æfingar í vetur og er líklegur til
að bæta sig enn frekar á golfsumrinu
2015. Golf á Íslandi fékk Svein Andra
til að svara nokkrum spurningum
en hann er með skýr markmið - að
verða á meðal bestu kylfinga í heimi
og vinna Fed-Ex úrslitakeppnina á
PGA mótaröðinni.
Staðreyndir:
Nafn: Sveinn Andri
Sigurpálsson.
Aldur: 11.
Forgjöf: 12,2.
Uppáhaldsmatur:
Kjúklingasnitsel.
Uppáhaldsdrykkur: Vatn.
Uppáhaldskylfa: 50 gráður.
Ég hlusta á: Sam Smith.
Besta skor í golfi: 75 +2.
Rory McIlroy, Tiger Woods
eða Jordan Spieth? Jordan
Spieth.
Besta vefsíðan: kylfingur.is.
Besta blaðið: Golf á Íslandi.
Hvað óttast þú mest í golfinu:
Ekki neitt.
Dræver: Ping Anser.
Brautartré: Snake Eyes.
Blendingur: Snake Eyes.
Járn: Ping s56.
Fleygjárn: Adams.
Pútter: Ping.
Hanski: Srixon.
Skór: Adidas.
Golfpoki: Cobra.
Kerra: Sun Mountain.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
4
7
9
2
Icelandair hótel Hamar - alvöru íslenskt golfhótel
REYKJAVÍK NATURA REYKJAVÍK MARINA Í KEFLAVÍK FLÚÐIR KLAUSTUR HÉRAÐ AKUREYRI HAMAR
Icelandair hótel Hamar, Borganesi
Nánari upplýsingar og bókanir: icelandairhotels.is eða í síma 433 6600
Hamarsvöllur er skemmtilegur 18 holu golfvöllur staðsettur í gullfallegu umhverfi á söguslóðum í Borgarnesi. Icelandair hótel
Hamar er glæsilegt hótel þar sem gestir njóta einstakrar kyrrðar og snæða ljúfmeti sem framreitt er úr hráefni úr héraði. Af
hótelinu er gengið beint út á golfvöllinn. Staðsetningin, aðstaðan og frábær tilboð á golfi og gistingu gera Icelandair hótel
Hamar að draumaáfangastað golfarans, hvort sem um ræðir golfhelgi með ástinni eða heimsóknir stærri hópa.
Verið velkomin á Icelandair hótel Hamar.
92 GOLF.IS