Golf á Íslandi - 01.05.2015, Side 106
Það er stuttur akstur á East Sussex National golfsvæðið frá Gatwick
flugvelli eða um 40 mínútur. Golfsvæðið er, eins og nafnið ber með sér,
staðsett í Sussex sýslu í Suður-Englandi. Hótelið er stórt og telur 104
herbergi. Strax við fyrstu sýn má sjá að þetta er fyrsta flokks golfsvæði
sem var tekið í notkun árið 1990.
Frábærir keppnisvellir
Fyrir flesta golfáhugamenn skipta gæði
golfvalla öllu máli þegar haldið er út fyrir
landssteinana í golfferð. Óhætt er að
mæla með East Sussex National því báðir
golfvellirnir eru frábærir og um margt ólíkir.
Vellirnir eru hannaðir af Robert E. Cupp
og eru báðir á lista yfir 100 bestu golfvelli
Englands.
Austur-völlurinn er alvöru keppnisvöllur
og hefur margoft verið leikið á vellinum í
sterkum atvinnumannamótum. Völlurinn
var hannaður með keppnisgolf í huga og
skartar mörgum frábærum golfholum.
Austur-völlurinn er skemmtilega hannaður
skógarvöllur - um 6.530 metrar að lengd.
Meðalkylfingurinn lætur sér nægja að leika
völlinn af fremri teigum eða um 5.500
metrar. Vandað var til verka í hönnun
vallarins því nánast hver einasta braut
hans er eftirminnileg. Lokaholurnar eru
mjög minnisstæðar og þá sérstaklega 17.
brautin sem er glæsileg 410 metra par-4
braut þar sem reynir á nákvæmni kylfinga
og skynsemi.
Ég stóð í þeirri meiningu í upphafi ferðar
minnar á East Sussex National að Vestur-
völlurinn væri eins konar litli bróðir
Austur-vallarins. Svo er alls ekki. Raunar
eru margir á þeirri skoðun að Vestur-
völlurinn sé bæði fallegri og skemmtilegri
viðureignar en Austur-völlurinn og má
vel fallast á þau rök. Besta braut vallarins
er án nokkurs vafa hin frábæra 12. braut.
Lækur rennur í gegnum þessa par-5 braut og
breytist í vatn við flötina. Stórglæsileg braut
og flötin sömuleiðis. Sé upphafshöggið gott
hrópar næsta högg á áhættu. Lokaholurnar
á Vestur-vellinum eru jafnframt
stórskemmtilegar. Saman mynda þessir tveir
vellir tvíeyki sem fá golfsvæði á Englandi
standast snúning.
Aðstaða fyrsta flokks
Mikið er lagt í golfsvæðið á East Sussex
National og má þar fyrst nefna að
æfingaaðstaðan er fyrsta flokks. Klúbbhúsið
er sambyggt hótelinu og þar er golfverslun,
geymsla fyrir golfbúnað, veitingastaður, að
ógleymdri 19. holu vallarins sem er barinn
í klúbbhúsinu og tíður viðkomustaður
kylfinga.
Hótelið er fimm stjörnu og herbergin mjög
rúmgóð. Þrír veitingastaðir eru á hótelinu
og maturinn góður. Fleira er hægt að gera
á East National Sussex en að spila golf því
á hótelinu er mjög vönduð heilsulind sem
óhætt er að mæla með. Hótelgestir hafa
aðgang að líkamsræktarstöð, sundlaug,
heitum pottum, gufuböðum o.fl. Hægt
er að panta sér nudd eða heilsumeðferð í
heilsulindinni sem margir kjósa að nýta
sér. Það er svo sannarlega góður kostur eftir
baráttu við tvo krefjandi keppnisvelli.
Stutt til Brighton
Það er óneitanlega kostur að hægt er að
brjóta upp golfferð til East Sussex National
með því að skella sér til borgarinnar
Brighton sem er í aðeins hálftíma
aksturfjarlægð. Brighton er stórskemmtileg
og falleg borg við sjávarsíðuna á suðurströnd
Englands sem ávallt er gaman að
heimsækja.
Í stuttu máli þá prýðir East Sussex National
golfsvæðið alla þá kosti sem kylfingar
sækjast eftir. Golfvellirnir eru glæsilegir,
krefjandi en henta þó breiðu getustigi
kylfinga. Hótelið er mjög gott og þjónusta
starfsmanna framúrskarandi. Það fer enginn
svekktur frá East Sussex National.
Saman mynda
þessir tveir vellir
tvíeyki sem
fá golfsvæði á
Englandi standast
snúning.
Vestur-völlurinn á East Sussex National.
Hér er litið yfir 12. braut vallarins sem er frábær par-5 braut.
Vatn setur mark sitt á lokaholurnar á
Austur-vellinum. Hér má sjá yfir 16. flötina
sem er mjög skemmtileg par-3 braut.
Allir kátir með par.
106 GOLF.IS - Golf á Íslandi
East Sussex National