Golf á Íslandi - 01.05.2015, Page 106

Golf á Íslandi - 01.05.2015, Page 106
Það er stuttur akstur á East Sussex National golfsvæðið frá Gatwick flugvelli eða um 40 mínútur. Golfsvæðið er, eins og nafnið ber með sér, staðsett í Sussex sýslu í Suður-Englandi. Hótelið er stórt og telur 104 herbergi. Strax við fyrstu sýn má sjá að þetta er fyrsta flokks golfsvæði sem var tekið í notkun árið 1990. Frábærir keppnisvellir Fyrir flesta golfáhugamenn skipta gæði golfvalla öllu máli þegar haldið er út fyrir landssteinana í golfferð. Óhætt er að mæla með East Sussex National því báðir golfvellirnir eru frábærir og um margt ólíkir. Vellirnir eru hannaðir af Robert E. Cupp og eru báðir á lista yfir 100 bestu golfvelli Englands. Austur-völlurinn er alvöru keppnisvöllur og hefur margoft verið leikið á vellinum í sterkum atvinnumannamótum. Völlurinn var hannaður með keppnisgolf í huga og skartar mörgum frábærum golfholum. Austur-völlurinn er skemmtilega hannaður skógarvöllur - um 6.530 metrar að lengd. Meðalkylfingurinn lætur sér nægja að leika völlinn af fremri teigum eða um 5.500 metrar. Vandað var til verka í hönnun vallarins því nánast hver einasta braut hans er eftirminnileg. Lokaholurnar eru mjög minnisstæðar og þá sérstaklega 17. brautin sem er glæsileg 410 metra par-4 braut þar sem reynir á nákvæmni kylfinga og skynsemi. Ég stóð í þeirri meiningu í upphafi ferðar minnar á East Sussex National að Vestur- völlurinn væri eins konar litli bróðir Austur-vallarins. Svo er alls ekki. Raunar eru margir á þeirri skoðun að Vestur- völlurinn sé bæði fallegri og skemmtilegri viðureignar en Austur-völlurinn og má vel fallast á þau rök. Besta braut vallarins er án nokkurs vafa hin frábæra 12. braut. Lækur rennur í gegnum þessa par-5 braut og breytist í vatn við flötina. Stórglæsileg braut og flötin sömuleiðis. Sé upphafshöggið gott hrópar næsta högg á áhættu. Lokaholurnar á Vestur-vellinum eru jafnframt stórskemmtilegar. Saman mynda þessir tveir vellir tvíeyki sem fá golfsvæði á Englandi standast snúning. Aðstaða fyrsta flokks Mikið er lagt í golfsvæðið á East Sussex National og má þar fyrst nefna að æfingaaðstaðan er fyrsta flokks. Klúbbhúsið er sambyggt hótelinu og þar er golfverslun, geymsla fyrir golfbúnað, veitingastaður, að ógleymdri 19. holu vallarins sem er barinn í klúbbhúsinu og tíður viðkomustaður kylfinga. Hótelið er fimm stjörnu og herbergin mjög rúmgóð. Þrír veitingastaðir eru á hótelinu og maturinn góður. Fleira er hægt að gera á East National Sussex en að spila golf því á hótelinu er mjög vönduð heilsulind sem óhætt er að mæla með. Hótelgestir hafa aðgang að líkamsræktarstöð, sundlaug, heitum pottum, gufuböðum o.fl. Hægt er að panta sér nudd eða heilsumeðferð í heilsulindinni sem margir kjósa að nýta sér. Það er svo sannarlega góður kostur eftir baráttu við tvo krefjandi keppnisvelli. Stutt til Brighton Það er óneitanlega kostur að hægt er að brjóta upp golfferð til East Sussex National með því að skella sér til borgarinnar Brighton sem er í aðeins hálftíma aksturfjarlægð. Brighton er stórskemmtileg og falleg borg við sjávarsíðuna á suðurströnd Englands sem ávallt er gaman að heimsækja. Í stuttu máli þá prýðir East Sussex National golfsvæðið alla þá kosti sem kylfingar sækjast eftir. Golfvellirnir eru glæsilegir, krefjandi en henta þó breiðu getustigi kylfinga. Hótelið er mjög gott og þjónusta starfsmanna framúrskarandi. Það fer enginn svekktur frá East Sussex National. Saman mynda þessir tveir vellir tvíeyki sem fá golfsvæði á Englandi standast snúning. Vestur-völlurinn á East Sussex National. Hér er litið yfir 12. braut vallarins sem er frábær par-5 braut. Vatn setur mark sitt á lokaholurnar á Austur-vellinum. Hér má sjá yfir 16. flötina sem er mjög skemmtileg par-3 braut. Allir kátir með par. 106 GOLF.IS - Golf á Íslandi East Sussex National
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Golf á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.