Skák - 01.09.2005, Page 5
Þessi mynd er frá árinu 1992 og
tekin í Faxafeninu þegar Apples-
kákmótið, - lokað Reykjavíkur-
skákmót fór þar fram. Þau
verða því miður ekki fleiri stór-
mótin sem haldin verða í Skák-
heimili T.R. - a.m.k. ekki í því
umhverfi sem hér má sjá. Skák-
unnendur eiga margar góðar
minningar frá þessum stað, sem
var tákn um stórhug forystu
T.R. undir lok seinustu aldar -
en líklega óraunsæja bjartsýni í
bland eins og á daginn kom.
T.R. heldur þó hluta húsnæðis-
ins og starf þess er nú á uppleið
með nýrri forystu eftir heldur
dapra daga.
Myndin er þó ekki valin nú ein-
göngu til að minnast glæstra sala
í Faxafeninu, heldur ekki síður
til að minnast góðs drengs og
mikils skákunnanda sem nú er
nýlátinn, en það er Sigurjón Jó-
hannsson sem hér situr milli
þeirra Guðmundar Sigurjóns-
sonar og Guðmundar Arasonar.
Sigurjón var fæddur 1933 og því
rúmlega sjötugur þegar hann lést
nú í haust. Sigurjón var lengst
blaðamaður og kennari og
þekktur ljósmyndari. Líklega
átti hann eitt stærsta og
merkasta safn mynda frá skák-
mótunr og af skákmönnum að
tafli, en hann vann mikið fyrir
Jóhann Þóri Jónsson og Skák á
sinni tíð.
Nú mundar Diddó, eins og Sig-
urjón var kallaður, ekki lengur
myndavélina til að ná á filmu
svipbirgðum og karakter skák-
meistaranna. Blessuð sé minn-
ing hans.
Þráinn Guðmundsson
S K A K
101