Skák


Skák - 01.09.2005, Síða 5

Skák - 01.09.2005, Síða 5
Þessi mynd er frá árinu 1992 og tekin í Faxafeninu þegar Apples- kákmótið, - lokað Reykjavíkur- skákmót fór þar fram. Þau verða því miður ekki fleiri stór- mótin sem haldin verða í Skák- heimili T.R. - a.m.k. ekki í því umhverfi sem hér má sjá. Skák- unnendur eiga margar góðar minningar frá þessum stað, sem var tákn um stórhug forystu T.R. undir lok seinustu aldar - en líklega óraunsæja bjartsýni í bland eins og á daginn kom. T.R. heldur þó hluta húsnæðis- ins og starf þess er nú á uppleið með nýrri forystu eftir heldur dapra daga. Myndin er þó ekki valin nú ein- göngu til að minnast glæstra sala í Faxafeninu, heldur ekki síður til að minnast góðs drengs og mikils skákunnanda sem nú er nýlátinn, en það er Sigurjón Jó- hannsson sem hér situr milli þeirra Guðmundar Sigurjóns- sonar og Guðmundar Arasonar. Sigurjón var fæddur 1933 og því rúmlega sjötugur þegar hann lést nú í haust. Sigurjón var lengst blaðamaður og kennari og þekktur ljósmyndari. Líklega átti hann eitt stærsta og merkasta safn mynda frá skák- mótunr og af skákmönnum að tafli, en hann vann mikið fyrir Jóhann Þóri Jónsson og Skák á sinni tíð. Nú mundar Diddó, eins og Sig- urjón var kallaður, ekki lengur myndavélina til að ná á filmu svipbirgðum og karakter skák- meistaranna. Blessuð sé minn- ing hans. Þráinn Guðmundsson S K A K 101

x

Skák

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.