Skák


Skák - 01.09.2005, Page 7

Skák - 01.09.2005, Page 7
Lenka Ptácnikova. Það voru Svíarnir Evgeny Agrest og Tiger Hillarp Persson sem tóku afgerandi forystu á mótinu strax í upphafi og ruddu öllum öðrum keppendur frá. Lengi hafði sá síðarnefndi hálfs vinn- ings forystu, en gæfan snerist í höndum hans í næstsíðustu um- ferð þegar hann féll á tíma með unnið tafl gegn stigalægsta kepp- andanum, Tjomsland frá Nor- egi. íslensku keppendurnir börðust allan tímann í neðri helmingi mótsins við fremur lítinn orðstír. Róbert má þó vera bæri- lega sáttur við sinn hlut og stendur þar upp ur góður sigur hans á bronsmanninum Nicolai Pedersen sem m.a. átti þátt í því að sá síðarnefndi missti af lokaá- fanga sínum að stórmeistaratitli. Bragi vill hinsvegar áreiðanlega gleyma þessu móti sem íýrst. í kvennaflokki var annað uppi á teningnum. Þar voru keppendur 14 og tefldar 9 umferðir eftir svissnesku kerfi. Til að styrkja hópinn var nokkrum skákkon- um frá Eystrasaltslöndunum boðið til mótsins. Lenka Ptácnikova, fulltrúi Islands á mótinu tók strax forystuna og lét hana aldrei af hendi, sigldi fleyi sínu í höfn með sex vinn- inga eftir níu umferðir með hæfilegri blöndu af djörfung og öryggi eins og hæfir sigurvegara. Sigur hennar á einum hættuleg- asta keppinaut sínum var ein- staklega glæsilegur og fylgir hér á eftir. Lenka er þriðja íslenska skákkonan sem hampar titilin- um. Afrek oklcar eru að sönnu ekki mörg í kvennaflokki, en fyrir þrjátíu árum náði 14 ára stúlka, Guðlaug Þorsteinsdóttir, öllum að óvörum þessum ár- angri. Hún bætti svo um betur með því að sigra á næstu tveim- ur mótum. Sigurlaug Friðþjófs- dóttir náði svo dtlinum 1981 og ioks Lenka nú 2005! Eins og áður sagði sigraði Lenka með 6 vinninga af 9 möguleg- um. Næstar henni, með hálfum vinningi minna voru fyrrnefnd Svetlana Agrest, ásamt Viktoriu Bashkite frá Eistlandi og norsku konunum Sheilu Barth Sahl og Ellen Hagesæther. Hvítt: Lenka Ptácniková Svart: Svetlana Agrest Spánskur leikur I.e4e5 2. ^f3 ^c6 3. ±b5 f5 4. d3 Schliemann afbrigðið býður upp á sviptingar, en Lenka fer varlega eins og hún gerði jafnan á þessu móti. 4 - fxe4 5. dxe4 <2ff6 f 6. 0-0 J,c5 7. #e2 d6 8. ®c4 ®e7 9. ^c3 ±d7 10. ^d5 ^xd5 11. exd5 i'íúbS? Afar vondur leikur. Betra var 11 - <2ld4 með jöfnum möguleikum. Nú nær hvítur yf- irhöndinni með nokkrum mark- vissum leikjum. Lesendur taki eftir flani svörtu drottningarinn- ar milli f8 og f5 í framhaldinu; segir allt um úrræðaleysi svarts. 12. Ag5 ®f8 Þá lítur 12 - j^xb5 13. ®xb5+ c6 14. dxc6 bxc6 15. ®xc5 dxc5 16. <É,xe7 ekki betur út fyrir svartan. 13. Hael ®f5 14. Sxe5! dxe5 15. ®xc5 ®f8 16. #xc7 W& Milli f8 og f5, eins og eldcert sé sjálfsagðara! Raunin er hinsvegar sú að svart- ur á ekkert svar við kraftmikilli tafimennsku hvíts. 17. ^d8 <é>f7 18. ®e7 <i>g8 19. J,c4 b5 20. J,d3 ®f8 21. #xe5 <2fa6 22. ±e7 #e8 23. J,e4 Hc8 24. d6 h6 25. ®d5 #f7 26. <?7\e5 Eftir drottningarkaup- in fellur J,d7 óbættur 1-0 Hvítt: Róbert Harðarson Svart: Nicolai V. Pedersen Sikileyjarvörn S K A K 103

x

Skák

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.