Skák - 01.09.2005, Blaðsíða 7
Lenka Ptácnikova.
Það voru Svíarnir Evgeny Agrest
og Tiger Hillarp Persson sem
tóku afgerandi forystu á mótinu
strax í upphafi og ruddu öllum
öðrum keppendur frá. Lengi
hafði sá síðarnefndi hálfs vinn-
ings forystu, en gæfan snerist í
höndum hans í næstsíðustu um-
ferð þegar hann féll á tíma með
unnið tafl gegn stigalægsta kepp-
andanum, Tjomsland frá Nor-
egi.
íslensku keppendurnir börðust
allan tímann í neðri helmingi
mótsins við fremur lítinn
orðstír. Róbert má þó vera bæri-
lega sáttur við sinn hlut og
stendur þar upp ur góður sigur
hans á bronsmanninum Nicolai
Pedersen sem m.a. átti þátt í því
að sá síðarnefndi missti af lokaá-
fanga sínum að stórmeistaratitli.
Bragi vill hinsvegar áreiðanlega
gleyma þessu móti sem íýrst.
í kvennaflokki var annað uppi á
teningnum. Þar voru keppendur
14 og tefldar 9 umferðir eftir
svissnesku kerfi. Til að styrkja
hópinn var nokkrum skákkon-
um frá Eystrasaltslöndunum
boðið til mótsins. Lenka
Ptácnikova, fulltrúi Islands á
mótinu tók strax forystuna og
lét hana aldrei af hendi, sigldi
fleyi sínu í höfn með sex vinn-
inga eftir níu umferðir með
hæfilegri blöndu af djörfung og
öryggi eins og hæfir sigurvegara.
Sigur hennar á einum hættuleg-
asta keppinaut sínum var ein-
staklega glæsilegur og fylgir hér á
eftir. Lenka er þriðja íslenska
skákkonan sem hampar titilin-
um. Afrek oklcar eru að sönnu
ekki mörg í kvennaflokki, en
fyrir þrjátíu árum náði 14 ára
stúlka, Guðlaug Þorsteinsdóttir,
öllum að óvörum þessum ár-
angri. Hún bætti svo um betur
með því að sigra á næstu tveim-
ur mótum. Sigurlaug Friðþjófs-
dóttir náði svo dtlinum 1981 og
ioks Lenka nú 2005!
Eins og áður sagði sigraði Lenka
með 6 vinninga af 9 möguleg-
um. Næstar henni, með hálfum
vinningi minna voru fyrrnefnd
Svetlana Agrest, ásamt Viktoriu
Bashkite frá Eistlandi og norsku
konunum Sheilu Barth Sahl og
Ellen Hagesæther.
Hvítt: Lenka Ptácniková
Svart: Svetlana Agrest
Spánskur leikur
I.e4e5 2. ^f3 ^c6 3. ±b5 f5
4. d3 Schliemann afbrigðið
býður upp á sviptingar, en
Lenka fer varlega eins og hún
gerði jafnan á þessu móti. 4 -
fxe4 5. dxe4 <2ff6 f 6. 0-0 J,c5
7. #e2 d6 8. ®c4 ®e7 9.
^c3 ±d7 10. ^d5 ^xd5 11.
exd5 i'íúbS? Afar vondur leikur.
Betra var 11 - <2ld4 með jöfnum
möguleikum. Nú nær hvítur yf-
irhöndinni með nokkrum mark-
vissum leikjum. Lesendur taki
eftir flani svörtu drottningarinn-
ar milli f8 og f5 í framhaldinu;
segir allt um úrræðaleysi svarts.
12. Ag5 ®f8 Þá lítur 12 -
j^xb5 13. ®xb5+ c6 14. dxc6
bxc6 15. ®xc5 dxc5 16. <É,xe7
ekki betur út fyrir svartan.
13. Hael ®f5
14. Sxe5! dxe5 15. ®xc5 ®f8
16. #xc7 W& Milli f8 og f5,
eins og eldcert sé sjálfsagðara!
Raunin er hinsvegar sú að svart-
ur á ekkert svar við kraftmikilli
tafimennsku hvíts. 17. ^d8
<é>f7 18. ®e7 <i>g8 19. J,c4
b5 20. J,d3 ®f8 21. #xe5
<2fa6 22. ±e7 #e8 23. J,e4
Hc8 24. d6 h6 25. ®d5 #f7
26. <?7\e5 Eftir drottningarkaup-
in fellur J,d7 óbættur 1-0
Hvítt: Róbert Harðarson
Svart: Nicolai V. Pedersen
Sikileyjarvörn
S K A K
103