Skák - 01.09.2005, Page 26
3. umferð
Island-Sviss 1-3
(hvítt á fyrsta borði)
1 GM Victor Korchnoi 2615
2 GM Yannick Pelletier 2603
3 GM Joe Gallagher 2544
4 GM Florian Jenni 2494
Ísland-Svíþjóð B 1,5-2,5
(svart á fyrsta borði)
1 Eva Jiretorn 2134
2 Susanne Hansson 2110
3 InnaAgrest 1984
4 Ellinor Frisk 1991
Helst til stórt tap varð niður-
staðan gegn sterku liði Sviss.
Hannes lék af sér með vænlegt á
móti Korchnoi og þá var ljóst að
róðurinn yrði erfiður. Bragi tap-
aði eftir að hafa lagt allt í sölurn-
ar og Arnar lék af sér í verri
stöðu sem þó hefði líklegast ver-
ið hægt að halda. Framanaf leit
staðan ekki vel út hjá Stebba en
hann sneri á Pelletier og vann
góðan sigur með svörtu. Ekki
oft sem 2600+ stórmeistarar
vinnast með svörtu, glæsilegt hjá
Stefáni.
Niðurstaðan hjá stelpunum var
grátleg. Þetta var ein af þeim
viðureignum sem þær hefðu átt
að geta unnið á pappír og borði.
Lenka, Sigurlaug og Guðlaug
gerðu allar nokkuð afgerandi
jafntefli ef svo má segja. Annað-
hvort var skipt upp á liði eða
stöðunum lokað algjörlega og
jafntefli allsstaðar eðlileg niður-
staða. Á þriðja borði var Lilja
svo með svart og fylgdi ráðlegg-
ingum mínum gegn 2.c3 í Sikil-
eyjarvörn og fékk algjört yfir-
burðatafl nánast strategískt unn-
ið að mínu mati. Lilja lék þá
klaufalega af sér og í staðinn fyr-
ir sigur í viðureigninni sveiflaðist
niðurstaðan yfir í tap.
Líklega hefur þessi ósigur lagst
þungt á stelpurnar sem áttu
erfitt uppdráttar eftir þessa um-
ferð.
Hvítt: Inna Agest
Svart: Lilja Grétarsdóttir
Staðan eftir 24. leik hvíts Hg3
Þessi skálc var í raun dæmigerð
fyrir lánleysi kvennaliðsins í
þessari ferð. Lilja var búin að
tefla þessa skák vel og þó síðustu
leikir hafi ekki verið nákvæmir
er svartur enn með betra eftir
t.d. 24. - Re8. Lilja lék hinsveg-
ar...
24. - Re4??
og fékk vonlausa stöðu eftir
25. Hxg7!
Hrókurinn er friðhelgur vegna
Bh6 og svarta drottningin fellur
valdlaus á c2.
Hvítt: Yannick Pelletier
Svart: Stefán Kristjánsson
Pelletier hafði komið með sterka
nýjung í byrjuninni og Stefán sá
sig knúinn til að gefa skipta-
mun. Pelletier fann svo ekki
nógu gott framhald og þegar hér
er komið við sögu byrjar honum
að fatast flugið.
23.KÍ2?
Betra er 23.He4
23. - Bf7 24. Rd2 Bxd5 25.
Hbl Rxd2 26. Hxd2 Bc6 27.
Hbdl He8 28. Kf3 Kf7 29. g4
Ke7
Hjólin hafa snúist og nú hefur
svartur völdin. Ef hann nær að
búa til og ýta samstæðum frels-
ingjum á e- og f-línunni er hvíta
staðan orðin heldur erfið! Það er
nákvæmlega það sem gerist.
30. Hf2 Ke6 31. Hfd2 Ke7
32. Hf2
Býður upp á þráleik
32. - g6
122
S K A K