Skák


Skák - 01.09.2005, Blaðsíða 26

Skák - 01.09.2005, Blaðsíða 26
3. umferð Island-Sviss 1-3 (hvítt á fyrsta borði) 1 GM Victor Korchnoi 2615 2 GM Yannick Pelletier 2603 3 GM Joe Gallagher 2544 4 GM Florian Jenni 2494 Ísland-Svíþjóð B 1,5-2,5 (svart á fyrsta borði) 1 Eva Jiretorn 2134 2 Susanne Hansson 2110 3 InnaAgrest 1984 4 Ellinor Frisk 1991 Helst til stórt tap varð niður- staðan gegn sterku liði Sviss. Hannes lék af sér með vænlegt á móti Korchnoi og þá var ljóst að róðurinn yrði erfiður. Bragi tap- aði eftir að hafa lagt allt í sölurn- ar og Arnar lék af sér í verri stöðu sem þó hefði líklegast ver- ið hægt að halda. Framanaf leit staðan ekki vel út hjá Stebba en hann sneri á Pelletier og vann góðan sigur með svörtu. Ekki oft sem 2600+ stórmeistarar vinnast með svörtu, glæsilegt hjá Stefáni. Niðurstaðan hjá stelpunum var grátleg. Þetta var ein af þeim viðureignum sem þær hefðu átt að geta unnið á pappír og borði. Lenka, Sigurlaug og Guðlaug gerðu allar nokkuð afgerandi jafntefli ef svo má segja. Annað- hvort var skipt upp á liði eða stöðunum lokað algjörlega og jafntefli allsstaðar eðlileg niður- staða. Á þriðja borði var Lilja svo með svart og fylgdi ráðlegg- ingum mínum gegn 2.c3 í Sikil- eyjarvörn og fékk algjört yfir- burðatafl nánast strategískt unn- ið að mínu mati. Lilja lék þá klaufalega af sér og í staðinn fyr- ir sigur í viðureigninni sveiflaðist niðurstaðan yfir í tap. Líklega hefur þessi ósigur lagst þungt á stelpurnar sem áttu erfitt uppdráttar eftir þessa um- ferð. Hvítt: Inna Agest Svart: Lilja Grétarsdóttir Staðan eftir 24. leik hvíts Hg3 Þessi skálc var í raun dæmigerð fyrir lánleysi kvennaliðsins í þessari ferð. Lilja var búin að tefla þessa skák vel og þó síðustu leikir hafi ekki verið nákvæmir er svartur enn með betra eftir t.d. 24. - Re8. Lilja lék hinsveg- ar... 24. - Re4?? og fékk vonlausa stöðu eftir 25. Hxg7! Hrókurinn er friðhelgur vegna Bh6 og svarta drottningin fellur valdlaus á c2. Hvítt: Yannick Pelletier Svart: Stefán Kristjánsson Pelletier hafði komið með sterka nýjung í byrjuninni og Stefán sá sig knúinn til að gefa skipta- mun. Pelletier fann svo ekki nógu gott framhald og þegar hér er komið við sögu byrjar honum að fatast flugið. 23.KÍ2? Betra er 23.He4 23. - Bf7 24. Rd2 Bxd5 25. Hbl Rxd2 26. Hxd2 Bc6 27. Hbdl He8 28. Kf3 Kf7 29. g4 Ke7 Hjólin hafa snúist og nú hefur svartur völdin. Ef hann nær að búa til og ýta samstæðum frels- ingjum á e- og f-línunni er hvíta staðan orðin heldur erfið! Það er nákvæmlega það sem gerist. 30. Hf2 Ke6 31. Hfd2 Ke7 32. Hf2 Býður upp á þráleik 32. - g6 122 S K A K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.