Skák - 01.09.2005, Side 39
Snœtt í Tennishöllinni, 20. júlí 2005.
vera í sama jakkanum og stutt-
buxunum og ekki búinn að raka
sig. Loks er mikilvægt að fara
ekki inn í skáksalinn fyrr en
skákin er við að hefjast. Tapi
hann skák hefur hjátrúin brugð-
ist, og þá er t.d. hægt að raka sig,
og síðan er fundin ný rútína, þó
yfirleitt svipuð.
Dagur var reyndar óheppinn í
dag, því öryggisverðir neituðu
honum um að fara með bakpok-
ann sinn inn í salinn (öryggis-
gæsla hefur verið hert til muna
eftir atburði síðustu daga í
London). Þessi truflun á rútín-
unni kom ekki á góðum tíma-
punkti því andstæðingur Dags
var Radoslaw Wojtaszek frá Pól-
landi, stigahæsti keppandinn af
öllum á mótinu (hann er með
“ekki nema” 2591 Elo-stig).
Dagur tapaði og persónulega
finnst mér að skella eigi skuld-
inni á terroristana, án þeirra
hefði bakpokinn ekki verið tek-
inn. Góðu fréttirnar í dag eru að
Daði vann góðan sigur á 1864ra
stiga Frakka (hann þurfti bara að
ímynda sér að hann væri að tefla
við mótshaldarann) og Sverrir
vann strák frá Kenýa. Elsa gerði
jafntefli við portúgalska stelpu,
en aðrir töpuðu sínum skákum.
Afraksturinn var því ekki nema
2,5 v. í dag, en við gerum bara
betur á morgun.
Kl. 15:30 fór ég á fund fyrir far-
arstjórana sem mótshaldararnir
héldu í tennissalnum (sem við
borðurn í). Þar fengum við loks-
ins passana sem við áttum að fá
fyrir fimm dögum. Fram-
kvæmdastjóri mótsins, Jean-Paul
Touzé hélt áfram að gera það
sem hann gerir best: bera af sér
allar sakir og kenna öðrum um.
Hann fór yfir ýmis atriði sem
kvartað hefur verið undan, t.d.
gistingu, tafir, skráningarmál,
tungumál og fleiri mál, og þetta
var ýmist okkur fararstjórunum,
FIDE, lögreglunni eða bara
hverjum sem er að kenna öðrum
en mótsstjórninni. Merkilegt.
Við fararstjórarnir gátum á köfl-
um ekki annað en hlegið að
þessu, þetta er allt e-ð svo
absúrd.
Það góða er að krakkarnir okkar
virðast þrátt fyrir allt vera býsna
ánægðir með mótið og veruna
hér, og það er aðalatriðið á með-
an skipulagsleysið bitnar ekki of
mikið á þeim (það gerði það þó
a.m.k. í fyrstu umferð eins og ég
hef minnst á framar). Þau njóta
líka þeirra forréttinda að geta
einbeitt sér að því skemmtileg-
asta hérna: skáklistinni sjálfri.
Dagur 6, laugardagur 23. júlí
Samkvæmt veðurspánni átti að
rigna í dag, en þess í stað skein
sólin sem aldrei fyrr, sérstaklega
eftir hádegi. Við þurftum að
vakna snemma því í dag var ann-
ar af tveimur dögum keppninn-
ar með tveimur umferðum, sú
fyrri kl. 9:30 og sú síðari kl.
15:30. Eftir morgunmat á hótel-
inu fór ég með krakkana í rútu á
skákstað, en foreldrarnir komu
með strætó vegna plássleysis í
rútunni.
5. umferðin gekk ekkert sértak-
lega. Atli og Daði unnu sína
andstæðinga, Elsa og Hallgerður
höluðu inn hálfum vinningi
hvor en aðrir í hópnum töpuðu.
Samtals fengum við því þrjá
vinninga af átta í 5. umferð.
f hádeginu fór ég með stelpun-
um og mæðrum þeirra á veit-
S K A K
135