Skák


Skák - 01.09.2005, Síða 39

Skák - 01.09.2005, Síða 39
Snœtt í Tennishöllinni, 20. júlí 2005. vera í sama jakkanum og stutt- buxunum og ekki búinn að raka sig. Loks er mikilvægt að fara ekki inn í skáksalinn fyrr en skákin er við að hefjast. Tapi hann skák hefur hjátrúin brugð- ist, og þá er t.d. hægt að raka sig, og síðan er fundin ný rútína, þó yfirleitt svipuð. Dagur var reyndar óheppinn í dag, því öryggisverðir neituðu honum um að fara með bakpok- ann sinn inn í salinn (öryggis- gæsla hefur verið hert til muna eftir atburði síðustu daga í London). Þessi truflun á rútín- unni kom ekki á góðum tíma- punkti því andstæðingur Dags var Radoslaw Wojtaszek frá Pól- landi, stigahæsti keppandinn af öllum á mótinu (hann er með “ekki nema” 2591 Elo-stig). Dagur tapaði og persónulega finnst mér að skella eigi skuld- inni á terroristana, án þeirra hefði bakpokinn ekki verið tek- inn. Góðu fréttirnar í dag eru að Daði vann góðan sigur á 1864ra stiga Frakka (hann þurfti bara að ímynda sér að hann væri að tefla við mótshaldarann) og Sverrir vann strák frá Kenýa. Elsa gerði jafntefli við portúgalska stelpu, en aðrir töpuðu sínum skákum. Afraksturinn var því ekki nema 2,5 v. í dag, en við gerum bara betur á morgun. Kl. 15:30 fór ég á fund fyrir far- arstjórana sem mótshaldararnir héldu í tennissalnum (sem við borðurn í). Þar fengum við loks- ins passana sem við áttum að fá fyrir fimm dögum. Fram- kvæmdastjóri mótsins, Jean-Paul Touzé hélt áfram að gera það sem hann gerir best: bera af sér allar sakir og kenna öðrum um. Hann fór yfir ýmis atriði sem kvartað hefur verið undan, t.d. gistingu, tafir, skráningarmál, tungumál og fleiri mál, og þetta var ýmist okkur fararstjórunum, FIDE, lögreglunni eða bara hverjum sem er að kenna öðrum en mótsstjórninni. Merkilegt. Við fararstjórarnir gátum á köfl- um ekki annað en hlegið að þessu, þetta er allt e-ð svo absúrd. Það góða er að krakkarnir okkar virðast þrátt fyrir allt vera býsna ánægðir með mótið og veruna hér, og það er aðalatriðið á með- an skipulagsleysið bitnar ekki of mikið á þeim (það gerði það þó a.m.k. í fyrstu umferð eins og ég hef minnst á framar). Þau njóta líka þeirra forréttinda að geta einbeitt sér að því skemmtileg- asta hérna: skáklistinni sjálfri. Dagur 6, laugardagur 23. júlí Samkvæmt veðurspánni átti að rigna í dag, en þess í stað skein sólin sem aldrei fyrr, sérstaklega eftir hádegi. Við þurftum að vakna snemma því í dag var ann- ar af tveimur dögum keppninn- ar með tveimur umferðum, sú fyrri kl. 9:30 og sú síðari kl. 15:30. Eftir morgunmat á hótel- inu fór ég með krakkana í rútu á skákstað, en foreldrarnir komu með strætó vegna plássleysis í rútunni. 5. umferðin gekk ekkert sértak- lega. Atli og Daði unnu sína andstæðinga, Elsa og Hallgerður höluðu inn hálfum vinningi hvor en aðrir í hópnum töpuðu. Samtals fengum við því þrjá vinninga af átta í 5. umferð. f hádeginu fór ég með stelpun- um og mæðrum þeirra á veit- S K A K 135

x

Skák

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.