Skák


Skák - 06.03.2012, Blaðsíða 82

Skák - 06.03.2012, Blaðsíða 82
Islandsmót skákfélaga - fyrr og nú - Sveitakeppnir af því tagi sem við þekkjum sem íslandsmót skák- félaga eða deildakeppnina skapa veglegan sess í skákltfi fjölmargra landa. Þekktasta og öflugasta mót af þessu tagi er deildakeppnin þýska, Bundes- liga, þar sem meira en þúsund skák- klúbbar, smáir sem stórir, mæta til leiks. Deildakeppnirnar eru vettvangur allra skákiðkenda, hvort sem þeir hafa f 000 eóa 3000 stig. Allir eiga leik, peð jafnt sem kóngar og drottningar. Deildir í Rússlandi, Frakklandi, Spáni og víðar eru einnig mjög öflugar. Deildirnar eru með alþjóðlegum brag. Atvinnumenn heimsins stunda það að fara á milli landa og tefla við kollega sína í sveitakeppnum. Eina helgina tefla þeir fyrir klúbb í Þýskalandi, þá næstu í Svíþjóð, Hollandi eða Tékklandi; já, eða á íslandi. Þessir kappar eru eftir- sóttir af metnaðarfullum klúbbum í sókn eftir meistaratitlum eða háu sæti. Þessi alþjóðavæðing er viðtekin í okkar heimshluta og þykir eðlileg, þótt af og til heyrist það gagnrýnt að með því að taka upp veskió geti peningamenn keypt sér titla meó hjálp „málaliða“ á kostnað þeirra sem tefla fram heimamönnum og „alvöru félagsmönnum“ á þessum vett- vangi. Málaliðanafnbótin hefur á sér heldur neikvæðan blæ en ég gríp til hennar nú til að minna á gamla umræðu hér heima, og ég man t.d. eftir í tengslum við deildakeppnina tímabilið 1996-97. Þá höfðu TR-ingar, líklega fyrstir íslenskra félaga, fengió erlendan stórmeistara til liðs við sig. Það var Henrik Danielsen, þá með danskt ríkisfang (en kannski þegar farinn að renna hýru auga til Islands). Ég fékk að reyna mig við kappann í viðureign okkar Akureyringa við TR og tókst reyndar að leggja hann að velli í alveg ágætri skák. Þá muldruðu einhverjir í mín eyru að þetta væri nú bara gott á TR-ingana, þeim hefndist íýrir að ætla að vinna mótió með hjálp útlendinga, eins og slíkt myndi setja blett á mótið. Þetta var nýjung og líklega fannst sumum það skrýtið að útlendingur ætti erindi í keppni íslenskra skákfélaga. Þetta hefur hinsvegar breyst heldur betur og sjónarmið af þessu tagi eru löngu gleymd. Upphafið Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því Freyr Ofeigsson, þá forseti bæjar- stjórnar á Akureyri, lék fyrsta leikinn í skák Friðriks Olafssonar og Halldórs Jónssonar haustið 1974. Þar með hófst deildakeppnin íslenska sem síðar fékk nafnið íslandsmót skákfélaga. Þeir tefldu á 1. borði í viðureign Taflfélags Reykjavíkur og Skákfélags Akureyrar og koma þau félög mjög við sögu þessarar keppni. Þau ein hafa mætt til leiks öll 38 árin sem mótið hefur verið háð; öldung- arnir í hópi skákfélaga og fulltrúar hefða og sögu á þessum vett\'angi. Ef ég man rétt tóku sex félög þátt í mótinu fyrsta árið og var teflt á sex borðum, tvöföld umferð í hverri viðureign og umhugsunartíminn klukkustund á skákina. Smámsaman fjölgaði og 2. deild var sett á laggirnar. Á þessum árum voru taflfélög fá á landinu og félagsaóild í föstum skorðum. Menn gengu í félag í sinni heimabyggð og fátítt að skipt væri um félag nema þegar flutt var í annað byggðarlag. Það þótti fásinna að fá aðkomumann til aó tefla íýrir félagið, hvað þá mann frá útlöndum. Heldur rólegt var yfir mótinu fyrstu árin og má vera aó áhugi skáksamfélagsins á því hafi verið í daufara lagi af þeim sökum að risinn Taflfélag Reykjavíkur hafði slíka yfirburði að önnur félög gátu aðeins látið sig dreyma um sigur á mótinu. Reyndar skaut nýtt félag - Mjölnir - þeim ref íýrir rass strax á öðru ári, en þaó var undantekning. Á fyrstu 24 árunum hömpuðu TR-ingar meistaratitlinum 22 sinnum og tefldu þó flest árin fram tveimur sveitum nokkuð jafnsterkum. En þegar á leið fjaraói þó smám saman undan ofurvaldi Tafl- félagsins. Spútnikkar og splundurklúbbar Þótt hægt færi í fyrstu hefur deildakeppnin orðið magnaður vettvangur nýsköpunar í félagsmálum skákmanna. Þar hafa mætt til leiks - í vaxandi mæli hin síðari ár - nýir klúbbar og nýjungagjarnir. Sumir hafa lifað hratt og þrotió örendið eða breytt um stefnu, aðrir eru enn sprækir og verða vonandi áfram. Þegar nýtt félag lítur dagsins ljós er það kynnt til leiks í deildakeppninni og tekur þátt í því samfélagi sem þar hefur myndast. Mótið er þannig klárlega hvetjandi fýrir þá nýsköpun sem felst í fjölgun skákfélaga og hefur nú fýrir nokkru tvímælalaust tekió völdin sem magnaóasta skákmót á íslandi. Fyrst á vettvang var fýrrnefnt Skákfélagið Mjölnir, sem stimplaði sig rækilega inn á fýrsta starfsári sínu. Ef mig misminnir ekki tengdist félagsstofnunin átökum í Taflfélaginu. Þaðan komu helstu máttarstólpar Mjölnis sem réð yfir sterkri sveit þótt félagið hafi að sönnu ekki verið fjölmennt. Eftir þetta gyrti gamla stórveldið sig í brók og Mjölnir vann ekki fleiri titla. Félagið hvarf svo úr keppninni eftir nokkur ár. Síóan kom Taflfélag Seltjarnarness til skjalanna. Það ógnaði ofurvaldi TR í deildakeppninni á níunda áratugnum án þess þó að takast aó vinna mótið. Með tilkomu TS sáust merki um að vistarböndin í skákheiminum væru að trosna enda bjuggu fæstir liðsmanna félagsins úti á Nesi. Fyrir utan óvæntan og magnaóan sigur Taflfélags Garðabæjar árið 1992 var TR tryggt í sínum sessi fram eftir tíunda áratugnum en fékk loks verðugan keppinaut þegar Taflfélagið Hellir (sem að sönnu mátti líta á sem klofningsfélag úr TR) kom til sögunnar. Hellir varð til árið 1991 en þurfti nú tíma til að vinna sig upp í 1. deild (nokkuó sem ný félög þekkja á okkar tímum en var minna mál þegar sveitirnar voru færri). Þegar þeir svo komust í efstu deildina rann upp skeið turnanna tveggja á mótinu, baráttan um meistaratitilinn stóð um árabil milli Reykjavíkurfélaganna tveggja og hafði nýja félagió betur árið Áskell Örn Kárason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.