Skák


Skák - 06.03.2012, Blaðsíða 83

Skák - 06.03.2012, Blaðsíða 83
Anatolí Karpov, fyrrverandi heimsmeistari og ein af goösögnum okkar tíma í skákheiminum, var staddur hér á landi í tilefni af 110 ára afmæli Taflfélags Reykjavíkur og kom til setningar íslandsmóts skákfélaga. Hann lék m.a. fyrsta leikinn á fyrsta borði í öllum fjórum viðureignunum í 1. deild. Hér er hann í þann mund að hefja taflið fyrir Akureyringinn Torbjprn Bromann gegn TR-ingnum Vasily Papin. Bormann bendir Karpov á b-peðið og lék hann því til b3. Gunnar forseti Björnsson og Björn skákboxari Jónsson (sem bar hitann og þungann af heimsókn meistarans b'l landsins) eru Karpov til aðstoðar. 1999. Þar með iauk aldarfjórðungs ein- okunartíma TR, þótt félagið sé enn í hópi þeirra sterkustu og hafi reyndar unnið mótið tvisvar síðan. Öld Hróksins og síðar Meðan á þessari glímu TR og Hellis stendur er nýtt félag að vígbúast í neðstu deild sem á eftir að setja mikinn svip á mótið á fyrstu árum nýrrar aldar. Aður en þeir komast að má þó minnast á nýjan leikanda á sviðinu, þótt við- dvölin hafi ekki verið löng. Það er Taflfélag Hólmavíkur sem eins og önnur spútniklið reis upp fýrir tilverknað eins dugandi manns sem hafði ráð og afl til að fá sterka skákmenn í hópinn. Breytti þá engu þótt þeir hefðu aldrei komið til Hólmavíkur og fóru reyndar engar sögur af miklum meistaramótum þar norður á Ströndum. Hólmvíkingar komust alltént auðveldlega upp í 1. deild, réðu til sín titilhafa og blönduðu sér í baráttuna í nokkur ár án þess að höggva nærri titlinum. Svo þraut örendið og félagið dró sig úr keppni. Víkur þá sögunni aftur að spútnikliði nýrrar aldar, Skák- félaginu Hróknum. Innkoma Hróksins á skáksviðið var effirminnileg og breytti deildakeppninni meira en flest annaó. Líkt og í dæminu hér að framan var Hrókurinn fyrst og fremst ávöxtur af eljusemi eins manns, Hrafns Jökulssonar. Tilurð félagsins og áherslur voru í hæsta máta óhefðbundnar en starfið engu að síður líflegt og vakti mikfa athygli. Eitt af markmiðum þeirra var að taka deildakeppnina með trompi og tróna þar á hæsta stalli. Það tókst á eftirminnilegan hátt og hefúr mótið ekki verið samt síðan. Eftir að hafa fikrað sig örugglega upp deildastigann varð félagið meistari á fýrsta ári sínu í efstu deild og endur- tók afrekið tvö næstu ár. Þá var erindinu lokið, félagið skipti um gír og hætti þátttöku. Slíkt er ekki til eftirbreytni, en kannski í eðli spútniksins; að falla til jarðar þegar eldsneytið er þrotið. Önnur lið héldu sínu striki og keppnin hélt áfram, en eitthvað hafði greinilega breyst. Með Hróknum jókst fjöldi „málaliða“ í mótinu stórum. I löggjöf um keppnina voru engin ákvæði um þjóðerni liðs- manna eða búsetu og þótti sumum nóg um að hægt væri að vinna mótið með sveit eingöngu skipaða mönnun sem tylltu hér niður fæti í þrjá daga, tefldu nokkrar skákir og hurfu svo á braut. Var í kjölfarið ákveðið að helmingur liðsmanna í hverri umférð skyldi hafa lögheimili á íslandi og er svo enn. Um leið þykir nú ekki tjóa að ætla að ná verðlaunasæti á mótinu án þess að fá liðsstyrk að utan. Það kostar peninga, en menn geta verið sammála um að nú er mótið mun sterkara og áhugaverðara en áður. Þessi þróun hefur aukið á vinsældir mótsins. Keppendum og sveitum hefur farið fjölgandi og eru sveitirnar nú komnar á sjötta tuginn. Nýir klúbbar birtast á sjónarsviðinu; menn sameinast um að tefla sér til skemmtunar - og stundum árangurs - á íslandsmóti skákfélaga. I.andslagið hefur breyst mikið á þeim tæpum 40 árum sem liðin eru frá fýrsta leik Freys Ófeigssonar forðum. Gömlu, rótgrónu félögin eru í minnihluta. Aukið umfang deildakeppninnar hefúr gert að verkum að gamlir og rótgrónir keppnisstaðir hafa gengið úr sér. Margir muna hin vinsælu mót í Munaðarnesi á 8. áratugnum. Svo tók Faxafenið við en er löngu orðið of lítið og Menntaskólinn við Hamrahlíð er fyrir bí (þótt þar ætti reyndar að vera nægilegt pláss). Hin seinni ár hefur oftast verið safnast saman í Rimaskóla þar sem Helgi Árnason og hans fólk búa mótinu prýðilega umgjörð. Einhver kann að vilja hafa keppnina meira miðsvæðis í Reykjavík en samt er gott að tefla í Rimaskóla. Umfang mótsins og áherslan á að allir komi saman á einum stað gerir það að verkum að nú geta tæplega aðrir hýst mótið en stórir skólar og íþróttahús. Þá er mikið fyrirtæki að fara með mótshaldið í heild sinni út á land, en hefur þó heppnast vel, eins og sannaðist á Selfossi um nýliðna helgi. Alltént er keppnin nú skemmtilegri en nokkru sinni fyrr. Nestorarnir Ekki verður fjallað um sögu mótsins öðruvísi en að nafngreina nokkra þá keppendur sem þaulsætnastir hafa verið við skákborðin, af þeim þúsundum sem komið hafa við sögu þess. I því efni hefur höfundur ekki við annað að styðjast en minni sitt og ófullkomnar heimildir. Fyrst kemur óneitanlega upp í hugann nafn Gylfa Þórhallssonar. Lengi vel var hann með 100% mætingu í keppnina, en slíkt halda menn ekki út til eilífðar. Hann á enn flestar skákir allra á mótinu, líklega eru þær að nágast 250. Að auki hefur hann alltaf teflt fýrir sama félag, Skákfélag Akureyrar, sem er ekki lítið afrek á tímum síbreytilegrar félagsaðildar. Af öðrum sem sjaldan láta sig vanta má nefna altmeister Sævar Bjarnason og sjálfur vonast ég til að komast inn á topp 10. Af sjálfú leiðir að aðeins þeir komast í þennan hóp sem voru komnir til vits í upphafi keppninnar og hafa getað verið með alla tíð. Af stórmeisturum okkar á Helgi Ólafsson örugglega flestar skákir og aðrir sem koma upp í hugann eru menn á borð við Björn Þorsteinsson og Júlíus Friðjónsson. Norðanmennirnir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.