Skák - 06.03.2012, Blaðsíða 45
Kf7 36.Dh7 De3 37.Dg6+ Kffi 38.Dd6+
Kg8 39.De6+
31.Kgl De6 32.Dh7+ Kf8 33.Dh8 +
Dg8 34.Dh5 De6 35.Dh8+ Dg8
36.Dh5 De6 37.Dh8+ %-%
Og hérna sagðist ég myndu leika 37...
Dg8 næst og bauð jafntefli sem Dreev
þáði. Hann var kominn á síðustu sek-
úndurnar þegar hann lék 37.Dh8+ og
var bersýnilega mjög óhress með gang
mála. Ég gat brosaó í kampinn með þetta
góða jafntefli og minn fyrsta áfanga að
alþjóðlegum meistaratitli.
Skákskýringar Sigurbjörn Björnsson
Guðmundur Gíslason, Taflfélagi
Bolungarvíkur
Eftir að Taflfélag Bolungarvíkur gerðist
framsækið og frekt til fyrstu sæta á Is-
landsmóti taflfélaga hafa ráðamenn á
þeim bæ kappkostað að senda lið til
þátttöku á Evrópumót félagsliða. Eins og
áður hefur sveitin eingöngu verið skipuð
íslendingum. Engin breyting varð á því
nú og er það vel. Það gefúr okkur sem
áhuga höfum fleiri tækifæri til að tefla
við þekkta einstaklinga og er þetta mót
tilvalið til þess. I þetta skipti vorum við
einungis sex sem fórum og tefldi sérhver
okkar því allar skákirnar, sjö að tölu,
en sveitin var skipuð eftirfarandi skák-
mönnum:
1. borð Stefán Kristjánsson 2485 stig
2. boró Bragi Þorfinnsson 2427 stig
3. borð Jón Viktor Gunnarsson 2422 stig
4. borð Þröstur Þórhallsson 2388 stig
5. borð Dagur Arngrímsson 2353 stig
6. borð Guómundur Gíslason 2295 stig
Reyndist þetta hin besta blanda en við
byrjuðum í fyrstu umferð á að mæta
sveitinni Isek Aquamatch S.C. frá Tyrk-
landi og unnum við 4,5-1,5 þar sem við
Stefán, Jón Viktor og Dagur unnum en
Þröstur gerði jafntefli og Bragi tapaði. Við
vorum ekkert allt of ánægðir með þau
úrslit en ég held að þetta hafi verið sann-
gjarnt miðað vió taflmennskuna og eina
leiðin var að gera betur í framhaldinu og
peppa drengina upp.
I annarri umferð mættum við sterkri
hvítrússneskri sveit, Vesnianka
Gran, en þar gerði Stefán jafntefli við
stórmeistarann Andrey Zhigalko (2555)
og bjargaði andliti okkar en aórir töpuóu.
Ég held að við höfum átt meira skilið en
þetta og nú var bara að bíta í skjaldar-
rendur og fara að tefla betur. En þá kom
að því sem maður vill helst ekki að gerist
á svona móti - fá samlanda sína - en
þeir urðu andstæðingar okkar í þriðju
umferð. Nióurstaóan varð 3-3 jafntefli
eftir mikla baráttu þar sem ég jafnaði
leikinn með sigri á Bjarnajens í langri
skák þar sem hann missti af vænlegri leið
í miðtafli. Þröstur vann líka, jafntefli varð
hjá Stefáni og Braga en Dagur og Jón
Viktor töpuðu.
í fjórðu umferð mættum við frönsku
sveitinni Marseille Echecs. Þar unnum
vió Jón Viktor og Þröstur. Dagur og
Stefán gerðu jafntefli, sá síðarnefndi við
stórmeistarann Andrei Istratescu (2650)
og fer sú skák hér á eftir með skýringum
Halldórs Grétars.
Hvítt: AM Stefán Kristjánsson 2485
Svart: SM Andrei Istratescu 2650
Petroffs-vörn
I. e4 e5 2.Rf3 Rf6 3.Rxe5 d6 4.Rf3
Rxe4 5.De2 De7 6.d3 Rf6 7.Bg5
Dxe2+ 8.Bxe2 Be7 9-0-0 h6 10.Bf4
Rc6 ll.Hel
Stefán velur rólegt drottningarlaust
afbrigði á móti stórmeistaranum. En
þrátt fyrir að drottningarnar séu horfnar
af borðinu þá þarf að halda vel á
spöóunum. Ein lítil mistök geta verió nóg
fyrir þessa hákarla.
II. ..g5 12.Bcl!
Þetta er besti staðurinn fyrir biskupinn.
Hann vakir yfir h6-g5 peðakeðjunni.
12...Be6 13x3 0-0 l4.Ra3 Hde8 15.Rc2
Bd7 l6.Bd2 Rd5 17.g3 Bf6 18.Bfl
Hxel 19.Rfxel a5 20.d4 a4 21.Rg2
Rb6 22.Rge3 d5 23.Bg2
Hvítur teflir þetta áreynslulaust. Passar
sig á því að mynda ekki neina veikleika
og bætir stöðu manna sinna jafnt og þétt.
23...Re7 24.Rb4 c6 25.Rd3 Rf5
Og hérna var samið um jafntefli. Ágætis
úrslit á móti öflugum andstæðingi. Skyn-
samlega teflt hjá Stefáni.
Unnum við viðureignina 4-2 og vorum
loksins farnir að vera okkur til sóma en
það skrítnasta við þetta allt var að báðar
sveitirnar frá íslandi höfðu fengið sama
vinningafjölda úr öllum umferðum sem
búnar voru. Mér var ekki farið að standa
á sama enda farinn aó hafa áhyggjur
af því að Hellir mundi verða fyrir ofan
okkur í lok móts en markmið okkar
var skýrt, að við ætluðum að enda fyrir
ofan þá. En með hugann við ofangreint
og allar þær væntingar náði ég í þessari
fjórðu umferð að tefla þessa skemmtilegu
skák.
Hvítt: Dominique Metras 2009
Svart: Guðmundur Gíslason 2295
Grúnfelds-vörn
l.d4 Rf6 2x4 g6 3.Rc3 d5 4.cxd5 Rxd5
5.Rf3 Bg7 6.Db3 Rb6 7.Bf4 Be6 8.Dc2
Rc6 9x3 0-0 10.a3
Ég vonaðist eftir þessum leik og hafði ég
ákveðið framhald í huga.
10...Hc8 ll.Bd3 Ra5 12.b4 Rb3!
Og hugmyndin er orðin að veruleika en
flestir hefðu haldið að þessi riddari væri
á leiðinni til c4. Athyglisvert að tölvuíor-
ritin skildu ekki hugmyndina á bak við
Rb3 fyrr en hann var kominn þangað.
13.Hbl
1
i i i
%
iiíi
13...C5!!
Og þar birtist hugmyndin á bak við He8.
Glæsilegur leikur. l4.Hxb3 er svarað
með Bxb3 15.Dxb3 c4 og svartur vinnur
skiptamun. Svartur er kominn með unna
stöðu.
45