Kjarnar - 01.10.1953, Side 11
hér lá hún og var ennþá lifandi,
þótt hún gæti ekki áttað sig á
því, hvar hún væri stödd. —
Með erfiðismunum gat hún
hreyft vinstri höndina. Hún lá
á einhverju, er líktist þétt
stoppuðum legubekk, og hönd
hennar kom við eitthvað, sem
marraði ónotalega í. Kaldur
hrollur fór um hana alla. Þetta
þrengdi að henni á allar hliðar!
— Allt í einu létti henni. Það
var alls ekki víst að eitur hafi
verið í víninu, er fjárhalds-
maður hennar fékk henni. Hún
hafði fallið í ómegin af að heyra
um dauða elskhuga síns, og nú
lá hún eflaust í legubekknum
sínum. Það hlaut að vera dimmt
að nóttu, því engin ljósglæta
komst til hennar. — Við þessa
hugsun var sem grátkökkur
kæmi upp í háls hennar og ótt-
inn hvarf eins og dögg fyrir sól.
Lág stuna barst frá saman-
herptu kokinu, er hún lyfti
höndinni með erfiðismunum til
þess að fullvissa sig um þetta.
■—• Hrjúft og þéttstoppað . . . .
Skyndilega vaknaði grunur í
huga hennar. Grunur, sem allt
í einu varð að hryllilegum sann-
leika, sem fékk blóðið næstum
til þess að frjósa í æðum henn-
ar . . . . Hrjúft og hart viðkomu
eins og þéttstoppað léreft . . . .
og þrengdi að öllum hliðum . . !
Ef nokkuð hljóð hefði getað
borist lengur frá samanherptu
kokinu, hefði nístandi, dauðans
angistarvein rofið þá helþögn,
sem ríkti í . . . LÍKKISTUNNI!
Orustuflugmaður.
Joy þurkaði svitann af enni
sér og leit yfir mælaborð flug-
vélarinnar. Gat verið að hann
væri kominn svo hátt að það
gætti súrefnaskorts í loftin?
Höfuð hans var blýþu'ngt og
ákafan svefn sótti á hann. —
Nei, hæðarmælirinn sýndi eðli-
lega hæð, svo að ekki var á-
stæðan sú. Honum fannst hit-
inn í flugvélinni óþolandi, þó
sjmdi hitamælirinn aðeins eðli-
legt hitastig! — Hann reyndi að
hrista af sér svefndrungann og
þokumóðuna, sem sveif fyrir
augum hans. Gat það verið að
hann væri að veikjast, eða var
þetta aðeins eðlileg þreyta eftir
harða og taugaæsandi loftor-
ustu? Bardaginn í dag hafði
verið óvenju harður. Þýzku
fylgdarflugvélarnar voru af
nýrri gerð, og mjög fullkomnar.
Fjandi skæð vopn, sem vert var
að gæta sín fyrir!
Joy var á heimleið úr árásar-
ferð gegn þýzkum sprengju-
flugvélum. Seinustu ferð sinni
áður en hann fengi orlof til þess
að giftast Jocý, unnustu sinni.
Hann hlaut að vera alvarlega
KJARNAR — Nr. 30
9