Kjarnar - 01.10.1953, Page 17
SKRÍTLUR
í Chicago var bílstjóri fyrir skömmu
sektaður fyrir of hraðan akstur. —
Fimmtán mínútum síðar var hann
aftur settur á svarta listann fyrir sömu
yfirsjónina. Nokkrum minútum síðar
var bílstjórinn enn tekinn til bæna. í
það skipti hafði hann ekið of hægt,
þ. e. um tólf kílómetra á klukku-
stund. Þótti hann tefja umferðina á
götunum með svo hægum akstri. Og
var í þriðja sinn akærður fyrir lög-
brot víðvíkjandi bifreiðaakstri. Mátti
segja, að manni þessum gengi illa, að
gera yfirvöldunum til hæfis.
★
í Bloemfonteins dýragarðinum í
Suður-Afríku gerðist þetta nýlega:
Stórt ljón neitaði að fara inn í nýtt
ljónabúr, og viðhafði langvinnan
þráa. En skyndilega flýtti ljónið sér
inn í búrið og rak upp hátt öskur.
Ljónagæzlumaðurinn hafði bitið ljón-
ið all heiftarlega í rófuna!
tAt
í miðdegisverðarboði sat mjög
feiminn maður við hlið fyúsmóður-
innar. Hann hafði lengi verið að
hugsa um, hvað hann ætti að segja
við frúna. Hún sneri sér að feimna
manninum og mælti: „Þér hafið litla
matarlyst." ífr
Þá kom tækifærið til þess að segja
eitthvað við frúna. Maðurinn svar-
aði: „Að sitja við hlið yðar, frú, mundi
gera hvaða mann. sem vera skyldi.
lystarlarisan!"
★
Tilkynning:
„Eggjaframleiðsluráðuneytið leyfir
sér hér með, að áminna bændur um að
skreyta vel hænsnahús sín, með
myndum af stórum, litfríðum hön-
um. Því fleiri, þess betra. Umboðs-
maður ráðuneytisins álítur það eng-
um vafa undirorpið, að þvílíkar mynd-
ir auki varpið vegna æsandi áhrifa
hænanna af hanamyndunum."
★
í Chicago fór maður í mál við unn-
ustu, sem hafði svikið hann. Krafðist
maðurinn 2500 dollara, er hann kvað
bæði endurgreiðslu á því fé, er hann
hafði eytt hennar vegna á þeim tíma
er þau voru trúlofuð svo og þeirri
staðreynd, að hann hefði, hennar
vegna, ekki litast um eftir öðru konu-
efni á meðan þau voru heitbundin.
lengi beðið þín! Við héldum að
þú værir dáinn, af því að við
fréttum ekkert af þér“.
Jafnvel kaldrifjuðustu ævin-
týramennirnir í klúbbnum
þurftu annaðhvort að snýta sér
eða þurrka um augun, er hjón-
in féllust í faðma, með gleðitár
í, augunum!
Þannig höguðu heilladísirnar
því. Ef hjólið hefði ekki sprung-
ið einmitt fyrir framan Dul-
sagna-klúbbinn, væri Joy, vin-
ur minn, nú á leið til útlanda,
í stað þess að hvíla í faðmi simr
ar heittelskuðu eiginkonu, eftir
margra ára aðskilnað. Þannig
tengdu heilladísirnar saman á
heillavænlegan hátt hina flóknu
forlagavefi örlaganornanna!
KJARNAK — Nr. 30
15