Leikskrár Þjóðleikhússins - 10.02.1984, Page 10
BERTOLT BRECHT
1898. 10. febrúar fæddur í Augsburg
Bertolt Eugen Friedrich Brecht.
Faðir hans var Bertolt Friedrich
Brecht (f. 1869) forstjóri
pappírsverksmiðju, en móðir
hans var Sophie Breziq Brecht
(f. 1871).
1902. Yngri bróðir hans Walter
fæðist.
1904-17. Skólanám i Augsburg.
1914. Fyrstu Ijóðin hans birtast í
Augsburger Neuesten Nachric-
hten.
1917. Byrjar að læra læknisfræði við
háskólann í Munchen.
1918. Kallaður í herinn sem sjúkraliði.
Semur fyrsta leikritið, Baal.
1919. Heldur námi áfram í Munchen
og gerist jafnframt leiklistar-
gagnrýnandi fyrir Der Volks-
wille. Þátttakandi í bók-
menntakabarett. Semur næsta
leikrit, Trommeln in der Nacht
(Trumbusláttur um nótt).
1920. Verður ,,Dramaturg“ við Kam-
merspiele í Munchen.
1921. Gerir leikgerð eftir Gösta Berl-
ings saga, eftir Selmu Lagerlöf.
Semur flest Ijóðin í Ijóðasafninu
Hauspostille. Semur nokkra
einþáttunga fyrir gamanleikar-
ann Karl Valentin.
1922. Trommeln in der Nacht
frumsýnt í Munchen. Kvænist
leikkonunni Marianne Zoff.
Trommeln in der Nacht sýnt í
Berlín. Kynnist Helene Weigel.
Hlýtur Kleist-bókmenntaverð-
launin.
1923. Dóttirin Hanne Marianne
fæðist. Im Dickicht der Stádte
(Myrkviðir stórborganna) frum-
sýnt í Munchen. Baal frumsýnt
í Leipzig. Bjórkjallarauppreisn
Hitlers í Munchen.
1924. Leben Eduard des Zweiten
(Edward II.), samið upp úr
leikriti Marlowes, frumsýnt í
Múnchen í leikstjórn Brechts.
Flyst til Berlínar. Verður
„dramaturg" ásamt Carl Zuc-
kmeyer hjá Max Reinhardt við
Deutches Theater. Sonurinn
Stefan fæðist. Brecht starfar
sem leikstjóri og semur mikið
af Ijóðum og sögum.
1926. Mann ist Mann (Maður er
maður) frumsýnt f Darmstadt.
1927. Hauspostille gefin út. Brecht
skilur við Marianne Zoff. Fyrsta
samstarf með Kurt Weill: Das
Kleine Mahogonny (Litla Ma-
hogonny). Undirbýr leikgerð
ásamt öðrum af ,,Sveyk“ fyrir
Erwin Piscator.
1928. ,,Sveyk“ Piscators frumsýndur.
Túskildingsóperan frumsýnd í
Berlin. Kvænist leikkonunni He-
lene Weigel. Hlýtur fyrstu verð-
laun í smásagnasamkeppni fyr-
ir Der Bestie.
1929. Frumsýning á Baden-Baden
hátíðinni á Der Flug der Lind-
berghs (Flug Lindberghs) og
Das Badener Lehrstuck vom
Einverstándnis við tónlist eftir
Hindemith. Hátíðargestir
hneykslast yfir báðum þessum
verkum. Semur nokkur smá-
leikrit. Semur söngleikinn
Happy End undir dulnefni og
hann er frumsýndur, en kolfell-
ur.