Leikskrár Þjóðleikhússins - 10.02.1984, Qupperneq 47

Leikskrár Þjóðleikhússins - 10.02.1984, Qupperneq 47
„Milljónir eru á bak við mig“, klippimynd eftir John Heartfield 1932. Stalíngrad hefur verið kölluð Verdun síðari heimsstyrjaldarinnar. Sá er þó munurinn að í Verdun sendust menn á vígskeytum í fjarlægð en í Stalíngrad barðist maður við mann í návígi. Liðþjálfi í 24. skriðdrekadeild þýska hersins lýsti þessu þannig: ,,Það er barist látlaust myrkranna á milli. Við vörpum hand- sprengjum hver að öðrum milli húsahæða, með sótuga svitastorku i andliti, mitt í sprengingum, ryki og reyk, innan um múrsteinshrúgur, blóðflaum, brotin hús- gögn og mannverur. Spurðu hvaða hermann sem er hvernig sé að berjast í sliku návígi í hálfa klukkustund og hugsaðu þér svo Stalíngrad: áttatíu dagar og áttatíu nætur í návígi“.“ í byrjun febrúar 1943 gafst þýski herinn upp, þá innikróaður og örmagna af vosbúð og vistaskorti. Hófst þá undanhaldið og linnti ekki fyrr en Rússar höfðu brotist alla leið til Berlínar. Álitið er að Þjóðverjar og bandamenn þeirra hafi á tímabilinu frá ágúst 1942 til febrúar 1943 misst eina og hálfa milljón manna og gifurlegt magn hergagna. Þennan vetur misstu Þjóðverjar frumkvæðið í styrjöld- inni. Á.l.

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.