Leikskrár Þjóðleikhússins - 10.02.1984, Síða 17

Leikskrár Þjóðleikhússins - 10.02.1984, Síða 17
Hinrik svaf hjá sinni nýju konu Hinrik svaf hjá sinni nýju konu sem að erfði fé og var frá Rín. Samviskan var heljarsvört í honum, hann fékk ekki dúr á augu sín. Klukkan tólf stakkst hönd í gegnum gluggann, gardínurnar bærði köld og þvöl, afVilhelmínu sinni sá hann skuggann sveif hún inn á líkklæðunum föl. ,,Hræðstu eigi" mælt ’ún mjúkum rómi, „minn þú forðum vermdir ektabeð, ég er kvitt, en gjarna í góðu tómi gripin löngun til að fylgjast með. Ekki vola, veröld eins og þessi verðskuldar ei tár af hvarmi þér. Lifðu heill í hamingju með Bessí, henni sem er tekin við afmér." Þorpsins hlið og hurðir Þorpsins hlið og hurðir hann með litum smurði, mitt í málningunni meyjunum hann unni. Alltaf ósköp snauður og alltíeinu dauður, mitt í málningunni meyjunum hann unni.

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.