Leikskrár Þjóðleikhússins - 10.02.1984, Qupperneq 23

Leikskrár Þjóðleikhússins - 10.02.1984, Qupperneq 23
ÞÓRHILDUR ÞORLEIFSDÓTTIR var nemandi í Listdansskóla Þjóðleikhússins og hefur komið fram í fjölda sýninga hér sem dansari í balletsýningum, leikritum, söngleikjum og óperum. Þá var hún tæp tvö ár nemandi í The Royal Ballet School í London. Þórhildur hefur kennt við Listdansskóla Þjóðleikhússins, Leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur, SÁL-skólann og Leiklistarskóla íslands. Hún var einn af stofnendum Leiksmiðjunnar og starfaði þar sem leikari og dansahöfundur og síðar sem leikari og leikstjóri hjá Leikfélagi Akureyrar. Þórhildur var einn af stofnendum Alþýðuleikhússins, starfaði mikið fyrir það á upphafsárunum og setti þar upp margar sýningar, t. d. Krummagull, Skollaleik og Heimil- isdrauga, alit leikrit eftir Böðvar Guðmundsson, og Blómarósir, eftir Ólaf Hauk Símonar- son, að ógleymdum Don Kíkóta, leikgerð James Saunders á skáldsögu Cervantesar. Fyrir Leikfélag Reykjavíkur setti hún upp Steldu bara milljarði, eftir Arrabal og Ótemjuna, eftir William Shakespeare. Þá hefur hún á síðari árum unnið fyrir (slensku óperuna og stjórnað þar uppfærslunum á Sígaunabaróninum, Litla sótaranum, eftir Britten og Töfraflautu Mozarts. Nú í vetur hefur uppfærsla hennar á söngleiknum My Fair Lady notið gífurlegra vinsælda hjá Leikfélagi Akureyrar. Hér í Þjóðleikhúsinu leikstýrði hún fyrst afmælissýningu hússins á Smalastúlkunni og útlögunum, eftir Sigurð Guðmundsson og Þorgeir Þorgeirs- son, síðan stjórnaði hún söngleiknum Gusti og Sveyk er því þriðja leikstjórnarverkefni hennar fyrir Þjóðleikhúsið.

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.