Nýja öldin - 01.12.1899, Side 35
Breytiþróunar-lögmátið.
179
þar hermi-gáían ein meðal annars, en hana hafa menn
og apar öðrum dýrum fremur.
Hins vegar kemur og aftur ýmislegt fram meðal
mentaðra þjóða, sem hindrar þroskun og framför. Dar-
win minnist á margt af þessu og reynir þannig að gera
grein fyrir orsökum til þess, að sumum þjóðum hefir
farið og fer hnignandi. Eitt dærni, sem hann nefnir, eru
Spánverjar. Meðal þeirra hefir trúvillinga-dómstóilinn
(inkvisitíónin) upprætt aila hugsandi menn, alia efunar-
menn; án efunar er engin fiamför hugsanleg. En aliir
efunar-menn eru fríhyggjendur, og þá brendi trúvillinga-
dómurinn. Auk þess upprætti þessi voða-stofnun andlega
atgervi, í hverja átt sem hún gekk. Hagsýni vitmaðurinn
og dugnaðarmaðurinn, sem safnaði auði með atorku og
vitsmunum, var sakaður um trúvillu og brendur, svo að
kyrkjan gæti hremt eigur hans undir sig. Kaþólska trúin
hefir og í öllum löndum haft þau áhrif, að rýrá andlega
atgervi þjóðanna. Allir gáfumenn, eða langílestir, gengu
í þjónustu kyrkjunnar, en við það dó sá ættleggur út,
því að klerkar þeirrar kyrkju mega ekki kvænast né auka
kyn sitt. Nú á síðari árum, löngu eftir að Darwin dó,
er mikið rætt um það, hvo latnesku eða rómönsku þjóð-
irnar séu að úrkynjast. Mundi hér ekki vera ein aðal
orsökin til þeirrar úrkynjunar?
Enginn maður, nqma' allra starblindustu kyrkju-nátt-
uglur, neitar því nú framar, að mannkyninu hafi einlægt
verið að fara fram svo iangt sem sögur ná yfir, og enda
miklu lengur má segja — svo lengi sem minjar tilveru
þess verða raktar á jörðunni. Allar þjóðir hafa fyrst
verið villi-þjóðir, hafa svo þroskast fram til þess sem nú
eru þær. Jafnvel þær þjóðir, sem nú eru lengst ástigs
komnar í ýmsri menningu, hafa fyrir fleiri eða færri öld-
um eða aidatugum verið villiþjóðir, lifað í fjölkvæni, haft