Freyja - 01.12.1903, Blaðsíða 31

Freyja - 01.12.1903, Blaðsíða 31
VT 5- FREYJA 113 fremur en meistarans, jafnvel þar sem hann hefir stjÓTnarhœfileika Napóleons. Meö sögunni ,,Anna Karenina“ hefir hann gefið heiminum eina hina ágætustu skáldsögu, sorglega að vísu og of hreinskilnislega sagða til þess að hún falfi meiri hluta ameríkanskr- ar alþýðu í geð, því hún fjallar svo voðalega blátt áfram um synd og ástarofsa að hina viðkvæmu siðfágun vorra tíma hryliir við. Henryk Sienkiewicz. SR exryk Sienkiewicz er pólskur að cett og Póllands mesta skáld sem nú er uppi. Hann má enn þá heita ungur maður og hef- ir þó þegar miklu afkastað. Frœgastur hefir hann orðið fyrir söguna ,,Quo Vadis“, sem fjallar um söguatriði frá stjórnarárum Nerós keisara og fyTstu árum kristninnar. Saga þessi er full af hrikamyndum, fráhrindandi og viðbjóðslegum í eðli sínu, en einmitt fyr- ir það, töfrandi og tryllandi. (Tveir kap. úr þessari sögu hafa komið út í Freyju sem sýn- ishorn af henni og er þá að finna í II. árg. 2. og 3. tölublaði og í III. árgangi, 4. og 5. tölublaði.) Þrjár næstu sögur hans eru samt í eðli sínu áhrifameiri og virkilegri, máske af því að þœf standa nœr oss og fjalla aðallega um merkustu söguatriði þjóðar hans. Sögur þessar eru ,, With fire and sword“ [Með eldi og sverði] ,,The Deluge“ (Syndaflóðið) og,,Pan Michael.“ Með hinn stór- felda efni.úð er í sögum þessum felst, fer hann eins meistaralega og Scott, Thackery, Balzac, Dickens og Tolstoy. Lyndiseinkunnir söguhetjanna eru ekki síður sérkennilegar en þær eru merkilegar, eiga óvíða sína líka. Meðal þeirra helstu mætti telja Zogloba— einn hinn einkennilegasta og stórskornasta karakter síðari tíma skáldsagna. I sögunni, ,, Without Dogma, “ lýsir hann samband- inu milli karls og konu svo óhjúpað og bert, að fólk, alið upp í enskum siðferðis vermireit hryllir við. Hann dregur myndir af hálfsiðuðu tímabili óútsegjanlegrar grimmdar og mannvonzku, víða hryllilegar og sumstaðar enda viðbjóðslegar. En sjálfur hefir hann heilbrigðar og göfugar siðferðis hugsjónir, svo þó að myndir hans séu berar, eru þær svo meistaralega dregnar, að slíkt leika ekki nema andleg stórmenni.

x

Freyja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.