Freyja - 01.12.1903, Blaðsíða 42
(24
FREYJA
VI. 5-
hón suöur til Minneapolis í fyrra sumar og aftur í haust til að full-
numa sig í þessari íþrótt eftir að hafa fyrir hans tiistílli snngiö solo
í St. Andrews kyrkjunni hér í sumar. Sigríöur Hördal hefir þegar
unniö sér mikiö orö bæði meöal innlends fólks og Isl. þeirra sem
vit hafa á söng.
Jónas Pálsson er fogddur á Noröur-Reykjum f Borgarfjarðar-
sýslu árið 1877. Árið 1894 fór hann austur á Eyrarbakka til að
nema söngfræði hjá Jóni Pálssyni sem talinn er einna bezt að sér
1' þeirri list á Islandi. Frá honum fékk hann vottorð, sem sýnir
hve mikið álit hann hafði á söngfrœðingshæfileikum hans. Hann
segir meðal annars: „Aldrei hefi ég kennt manni með eins góð-
um hœfileikum og Jónasi Pálssvni. “ Sumarið 1900 fluttist J. P.
vestur um haf, og þyrjaði strax á að nema Forte-piano spil hjá
próf. J. W, Matthews hér í bœnum og í júní 1902 tók hann próf í
P’orte-piano spili við Toronto College of Music upp í annan bekk
með ágœtis einkunn, og síðastliðið vor komst hann upp í 3. bekk
með hœstu annari einkunn.
Af þessu litla ágripi má sjá hversu framtíðarvonir Isl. mega
gjöra sér um J. P. sem listamann í þessari fögru íþrótt, og þegar
því er við bætt, að hann hetír ósigrandi viljaþrek og elju til að
halda áfram, er allt fengið.
Steingrímur K. Hall, kennari í söngfræði viÖ Gustavus Adol-
phus College í St. Peter. Hann er sonur Jónasar Hall á Gardar.
N. D. Hann útskrifaðist úr söngdeild Gust. Ad. College vorið 1899
(B. Mus.), og hlaut þá betri vitnisburð en nokkur, sem frá skólan-
um hefir útskrifast. Síðan hann útskrifaðist hefir hann ýmist kennt
söng og hljóðfœraslátt eða verið sjálfur við nám hjá be/.tu söng-
frœðingum í Minneapolis. P'astur kennari varð hann við Gust.
Ad. College fyrir ári síðan. (Eftir Vínlandi.)
Hjörtur Lárusson, sonur Lárusar Guðmundssonar í Duluth
hefir löngu getið sér frœgðarorð fyrir þekkingu í söngfrœði og mun
óhætt mega teljast með færustu Islendingum í þeirri list. Hann var
fyrir nokkrum árum formaður hornleikaraflokks hér í Wpg. Sökum
ókunnugleika og tímaleysis höfum vér ekki getað rakið menntaslóð
hans fyrir þetta blað. Vonum að geta bætt úr því síðar.
Borgunarlistinn komst ekki í þetta númer sökum rúmleysis.
Prentvillur: k
bl.85 4. cr. 3. 1. stcndur loft, lesist kvöld.
les morfla. Bl. 115 34.1. eftir leserft.
á 95. bl. 2.1. mærfla.
Gleöileg Jól I