Freyja - 01.08.1908, Page 5

Freyja - 01.08.1908, Page 5
XI. i. FREYJA 5. Massachussets, þar sem þessar ,,Antis“ eru upprunalega orön- ar til og lang flestar. “ Frú Ward þakkar Anti-kvenn hreifingunni ósigra þá er mál vort hefir beSiö á seinni árum hingað ogþangað í Banda- ríkjunum. En slíkt er hin mesta fjarstœöa. Eins og þegar hefirsj'mt verið, eru þessi Anti-íélög einungis til í4 ríkjum sambandsins og þar svo fámenn aö þau gœtu naumast haft merkjanleg áhrif á úrslit neintia mála í þeim ríkjum, en svo mikiö síður ná áhrif þeirra til annara ríkja þar sem þau eru ekki til. Það gefur líka að skilja að jafnréttismáliö vœri fyrir löngu unniö hefði það ekki átt voldugri óvini við að stríö en þessi Anti-félög, sem enn þá hafa ekki nema örfá ár aö baki. Konurnar sem í þeim félögum eru hefðu þá veriö búnar að fá jafnrétti viö karlmenn löngu áður en þeim datt í hug að mynda Anti-félög. Skáldið Whittier sagði fyrir nokkrum árum síöan, aö menn, sem sjálfir vœru andstoeðir jafnrétti kvenna, flögguðu ávalt með andmæli Æ«/‘/-kvennfrelsis kvenna, ekki vegna rök- semda þeirra. heldur sem handhœgt skálkaskjól til aö skýla sjálfum sér með, Eins og þetta var satt svo er það ennog engusíður. Örðugasti þröskuldur á vegi vorum eru aftur- halds hugsjónir mannanna—vanafesta, ásamt kappsamlegri mótspyrnu vín-verzlaranna ogannara hinna verstu afla í þjóö- félaginu. Frú How sannar með ótal dæmum sögu sína. Dæmin, tekin úr daglega lífinu umhverfis mann eru lifandi vitni, sem EKKI VERÐA hrakin. Staðhœfingar frú Ward lýsa annaðhvort frámunalegum þekkingarskorti á því inálefni sem umer að rœða eöa stökustu ósvífni. Hvort er, skiftir litlu. Ritstjórarnir sem gleypa við ritgjörðum hennar um þetta mál, eru annaðhvort, jafn ósvífn- ir eða jafn fáfróöir, nema hvoru tveggja sé. Allir sem fylla hóp A«*'-kvennfrelsis-sinna ljá barna- þrælkun, auðvaldssamtökum, vínverzlun og siðferðisspilling í allskonar myndum fylgi sitt, þvi það eru þessi öfl, sem óttast um tilveru sína ef konur fái jafnrétti.

x

Freyja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.