Helgarpósturinn - 18.07.1980, Side 19

Helgarpósturinn - 18.07.1980, Side 19
19 ^Melgarpásturinn- Föstudagur 18. júli 1980 BANDARÍSK KVIKMYNDA- HÁTÍÐ í REGNBOGANUM „Þetta er fyrst og fremst gert til að kynna tslendingum góða bandariska kvikmyndagerð, sem byggir mestan part á einstakl- ingsframtaki, vegna þess að þetta er fólk sem er utan við öll framleiðsluféiög, meira og minna, og verður að vinna slnar myndir fyrir eigiö fjármagn og styrki. Þetta er lika gert til að sýna að það er til annars konar bandarisk kvikmyndagerö en sú sem gengur hér i kvikmynda- húsunum og þarna er ýmislegt athyglisvertá feröinni, sem getur breytt þessari meðalhugmynd sem fólk hefur af Amerlku”, sagði Páll Baldvinsson i samtali viö Helgarpóstinn, en Páll hefur aðstoðab Sigurjón Sighvatsson við að skipuleggja bandarlska kvikmyndahátið sem haldin verður i Regnboganum og hefst 26. júll. A hátiöinni, sem stendur I viku verða sýndar 13 eöa 14 myndir sem gerðar eru á siðustu 2—3 ár- um. Þetta eru allt heimilda- myndir og má skipta þeim I tvo flokka, annars vegar tónlistar- legar myndir og hins vegar myndir um þjóðfélagsmál i bein- um og óbeinum skilningi. Sigurjón Sighvatsson hefur undanfariö stundað nám i kvik- myndagerö I Bandarlkjunum og kom hann með þessar myndir til landsins. Tveir gestir veröa á hátlðinni, og koma þeir báðir með myndir eftir sig. Annar þeirra Ben Shedd, fékk óskarsverölaun fyrir bestu stuttu heimildamynd- ina áriö 1979. Veröur myndin sú sýnd hér og heitir Flug kondórs- ins Gossamer. Hinn gesturinn mun sýna eftir sig stutta heimildamynd um nauðgun. Aðr- ar myndir með þjóðfélagslegu ivafi eru m.a. mynd um Banda- rikin á kreppuárunum, mynd frá fundi með Norman Mailer og Germaine Greer, þar sem rætt er um kvenfrelsismál, og siöast en ekki sist óskarsverölaunamyndin Harlan County U.S.A. eftir Barböru Kopple. Af tónlistarmyndum má nefna Bláa djöfulinn, sem er löng kvik- mynd um Count Basie, ennfrem- ur myndir um Duke Ellington og Elvin Jones. Það er ekki á hverjum degi, sem íslendingar fá aö sjá banda- riskar kvikmyndir sem standa utan við framleiðslukerfi heimsku risanna. Ættu kvik- myndaunnendur þvl ekki að láta sig vanta þessa viku i Regn- bogann. Kvintett - kuldalegt tafl Nýja bló: Kvintett (Quintet). Bandarisk Argerö 1979. Leik- stjdrn og handrit: Robert Alt- man. Aðalhlutverk: Paul New- man, Fernando Rey, Vittorio Gassman, Bibi Andersson. „Quintet” heitir nýleg mynd eftir Robert Altman og er nú sýnd I Nýja biói. Altman er einn þeirra kvikmyndastjóra sem á nýjan leik hafa boriö banda- riska kvikmyndagerð fram til vegs og virðingar. Kvikmynda- unnendur blða spenntir "eftir hverri nýrri mynd frá hans hendi, þvl það er aldrei að vita hvar hann ber niður næst og myndir hans eru á yfirborðinu að minnsta kosti býsna ólikar innbyrðis: til dæmis „McCabe and Mrs. Miller”, „M.A.S.H.”, „3 Women”, ,,A Wedding” og nú siðast „Quintet”. „Quintet” gerist þegar isöld er gengin 1 garö og við mann- kyninu blasir ekkert nema dauðinn. Selveiðimaöurinn Essex (Paul Newman) er á heimleið yfir snæviþaktar auðn- ir ásamt ungri komu sinni (Brigitte Fossey). Þegar þau koma til borgarinnar leita þau uppi bröður Essex. Borgin er óhrjálegur staður, þar sem fólk virðist eingöngu blöa dauðans og llkum er fleygt út á götu fyrir hundana. Eina dægrastytting fólks er aö tefla eins konar skák sem kallast „Quintet”. Leik- reglurnar I þessari skák eru aldrei útskýrðar, nema hvað leikurinn virðist ganga út á að þátttakendur reyni að drepa hver annan. Ekki er Essex fyrr kominn heim til bróður sins en fjöl- skyldan sest niður til aö spila (I gamni en ekki upp á llf og dauða) en Essex skreppur út I búð. A meðan er fjölskyldan Paul Newman og Bibi Anders- son I Kvintettinum — táknmáis- mynd Altmans. sprengd I loft upp, og þegar Ess- ex kemur aftur standa hundar inni f Ibúðinni og eru byrjaöir að bryðja jarðneskar leifar fjöls- kyldunnar. Essex foröar llki konu sinnar undan hundunum og hefst slðan Leikrit Örnólfs sýnt á Edinborgarhátíðinni Leikrit örnólfs Arna- sonar — Blessuð minning hefur að undanförnu veriö sýnt I kráar- leikhúsinu The Three Horse Shoes handayið að reyna að leysa gát- una og leita hefnda. Það væri synd að segja, að Altman slái á létta strengi I þessari mynd: Mannkynsins blður ekkert annaö en dauði og tortlming. Þaö eina sem gefur llfinu gildi er miskunnarlaus leikur, tafl um llf og dauða. Sumir segja að með þessari mynd sé Altman aö reyna að skilgreina afstöðu sina til listar- innar (Quintet = list) og noti um leið tækifæriö til aö ná sér niðri á gagnrýnendum. Grigor heitir maður I myndinni, sá eini sem ekki tekur virkan þátt I spilinu, þvl hann er dómari og þarf ekki að taka neina áhættu. Kannski er þetta rétt túlkun á táknmáli myndarinnar. Kannski ekki. Hvað sem réttum skilningi liður, þá er táknmál myndar- innarmargrætt, og I rauninni er það fremur táknmálið sem höfðartiláhorfandans heldur en persónumar, þær hreyfast eins og peð á skákboröi, og áhorf- andinn fær sjaldan innsýn i sál- arlíf þeirra eða tilfinningar. Fyrir þá sem hafa gaman af aö pæla i listrænum symbólum er þessi mynd sjálfsagt mikil veisla, en fyrir hina sem hafa meiri áhuga á manneskjum I öllum sfnum fjölbreytileika er ekki feitan gölt að flá hjá Alt- man aö þessu sinni. i London og ber þar titilinn Bless- ed Memory. Jill Brooke þýddi og leikstýrði en með eina hlutverk leiksins fer hin kunna breska leik- kona Joanna Dunham. Blessed Memory hefur fengiö góöar við- tökurog lofsamlega dóma, m.a. I Stage, blaði leikhúsfólks i Eng- landiog nú er afráðið að leikurinn verður tekinn til sýninga á Edin- borgarhátiðinni I Heroit Watt Downstairs — leikhúsinu dagana 24-30. ágúst nk. Blessuð minning er eintal konu sem kemur á bernskuheimili sitt eftir langa fjarveru viö lát móöur sinnar. Þaö var upphaflega skrifað sem prófverkefni fyrir Leiklistarskólann og þá leikið af Guönýju Helgadóttur en siðan flutt hér I útvarpi af Helgu Back- mann. Slðan hefur það veriö flutt I útvarpi víða um lönd, m.a. Nor- egi, Belgiu, Frakklandi og Ir- landi. Una Dóra Copley í Norræna húsinu Una Dóra Copley, dóttir þeirra A1 Copleys og Nlnu heitinnar Try ggvadóttur, myndlistar- manna heldur slna fyrstu einka- sýningu i haust og hefur hún valið Norræna húsiö sem vettvang fyr- ir þá sýningu. Una Dóra hefur áö- ur tekiö þátt I samsýningum vest- an hafs, þar sem hún er búsett ásamt fööur slnum. Fyrir fáein- um árum var hér haldin yfirlits- sýning á Kjarvalsstööum á verk- um A1 Copleys. FL UGKABARETT - TILBREYTING í RIGNINGUNNI „Það sem er bitastæðast I þessu verki er sú innsýn sem kkur er veitt I starf og aðbúnað flugfreyjunnar,” segir Gunnlaugur Asgeirsson um Flugkaparettinn. Júlileikhúsið: Flugkabarett eftir Brynju Benediktsdóttur, Erling Gislason og Þórunni Sig- urðardóttur. Leikstjóri: Brynja Benediktsdóttir. Leikmynd og búningar: Sigurjón Jóhannes- son. Tónlist: Karl Sighvatsson. Leikendur: Gisli Rúnar Jóns- son, Edda Þórarinsdóttir, Saga Jónsdóttir, Edda Björgvins- dóttir og Guölaug Marla Jóns- dóttir. Sýningarstaöur: Hótel Borg. Nú um hásumarið þegar þessi rigningar- og misturtlö er að gera mann enn einu sinni úrkula vonar um aö það komi sólrlkt sumar, þá veitir svo sannarlega ekki af þvi að létta svolltið uppá bæjarbraginn. Júlileikhúsið er einmitt lofsverö viðleitni I þá átt. Flugkabarett er ný uppfærsla á leikverkinu Flugleik sem sýndur var á vegum Þjóöleik- hússins I fyrra bæði I Englandi og I tjaldi á „Kaupstefnunni ’79”. Flugkabarett er nafn sem fer vel á þessari sýningu þvi það er á mörkunum aö hægt sé aö nefna verkiö leikrit svo losara- legt sem þaö er I byggingu, enda var þaö I upphafi nefnt leikur. Umgjörð þessarar sýningar er ferð með súperfllaþotunni Flóka Vilgeröarsyni til New York og heim aftur. A þessari leið gerist að sjálfsögðu ýmis- legt sem I frásögu er færandi. Það sem er bitastæðast I þessu verki er sú innsýn sem okkur er veitt I starf og aöbúnaö flugfreyjunnar. Þar er um að ræða heim sem fæstir fá aö sjá innanfrá heldur aöeins utanfrá þegar brosmildar og liprar flug- freyjur færa manni mat eöa drykk. Smáatriði eins og þegar allar flugreyjurnar setjast niöur og nudda fætur sina I grlð og erg segir meira en mörg orð. Já, vel á minnst orö. A köflum skildi ég ekki eitt einasta orð af samræö- um flugfreyjanna. Ef ég man rétt var sagt frá þvi þegar leik- ritið var fyrst sýnt að flugfreyj- ur hafi verið með I ráöum þegar leikurinn var saminn og þá einkum um það sérhæfða mál- far sem flugliöar nota. Ég ætla þvi alls ekki aö efast um aö þetta hrognamál sé til, en ég hefði feginn viljað hafa orða- lista I höndunum. Utanum þennan kjarna, starf flugfreyjunnar, er undiöýmiss konar spaugi um flugbransann. Það er, grtnast með Flugferða- félagiö heilaga og dótturfyrir- tæki þess I austurlöndum nær og fjær og vlðar. Við höfum einnig upphafinn flugstjóra sem stúss- ast hefur I ýmsu, ekki slst kven- ; fólki o.s.frv. Óborganlegust fundust mér atriöin sem sýna samskipti flugfreyjanna og farþeganna. Þar voru settar upp aðstæður sem maður hefur oft horft uppá og undrast þolinmæðina sem flugfreyjurnar búa yfir. Þessi sýning er mjög lifandi. Mikil hreyfing er á leikurunum um salinn og skapar þaö skemmtilegt andrúmsloft. Einnig eru tónlistog ljós notuð á fjölbreyttan hátt til aö auka á lif og hraöa sýningarinnar. Það sem mér fannst slst i þessari sýningu voru söngatriðin og þar held ég að ekki sé flutningnum um að kenna heldur þvi aö þaö efni var ekki nógu gott. Mér fannst leikhópurinn sem þarna sýndi, vinna mjög vel saman og skapa stilfæröan heildarsvip á þennan kabarett. Það er hægt að eiga ósköp notalega kvöldstund með þvl að setjast inná Borg og horfa á Flugkabarett og þó maður sé kannski ekki I keng af hlátri allan tlmann þá er oft stutt I hláturinn og öðru hvoru brýst hann fram á fullu. Þannig á góð skemmtun að vera. G.Ast. A u Leiklist .. eftir Gunnlaug Astgeirsson

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.