Helgarpósturinn - 02.01.1981, Page 7
Föstudagur 2. janúar 1981
7
JielgarpúsfurinrL
visu vel frá vandanum með
Reykjavikurbréfi Matthiasar, en
allir vita að dr. Gunnar og Morg-
unblaðið hafa löngum eldað grátt
silfur saman. A hinn bóginn þykir
mörgum flokkuririn hafa komist
siður frá þessu vandræðamáli.
Menn söknuðu afmælisgreinar
frá flokknum eða flokksforustu.
Að visu er sagt að Geir Hall-
grimsson hafi verið búinn að setja
saman afmælisgrein um dr.
Gunnar en hætt við birtingu á
henni. Það er e.t.v. ekki óeðlilegt i
ljösi fyrri samskipta þessara
tveggja manna en margir
undrast þó að formaður fram-
kvæmdastjórnar flokksins, Birgir
tsl. Gunnarssonskyldi ekki senda
Gunnari kveðju i nafni
flokksins....
# Stóriöjusinnar eru þess nú
fullvissir aö Alusuisse-bomba
Hjörleifs Guttormssonar muni
þegar allt kemur til alls reynast
eins og venjulegur áramótaflug-
eldur. Vitna þeir til álsamnings-
ins margumtalaöa og segja að
þar sé hvergi talað um að útflutn-
ingsverö á súráli frá Astraliu
skuli vera einhver viðmiöun
heldur standi skýrum stöfum aö
viðmiöunin skuli vera markaðs-
verð á súráli til hliðstæðra fyrir-
tækja i Evrópu. Ekkert hafi
komið fram um það að þar hafi
Alusuisse eitthvað óhreint i poka-
horninu og þar með ekki brotið
neina samninga heldur hafi Hjör-
leifur einungis sýnt fram á að það
séu Astraliumenn sem hlunnfari
sjálfa sig með slappri skatt-
lagningu á útflutta súrálið....
# Margir munu hafa sótt um
þær tvær stöður fréttamanna út-
varpsins sem auglýstar voru á
dögunum. Annars vegar var
ráðning fréttamanns i fullt starf
en hins vegar ráðning frétta-
manns til sex mánaða i stað ólafs
Sigurðssonar, sem ætlar að
skreppa yfir á sjónvarpið þennan
tima. Meðal umsækjenda um
fyrrnefndu stöðunaeru sögðvera
þau Erna Indriöadóttir, fyrrum
Morgun- og Helgarpóstur, og
Einar örn Stefánsson, áöur Þjóð-
viljamaöur og ihlaupaþulur hjá
útvarpinu. Aðrir umsækjendur
eru minna þekktir og reynslu-
minni. Um hina stöðuna mun ekki
hafa sótt fólk með neina starfs-
reynslu fyrir. Hjá fréttastofunni
er mestur áhugi fyrir aö fá þau
bæði til starfa, Ernu og Einar
örn....
9 Einhverrar uppstokkunar
mun vera að vænta á Timanum.
Haft er eftir einum ritstjóranna
að blaöið sé komiö eins langt
niöur og hugsanlegt sé og þá sé
unnt aö byrja að byggja upp á
nýjan leik. Mun eiga að gera ein-
hverjar breytingar á blaðinu
jafnframt þvi sém fjölga á mann-
skap, Meðal annars heyrist að
Halldór Valdimarsson, áður
blaðafulltrúi Upplýsingaþjónustu
Bandarikjanna, hafi verið ráðinn
á Timann, þar sem hann hefur
raunar áður starfað — auk fleiri
blaða...
# Verkfall bensinafgreiðslu-
manna kom eins og skollinn úr
sauðarleggnum, þvi að þeir eru i
Dagsbrún og flestir héldu að allir
Dagsbrúnarmenn hefðu verið inni
iOO.OOO
@ ' 50 -000
" 90.00°
) " A0.000
B " 5.000
)3 " ý.OOO
- - 500
gOO.OOO
450-000
480-000
A 980 .0°°
5 265-000
oR.368-000
„ýVt • r a&1/1 ro ' unph*8 e V
w'"eL'w (
^UeVbtva r a5evw sVOiv- L,
áttvu 5!vga ^5a-
■
i heildarsamningum ASt, sem
undirritaðir voru á dögunum. Svo
var sem sagt ekki. Bensinaf-
greiðslumenn hafa lengi verið
óánægðir meö sinn hlut innan
Dagsbrúnar. Telja þeir að Dags-
brúnarforustan hafi ótrautt beitt
þeim fyrir vagn sinn sem öflugu
verkfallsvopni en aö Guðmundur
Jaki hafi hins vegar veriö með
hugann allan við hafnarverka-
menn og skilið bensinafgreiðslu-
mennina eftir úti i kuldanum
þegar hagur hafnarverkamann-
anna var tryggður. Mun hafa
verið komin töluverð ólga i
bensinafgreiöslumennina og þeir
haft I hótunum um aö segja sig úr
Dagsbrún og ganga i Verslunar-
mannafélagið, þar sem þeir ættu
raunverulega fremur heima.
Dagsbrún vildi hins vegar ekki
missa þennan hóp og lét eftir
kröfum þeirra um sérsamninga.
# Þeir sem leggja sig eftir þvi
að sjá einstaka viöburði i stjórn-
málaheiminum ibreiðu samhengi
hafa þóst sjá náið samband milli
sifelldra breytinga á visun
Frakkans Gervasoni af landi
brott og þeirri bið eftir efnahags-
ráðstöfunum rikisstjórnarinnar,
sem mörgum þykir orðiin nokkuð
löng i annan endann. Eins og
mönnum er i fersku minni átti að
flytja Gervasoni úr landi með
valdi snemma i haust, eftir að
hann hafði setiö um hriö i varö-
haldi. Þeirri ákvöröun var breytt
á siðustu stundu. Þá var brott-
farardagurinn settur annan
desember. Einmitt á þeim tima
var búist við, að rikisstjórnin
gerði opinberar efnahagsráðstaf-
anir sinar þann fyrsta desember.
Það varö þó ekki, og brottför
Gervasoni frestað aftur um
óákveðinn tima. Rétt fyrir jól lét
rikisstjórnin i þaö skina, aö efna-
hagsráðstafanir væru væntan-
legar þá og þegar, liklega milli
jóla og nýárs. Jafnframt var 28.
desember ákveöinn nýr brott-
farardagur Gervasoni. En efna-
hagsráöstafanirnar létu á sér
standa, þótt enn væru þær að sögn
væntanlegar fyrir áramót. Brott-
för Gervasoni var enn frestað, aö
þessu sinni til 30. desember. En
hvert er svo samhengiö? Ef
marka má lausafregnir af gangi
samninga innan rikisstjórn-
arinnar um efnahagsráöstafanir
hefur gengiö erfiðlega að fá
Alþýðubandalagiö til aö sam-
þykkja viss atriði þeirra. Þvi
þykir mönnum einsýnt, að þeir
Alþýöubandalagsmenn eigi að fá
að setja sig i stjórnarandstööu-
stellingar vegna Gervasonimáls-
ins bæði til aö leiöa athygli kjós-
enda sinna frá aðild flokksins að
hæpnum efnahagsráðstöfunum
og sýna hörku og pólitiskan kjark
i mikilvægu máli til að eftirgjöf
þeirra i efnahagsmálunum veröi
ekki eins áberandi. Þá er einnig
liklegt að mati fróðra manna, að
Alþýðubandalagið hafi hreinlega
i hyggju að gera hrossakaup á
Gervasoni og ýmsum að þeirra
mati vafasömum efnahagsúr-
ræöum, til þess að koma i veg
fyrir að stjórnin springi....
# Sjónvarpsmenn telja nú
brýnt atriði til að bæta dagskrá
sina að fá hækkaðar þær verð-
miðanir sem settar hafa verið
varðandi kaup á erlendu sjón-
varpsefni. Telja sjónvarpsmenn
að þetta verð sem sjónvarpiö
getur boðiö fyrir erlent efni sé nú
orðiö það lágt að litiö annaö en
undirmálsefni fáist, gamalt og
þunnt. Það er fjármálasstjórnar
stofnunarinnar aö taka afstöðu
til hækkunar þess taxta sem nú
gildir varðandi kaup á erlendu út-
varpsefni....
® Nýjar tillögur um opnunar-
tima verslana hafa legiö fyrir
borgarstjórn aö undanförnu og
var búist við að þær myndu ná
fram að ganga. Hins vegar
geröist þaö þegar borgarfulltrúar
fóru aö rýna nánar i tillögurnar
að i ljós kom að opnunartimi
þeirra mun styttast i reynd frá
þvi sem nú er um nokkra klukku-
tima á viku hverri. Þykir þess
vegna tvisýnt aö þessar tillögur
muni hljóta samþykki eftir allt
saman....