Helgarpósturinn - 08.05.1981, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 08.05.1981, Blaðsíða 24
holrjFtrpnc;fl irinn Föstudagur 8. maí 1981 Hvað hefðum við gert án bílsins í landi sem okkar? Við íslendingar erum sennilega sú þjóð í Evrópu sem mest er háð bifreiðum til fólks- og vöruflutninga vegna þess hvað landið okkarer stórt og strjálbýlt. Hver og einn getur séð fyrir sér það ástand sem skapaðist ef bílsins nyti ekki við. Þetta mikilvægasamgöngutæki hefur aukið frelsi og gjörbreytt skilyrðum til búsetu og vinnu í nútíma þjóðfélagi. Tjundi hver starfandi íslendingur, eða u.þ.b. 10 þúsund manns hafa atvinnu sem beint eða óbeint tengist bifreiðinni. Beinar tekjur ríkisins af bifreiðum og akstri landsmanna í formi skatta og tolla hafa verið um 1/5 af heildartekjum þess á undanförnum árum. Hlutur bensínbifreiða í heildarnotkun olíuvara á íslandi er óverulegur eða u.þ.b. 16% af eldsneytisnotkun landsmanna. Bílar og varahlutir hátollaðir Oft lítur svo út sem meðferð hins opinbera á málefnum bifreiðaeigenda sé bæði gerræðis- leg og handahófskennd og að enginn opinber aðili hafi fulla yfirsýn yfirafleiðingaraf ýmsum aðgerðum, álögum og kvöðum sem bifreiða- eigendur verða að þola. Á íslandi eru há opinber gjöld og álögur á bifreiðum sem fara beint í ríkiskassann. Bíl- greinasambandið telur það vera í hrópandi ósamræmi við það mikilvæga hlutverk sem bifreiðin gegnir við að halda landinu i byggð. Þess vegna er kominn tími til að meta fram- tíðarhorfur bílsins og spyrja: HVAÐ GERUM VIÐ ÁN BÍLSINS í LANDI SEM OKKAR? BÍLGREINASAM BAN DIÐ • Senn nálgast biskupskosning- ar og er mikiö makkaö bakviö tjöldin I þvl sambandi. Eins og Helgarpósturinn sagöi frá á sinum tlma, eru þaö þeir ólafur Skiilason Pétur Sigurgeirssonog Arngrlmur Jónsson sem berjast um embættið. Nú viröast hins vegar nýjar blikur á lofti. Allt bendir til þess aö séra Arngrlmur dragi sig til baka og stuönings- menn hans fari yfir á séra Pétur. Sagt er aö Arngrlmur sjálfur sé ekkert of áfjáöur í embættiö og þvi geti hann vel fallist á, aö hans menn snúist á sveif meö Pétri. Stefnir I haröa og tvísýna baráttu milli Péturs og Ölafs, en ólafur mun hafa á aö skipa vel skipu- lögöu liöi stuöningsmanna, en liö Péturs öllu lausara í reipunum. Helgarpósturinn hefur og sann- frétt, aö fjölskylda Sigurbjörns Einarssonar biskups, hyggist styöja viö bak Péturs Sigurgeirs- sonar... • Viö heyrum aö sem næst sé frágengið aö I kringum hvlta- sunnuna komi hingaö breska hljómsveitin Any Trouble, ný- bylgjurokkarar I anda Elvis Costello, sem m.a. hefur brugöiö fyrir I Skonrokksþætti sjónvarps- ins, ef viö munum rétt. Mun vera ætlunin ef af veröur aö Nokkur vandræöi komi þá fram á Borg- inni, haldi tónleika I Laugardals- höllinni meö þekktum Isl. hljóm- sveitum og skemmti slöan eitt- hvaö I nágrenninu... • Fariöer núaö blða meö nokk- urri óþreyju eftir þvl aö send veröi út dagskrá landsfundar Sjálfstæöisflokksins næsta haust, þvl aö um leið og þaö gerist er bó ist viö aö kosningabarátta hefjist fyrir alvöru innan hverfafélaga og kjördæmisráöa um lands- fundarfulltrúa. Stööugar vanga- velturhalda áfram um formanns- kjöriö, eins og vænta má. Nafn ólafs B. Thors sem formanns- efnis kemur upp aftur og aftur og vitaö er aö Gunnar Thoroddsen mun honum ekki afhuga en setur jafnframt Geirsfylkinguna I tals- veröa kllpu, þvl aö hún mun eiga mjög erfitt um vik aö ganga gegn Ólafi Þaö er sagt um ólaf aö hann njóti þess aö standa utan þing- flokksins I baráttunni um for- mannsstólinn, þvi aö innan þing- flokksins sé hver einasti maöur meira og minna brenndur á fingr- um eftir innanflokksátökin og jafnframt er minnt á að Ólafur hafi á slnum tima komiö inn I pólitlkina i eins konar málamiöl- unarhlutverki og þeirri stööu hafi hann haldiö allar götur slöan. Ólafur hefur hinsvegar sjálfur hingaö til hafnaö algjörlega öllum þrýstingi um aö taka aö sér for- mennskuna og I störfum sinum innan borgarstjórnar siöasta kjörtlmabil gefiö ótvlrætt til kynna aö hann ætli aö helga Al<* mennum tryggjngum alla krafta sina. En þrýstingurinn á hann heldur áfram... • í framhaldi af þessu. Sjálf- stæöismenn flestir eru sammála um þaö aö staöa Geirs Hallgrims-' sonar sem formanns flokksins áfram hafi sjaldan veriö erfiöari e n einmitt nú, og þaö myndi duga aö bjóöa nánast hvaöa mann sem er, sæmilega frambærilegan og óskaddaðan af innanflokkserjum, til aö sigra hann. Fróöir telja aö þaö muni veröa lokaúrræöi Geirs til aö halda völdum aö bjóöa AI- bert Guömundssyni varafor- mennskuna I flokknum. Albert er hins vegar óútreiknanlegur. Há- værar raddir hafa veriö uppi um þaö aö Albert stefni nú fyrst og fremst aö borgarstjóraembættinu I Reykjavlk og þótt Davfö Odds- son hafi veriö valinn talsmaöur sjálfstæöismanna I Reykjavlk þetta kjörtlmabil meöan Albert stóö I miöjum forsetaslagnum, þá geti hann ekki hugsað sér Davíð I borgarstjórastólnum vegna Ar- mannsfellsmálsins foröum daga. Albertsmenn segja lika hverjum sem heyra vilja aö enda þótt Davlð- sé nú I oddvitasæti I Reykjavlk, þá muni þaö veröa nýr borgarstjórnarflokkur að loknu prófkjöri I Reykjavik sem velji næsta borgarstjóraefni flokksins fyrir borgarstjórnar- kosningarnar á næsta ári. Þar muni mestu skipta hversu ofar- lega menn veröa I prófkjörinu og siöast trjónaöi Albert I efsta sæti... • Töluvert er nú um þaö rætt aö Birgir Thorlacius, ráöuneytis- stjóri I menntamálaráöuneytinu, fari senn aö láta af störfum, enda er hann búinn aö sitja þar lengi og ýmsum hefur þótt hann nokkuð heimaríkur á siöustu árum. Ýms- ir hafa verið nefndir sem eftir- menn hans en nú heyrist æ oftar nefnt nafn Kristjáns J. Gunnars- sonar, fræöslustjóra I Reykjavlk, sem hefur I gegnum árin veriö dyggur stuöningsmaöur Gunnars Thoroddsens enda vilja menn meina aö þessi hugmynd sé einmitt ættuö úr forsætisráöu- neytinu... • Samvinnuferöir munu nú vera aö ihuga aö kæra til rannsóknarlögreglu rlkisins nokkur lesendabréf I Dagblaöinu út af Sterling-samningi Sam- vinnuferöa, og frammistööu for- stjóra Samvinnuferöa, Eysteins Helgasonar, I viöureign hans við forsvarsmann Flugleiöa I Frétta- spegli sjónvarpsins ekki alls fyrir löngu. Bréf þessi voru nokkuö napuryrt og svo vildi til aö þeir Samvinnuferöamenn komust I eitt bréfiö. Nafns og heimilis- fangs var þar getiö en óskaö eftir aö þvl væri haldiö leyndu. Viö eft- irgrennslan kom hins vegar I Ijós aö heimilisfang bréfritara var ekki til og nafniö þar af leiöandi falsaö. Samvinnuferöamenn telja sig hafa rökstuddan grun um aö bréfiö ásamt fleiri bréfum I sama dúr séu ættuö innan úr feröaskrif- stofubransanum sjálfum og vilja fá rannsóknarlögregluna til aö upplýsa hvaöa keppinautar þeirra standi fyrir atvinnurógi af þessu tagi... • Islandsmeistarar Vtkings I handknattleik munu hafa komiö saman eftir aö fréttist aö Hilmar Björnsson heföi veriö ráöinn landsliösþjálfari á nýjan leik og samþykkt aö gefa ekki kost á sér I landsliöiö meöan Hilmar stjórn- aöi liöinu. Einhverjar væringar munu hafa veriö meö Hilmari og Vfkingunum I kringum B-keppn- ina I Frakklandi og er greinilega ekki gróiö um heilt... • Þaö er aldeilis hamagangur- inn hjá stuttbuxnastrákunum I Heimdalli þessa dagana. Allar linur rauöglóandi vegna smöl- unar á aöalfund félagsins, sem fram fer d sunnudag. Búist er við þvl að smalamönnum takist aö særa kringum 500 manns á fund- inn og skiptir ekki máli hvort menn eru flokksbundnir eður ei, aöeins aö menn kjósi rétt. Þaö eru tveir sem berjast um formanns- sætiö,einsog viö sögöum frá slö- ast, þeir Ami Sigfússon blaöa- maöur og Björn Hermannsson flugvirki. Arni studdur af Geirs- klfkunni I flokknum og standa Kjartan Gunnarsson fram- kvæmdastjóri Sjálfstæöisflokks- ins og Hannes Hólmsteinn G issurarson fast aö baki honum I baráttunni. Fylking Björns samanstendur hins vegar af þeim óánægðu I flokknum, sem vilja formannsskipti og einnig að þeir sjálfir komist til æðri metoröa. Þar eru menn eins og Jón Magnússon, Pétur Rafnsson og Júlíus Hafstein.Þykirþessi kosn- ing dálítill prófsteinn á þaö, hve flokksapparatiö i Valhöll er áhrifamikiö I flokknum I dag og þætti það talsverður rassskellur fyrir Geirsliðiö ef Arni nær ekki kosningu... • I þessu sambandi. Hannes Hólmsteinn Gissurarson hafði Samband við Helgarpóstinn og óskaði eftir þvf að gefnu tilefni að fram kæmi að hann væri ekki heimildarmaöur fyrir klausu sem birtist hér I sföasta blaði um frámangreind formannsátök I Heimdalli. Helgarpósturinn getur fyrir sitt leyti staöfest þaö.... • Viö höfum áöur minnst nokkrum sinnum á þaö peninga- flóð sem streymir innan iþrótta- hreyfingarinnar hér á landi, þá sérstaklega boltaiþróttanna. Nú siöast sannfréttum við, að meist- araflokkur Vals I fótbolta hefði tekið þá ákvöröun að hver og einn leikmaður Valsliösins i knatt- spyrnunni fái, 500 krónur fyrir hvern unninn leik. Þetta þýðir 5500 kr- á allt liöiö og þá á þjálfarinn eftir aö fá sitt. Fleiri lið I 1. deidlinni i knatt- spyrnu munu einnig hafa þenn- an háttinn á og ætla aö umbuna leikmönnum sinum fyrir unna sigra I sumar...... • Viö heyrum einnig, aö þær breytingar hafi oröiö hjá veit- ingahúsinu vinsæla, Torfunni viö Lækjargötu, aö annar stofnend- anna, Kolbrún Jóhanncsdóttir, sé gengin Ut úr fyrirtækinu og örn Baldursson oröinn einn eigandi. Kolbrún mun hins vegar hafa sótt um og fengiö leyfi fyrir þvi aö reka kaffihús sem á aö risa i gamla bakarlishúsinu i sömu sögufrægu húslengjunni og Torf- an er i.... • Heyrst hefur aö samantekin ráö séu nú meöal fólks úr flokk- unum þremur sem standa aö vinstra samstarfinu I Reykjavik aö stofna fjöldahreyfingu til and- ófs gegn Rauðavatnsbyggöinni svonefndu. Meöal liösmanna þessarar hreyfingar er fólk úr hestamannafélögum, golfklúbb- um og sumarbústaöa w eigendur á þessu svæði. Rk Vilja þessi öfl fyrir L/

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.