Helgarpósturinn - 12.06.1981, Blaðsíða 14
Marineruð
Tbein á
útigrillið
Stöðugt fleiri hafa fjárfest i
litigrilli. Allir vita sem smakkað
hafa, hversu góðan mat hægt er
að matreiða i grillinu. ómar
Hallsson hóteistjóri, kokkur og
margt fleira er sérfræðingur I
þessari eldunaraðferð og sér
hann þvi um helgarréttinn að
þessu sinni: marineruð T bone-
steik. Þessi uppskrift er fyrir 6.
í réttinn þarf:
6 T-bein
3 bollar matarolia
2 mtsk. lemon pipar
1 bolli ttímatsósa
1 tsk. paprika
1 mtsk. dry barbecue
1 mtsk. all around krydd
1 tsk. pepper mix.
— öllu blandað i rúmgóðan
bakka, siðan er T bone steikin
lögð i löginn, og lögurinn látinn
þekja vel steikurnar. Kjötið er
látið liggja i sólarhring i leg-
inum, þvi þannig fær kjötið
bestu marineringuna.
— Kveikið upp i grillinu og
dreifið hvftlauksdufti yfir kolin
um leið og kolin eru búin að ná
hita til steikingar. Siðan er
steikin tekin upp úr leginum og
lögð á grillið og látin steikjast
þar til blóðið vætlar upp og þá
snúið við og steikt eins á hinni
hliðinni. Barbecue stísa er borin
Ómar Hallsson
á báðar hliðar fyrir steikingu.
— Með þessum réttier gottað
hafa bakaðar kartöflur með
sourcream og dálitilli steinselju
blandað saman við.
— 1 hrásalatið með þessum
rétti er best að hafa salatblöð,
tómata og agúrkur og smátt
saxaðan lauk. Allt er blandað
saman I skál og franskri salat-
sósu er hellt yfir.
— Með þessum réttier tilvalið
að drekka rauðvin og mælir
Ómar meö annað hvort
„Chatenauf du Pape” eða „St.
Emellion”.
Skálafell
Sumarbúðir i Skálafelli
1 sumar munu K.R.-ingar verða
með sumarbúðir I Skálafelli. Ura-
sjónarmaður búðanna er Þorgeir
Hjaltason og sagði hann að þetta
yrði f fyrsta sinn þar sem börn-
unum yrði boðið upp á fjölbreytta
útivist á meðan á dvölinni stæði.
Námskeiðin vera 3 og standa í 12
daga hvert um sig. Þessar
sumarbúðir eru ætlaðar börnum
frá 7 til 12 ára aldurs.
— Skálinn er mjög vel búinn og
landið þarna i kring hið ákjósan-
legasta fyrir útivist og iþróttir.
Til staðar verða sérfrseðingar
sem leiðbeina i knattspyrnu, há-
stökki, langstökki og spjótkasti
svo eitthvað sé nefnt. Farið
verður i reiðtúra frá Laxnesi að
Triaiafossi og víðar, sundlauga-
feröirað Varmá og skoðunarferð-
ir margvíslegar verða einnig á
dagskrá m.a. til Þingvalla.
— A kvöldin verður margt til
gamans gert bæði kvöldvökur og
biósýningar.
Hvert námskeið mun kosta um
það bil 1200 kr og er allt innifalið i
þeirri tölu bæði rútuferðir og
matur. Innritun og allar upplýs-
ingar um starfsemina fást hjá
Þorgeiri i sima 34790 og vill Þor-
geir taka það fram að þótt K.R.
ingar sjái um þetta námskeið þá
er það að sjálfsögðu öllum opið
sama i hvaða flokk þeir standa.
— EG
Hótel
Valhöll
á Þing-
völlum
Stutt að fara,
margt um að vera
t sumar mun hótel Valhöll á
ÞingvöIIum verða með ýmislegt
bæði gamalt og nýtt á boðstólnum
fyrir gesti sina. Fyrir utan mini
golfið og bátaleiguna er ráðgert
að koma upp sundlaug og gufu-
baði fyrir hótelgestina.
Útigrillið vinsæla verður með
svipuðu sniði og i fyrra en það er
staðsett i yfirbyggðum garðskála
þar sem ljúffengar veitingar eru
á boðstólnum og vinsælir
skemmtikraftar skemmta.
Ómar Hallsson hótelstjóri er i
en verður auglýst von bráðar.
Það er semsagt góður vegur til
Þingvalla, góður matur i Valhöll,
og þvi þægilegur staður til af-
slöppunar fyrir alla, sem vilja
komast út úr bænum um helgar.
— EG
Hótel Valhöll á Þingvöllum
þann mund að útbúa sérstaka
„hótelpakka” Valhallar en það er
sérstakt sumartilboð sem hótel-
gestir geta nýtt sér. 1 honum felst
bæði ódýr matur, og gisting á
hótel Valhöll. Verðið á þessum
pakka er enn ekki komið á hreint
ALLIR
ÚT AÐ
SYNDA
En hvað kosta
sundföt?
Það sem af er sumri hefur verið
hliðskaparveður hér i borg. Ailir
sem tækifæri hafa til, spóka sig
um I góða veðrinu og reyna að fá
sól á kroppinn. Um helgar og á
fridögum allra vinnandi manna
eru sundstaðirnir yfirfullir af
fólki. En hvað kostar að fá sér
sundföt? Helgarpósturinn hringdi
i nokkrar verslanir og spurðist
fyrir.
— 1 versluninni Útilif fást bik-
ini, sundbolir og sundskýlur.
Verðið á sundfötunum er mis-
munandi eftir tegund og fram-
leiðandavörunnar.eðaalltfrá 149
kr. til 212.
— Ódýrustu sundbolirnir kosta
149 kr, bikini er á 170 kr. og ódýr-
ustu sundskýlurnar eru á 75 kr. I
versluninni Galleri fást sundbolir
á kr. 140 og bikini á kr. 100. Nýja
linan i sundfötum er að hafa
sundbolina vel kringda i baki og
um læri og bikini á að vera eins
litið og hægt er, og eru þau nátt-
úrlega hugsuð sem sólbaðsföt
frekar en föt til sundiðkana. I
Domus á Laugavegi fást sund-
skýlur á kr. 89, bikini á kr. 215 og
sundbolir á 335. Afgreiðslustúlkan
þar sagði að kven-baðfötin væri
frekar fyrir eldri konur þ.e.a.s.
interRent
car rental
Bílaleiga Akuréyrar
Akureyri
TfiVGCVABRAu T 14
S.2171S ?3S1S
Reykjavik
SKEIFAN 9
S.31615 36915
Mesta úrvallð. besta þlónustan.
VI6 útvegum yöur afslátt
L á bilalelgubilum erlendls. i
Fjölbreytt úrval af sundfötum Ljósmyndir Valdis óskarsdóttir
eru þau aðeins efnismeiri en t.d.
fötin sem fást i Galleri.
A þessum þrem stöðum er mikfl
sala á baðfötum og ætti að finnast
þarna eitthvað fyrir alla. Nú svo
ætti lika að vera i lagi að dusta
rykið af þeim sem fyrir eru i fata-
skápnum, þvi aðalatriðið er auð-
vitað að fá sól og vitamin i kropp-
inn.
— EG.
Siðari hluti vis-
unnar kominn fram
Þann 29. mai sl. birtist I
Helgarpóstinum sérstæð visa,
en hún er svona:
4 8 5 og 7
14 12 og 9
11 13 1 og 2
18 6 og 10.
Lýst var eftir seinni part vis-
unnar þ.e.a.s. þeim tölum er á
vanta til að fylla upp i tölurnar
frá einum upp i tuttugu.
Kristinn Magnússon, Birki-
mel 10 hefur orðið við þeirri á-
skorun Helgarpóstsins og ort
það sem á vantaði.
Visa Kristins hljóðar þannig:
Teljum 16 17 hér
Svoddan 3 skal hýsa
20 19 15 fer
fallega með hér visa.
Um leið og við þökkum
Kristni kærlega fyrir, bjóðum
viö honum að koma og ná i
ljóðapris Helgarpóstsins.
-EG.