Helgarpósturinn - 10.07.1981, Blaðsíða 3

Helgarpósturinn - 10.07.1981, Blaðsíða 3
—ha/rjrirpncrh irinn FÖS'uda9ur 10- iúi' ^si 3 Lögfræðingar: „Meirí fjölgun gæti ieitt til atvinnuleysis” segir Gunnar G. Schram „Þaö er ekki hægt að tala um siðustu árin hefur þaö gengið atvinnuieysi meöal lögfræöinga, nokkuð stirðlega og það getur en þaö er komið að mörkunum. tekið menn 1—2 misseri. Meiri fjölgun gæti leitt til at- Lögfræðingar starfa flestir á vinnuleysis,” sagði Gunnar G. þrem sviðum þjóðfélagsins: Schram, formaður Lögfræðinga- sjálfstætt sem lögmenn, i dóms- félags islands. kerfinu og við stjórnsýslustörf. En þar að auki geta þeir farið i Undanfarin ár hafa útskrifast mörg önnur störf, svo ég held að 20—25 lögfræðingar á ári og fram með sömu fjölgun áfram sé at- að þessu hafa þeir allir getað vinnuleysi ekki yfirvofandi fengið vinnu við sitt hæfi. En vandamál.” Byggingamenn: „Ættu að geta haldið sinu hlutfalli” segir Benedikt Daviðsson ,,Ef byggt væri samkvæmt spá Húsnæöismálastofnunar um þá þörf sem talin er verða næstu 10 árin ætti byggingariðnaðurinn að geta haldið sama hlutfalli i mann- afla og nú er”, sagöi Benedikt Daviðsson, formaður Sambands byggingamanna. „Trúlega eru fáar starfs- greinar sem eru sveiflukenndari og viðkvæmari fyrir efnahags- þróun og sveiflum i öðrum starfs- greinum. Góð vertið hefur til dæmis jákvæð áhrif i byggingar- iðnaði. En eins og nú horfir erum við langt frá þvi að ná þvi marki sem stefnt er að i spánni fyrir næstu tiu árin og ef við gerum stórt átak á þvi timabili ætti að veröa næg atvinna fyrir bygg- ingamenn”. Benedikt sagði aö erfitt væri að segja fyrir um atvinnuhorfur i hverri grein fyrir sig. Til dæmis vissu menn ekki hvað væri aö gerast i fjölbrautaskólanum, þvi þaðan væri ekkert samband haft við markaðinn og þvi litiB vitaö hvernig straumurinn væri. Eins sagði hann að ekki væri al- gilt að menn færu til starfa i þeirri atvinnugrein, sem þeir hefðu menntað sig til og kæmu þar ýmsar ástæður til. Sem dæmi nefndi hann að undanfarin ár hafa 50 nemendur lokið sveins- prófi i trésmiði á ári, en i Tré- smiðafélaginu heföi aöeins fjölgaö um 10—12 árlega. En Benedikt kvaðst ekki sjá fram á neina breytingu i bygg- ingaiðngreinum, nema ef vera kynni i múrverki, þar sem heldur hefði dregist saman siðustu árin. mannafla i Bandarikjunum, svo dæmi sé tekið. Hins vegar er stór hluti þjónustunnar hér opinber þjónusta og það er spurning hve hún getur vaxið mikið. Eins má búast við að aukin tölvuvæðing muni draga úr fjölgun starfs- manna.” Þá er aðeins iðnaðurinn eftir og samkvæmt spá Framkvæmda- stofnunar þurfa að skapast 2—3 þúsund ný störf i iðnaði á næstu 10 árum. En samkvæmt þvi sem Davið Scheving Thorsteinsson, formaður Félags islenskra iðn- rekenda segir i viðtali hér á eftir er ekkert sem bendir til að iðn- aðurinn geti tekið við þeim mann- afla. Offjölgun menntamanna En þá skulum við snúa okkur aftur að horfunum á atvinnu fyrir m e n n t a f ó 1 k i ð . Flestir viðmælenda okkar voru sammála um að hagur þeirra sem legðu fyrir sig háskólanám væri heldur óöruggari en hinna, sem fara i aðra starfsmenntun. Þannig sagði Ingvar Asmunds- son skólastjóri Iðnskólans, að hann vissi ekki um nein vandamál við að koma nemend- um I starfsþjálfun, nema þá helst i hársnyrtigreinunum, þó aðeins hefði borið á þvi i útvarps- og sjónvarpsvirkjun. Þar hefðu þó flestir komist að eftir smábið- tima. 1 byggingagreinum væri orðið vart við ýmis merki um samdrátt, en ennþá komast allir að sem vilja. Best sagði hann að gengi að útvega nemendum i málmiðnaðargreinunum vinnu. Tæknigreinar eiga i vaxandi mæli upp á pallborðið hjá ungu fólki, sem marka má meðal annars af þvi að frá þvi Tækni- skóli Islands tók til starfa 1964 hefur nemendum fjölgað úr 60 i 400. Þessar greinar eiga lika tvi- mælalaust framtið fyrir sér. Meira að segja meðal meina- tækna hefur enn ekki borið á minnkandi atvinnumöguleikum, þrátt fyrir mikla aðstókn að þeirri grein. Hjúkrunarfræði er lika ein þeirra greina framhaldsnáms, sem enn er mjög vænleg varðandi atvinnumöguleika. Öðru máli gegnir hins vegar um margar greinar háskólanáms. Eins og áður sagði hefur háskóla- nemum fjölgað um liðlega helming siðustu 10 árin. Mest hef- ur fjölgunin orðið i læknadeild, viðskiptadeild, verkfræði- og raunvisindadeiid og félags- visindadeild. I heimspekideild hefur stúdentum fjölgað um nær helming. Eins og nú stendur er nóg að gera fyrir verkfræðinga, arki- tekta, viðskiptafræðinga , dýralækna, bókasafnsfræðinga og presta, svo dæmi séu tekin. Hvað siðar verður er ekki gott að segja. Nemendur i arkitektúr eru nú jafnmargir og allir þeir sem starfandi eru i landinu, eða um 100 talsins. Og viðskiptafræði- nemum hefur fjölgað úr 218 i 512 á 10 árum. I ýmsum öðrum greinum, svo sem meðal sálfræðinga, lög- fræðinga, lyfjafræðinga og lækna, var þegar fyrir 5 árum talin hætta á offjölgun, Þá er farið að þrengjast um hjá málakennurum á höfuðborgarsvæöinu. öll þessi dæmi benda til aö menntafólk verði i sivaxandi mæli að leita til útlanda til að fá vinnu, ef áfram heldur sem horfir og kannski kemur sú staða upp innan fárra ára að við flytjum út menntamenn i stórum stil en flytjum i staðinn inn ómenntaö verkafólk til fiskvinnslustarfa. Yfirmenn á skipum: Næg störf á fiskiskipaflotanum „Það er alltaf vöntun á lærðum vélstjórum á fiskiskiptafiotann, en hins vegar er erfitt að fá stöður á flutningaskipum. Þar stækka skipin stöðugt og stöðunum fækkar,” sagði Ingólfur Stefánsson hjá Farmanna- og fiskimannasambandi tslands. Ingólfur sagði.ennþá væru ár- lega veittar hundruð undanþága fyrir ólærða vélstjóra á fiski- skipaflotann. Skipstjóra vantaði hins vegar ekki, en skortur væri á stýri- mönnum á skipum undir 100 lest- um. Aðsókn að Vélskólanum er nokkuð góð, en að Stýrimanna- skólanum er hún brokkgegn. Nánasta framtið er sem sagt fremur góð fyrir þá sem stefna að þvi að verða yfirmenn á íslensk- um skipum. ÓTRÚLEGT - EN SATT... TÖLVUKERFI MEÐ FORRITUM Á 55.000 KR. hentar 90% íslenskra Fjárhagsbókhald Viðskiptamannabókhald Launabókhald ■ Tollvörugeymsla íslenskt letur Alíslenskt letur jafnt á skermi sem prentara. (Þ, Æ, Ö, Ð, Á, É, Ö, Ú, Ý) Ritvélagæði á útskrift. Tölvukennsla Kennsla á tölvur og forrit er veitt ókeypis þeim viðskiptamönnum, sem kaupa heilt tölvukerfi með forritum. Forritunarþjónusta Tölvubúðin tekur að sér að gera forrit til sérstakra nota fyrir við- skiptavini sína, einnig að aðlaga fyrirliggjandi forrit að þörfum hvers oq eins. Leiðbeiningar Bækur og tímarit, sem leiðbeina um val á tölvubúnaði og nýjungar á markaðnum, eru jafnan fyrir- liggjandi. Tölvubúðin Laugavegi 20A. commodore TÖLVUKERFIÐ NÚ EINNIG FÁANLEGT MED CP/M

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.