Helgarpósturinn - 10.07.1981, Blaðsíða 24
24
Föstudaour io, joií 1981 helgarpósfurinn
Elsa, Ingibjörg, Helena, Gunnhildur og Kristin.
Skáldsögurnar jfgj^segja að„ungi
læknsrinn ”eigi að hafa frumkvæðið
spjallað við fimm hressar stelpur
Hvernig er kynlifsf ræðslu i
gagnfræðaskólum háttað á þvi
herrans ári 1981? Ætliþað sé enn-
þá eins aumlegt og það var á min-
um unglingsárum? I>ótt ekki séu
nema tæp 10 ár siðan ég var í 6.
bekk var einungis farið iauslega
yfir bls. 82 i Heilsufræðinni og
kennarinn passaði sig vel i þeim
tima á að nota fræðiorð sem við
krakkarnir höfðum ekki fyllilega
á hreinu.
A böllunum passaði maður sig
svo á þvi að vera nú örugglega
ekkert að reyna við strákana,
beið kurteis þar til manni var
boðið upp. Stundum var maður
heppinn, stundum óheppinn.
En skyldi þetta ekki hafa
breyst? Ég hitti fimrn hressar
stelpur á háskólalóðinni, þar sem
þær voru að vinna við garðyrkju-
störf, þær, Gunnhildi Sveins-
dóttur, 14ára, Kristinu Jóhannes-
dóttur, 15 ára, Helenu Sveins-
dóttur, Klára, EIsu Ævarsdóttur,
14 ára og Ingibjörgu Garðars-
dóttur, 14 ára og spurði þær úti
þessa sálma.
Viljum standa á okkar
rétti.
— Er eitthvað öðruvisi að tala
við stelpur en stráka?
— Já, maður talar allt öðru visi
við þá. Það er ekki eins náið sam-
band. Þetta fer h'ka eftir þvi hve
vel maður þekkir þá. Það kemur
auðvitað stundum fyrir að maður
finnur engan mun á þvi.
— A þetta að vera svona?
FÖSTUDAG
KVÖLD í
Jli húsinu
OPIÐ til
kl. 22 if
Matvörumarkaður
Raftækjadeild
Við '*el8ar'erdina; f!
sföðvaríá n 2°% Úfbo rqunðSlUklör‘
°mar « H eru »«• r detfdir
— Það er kannski ekki hægt að
segja að þettaeigi að vera svona,
en það er heldur ekki hægt að
breyta þessu i dag eða á morgun.
— Reynið þið við stráka á böll-
um?
— Sumar gera það kannski.
Stelpur vilja oft að strákar eigi
frumkvæðið. Kannski er það
vegna þess að við erum of stoltar,
þolum ekki að það sé sagt nei við
okkur. — Svo erum við stimpl-
aðar inni einhverjar skáldsögur
sem segja að ,,ungi læknirinn”
eigi að hafa frumkvæðið. Svo er
það lika oft þannig að ef sumar
stelpur reyna við stráka, þykir
hinum stelpunum þær vera vit-
lausar.
— Eruð þið kvenréttindasinn-
aðar?
— Auðvitað erum við það þött
við séum ekki endilega rauð-
sokkar. Við höfum svo litið kynnt
okkur málefni rauðsokka. Við er-
um ekkert öfgasinnaðar. En að
sjálfsögðu viljum við standa á
okkar rétti og látum ekkert troða
á okkur.
Örvggi
— Hvað ætlið þið að gera i
framtíðinni?
— Ætli við reynum ekki að ná
okkur i hiifuna. Kannski hættir
maður þá. En stúdentspröfið
gefur okkur kost á þvi að halda
áfram ef við nennum. 1 rauninni
er stúdentspröfið bara áfangi, þvi
maður fær engin réttindi með það
pröf. Sumar stelpur fara bara að
vinna i búð eftir það.
— Þið ætlið kannski að giftast?
— Vonandi. Ef maður gengur
út. Annars fær maður kannski
engu þar um ráðið.
— En af hverju viljið þið gift-
ast?
— Bara, til þess að hafa góðan
félagsskap og vera á öruggum
stað. Það er ekki þar með sagt að
við ætlum að vera heima og hugsa
um börnin.
Betra en að fá kúlu á
magann.
— Já, þið ætlið kannski að eign-
ast börn?
— Ekki fyrr en við getum
hugsað um þau sjálfar. Þegar við
höfum fengið einhverja menntun.
En maður fær kannski engu um
það ráðið.
— Það eru nú til getnaðar-
varnir.
— Já, já, en það var nú ein á
pillunni sem eignaðist tvibura.
— Ená hvaða aldri f innst ykkur
æskiflegt að fólk færi að sofa
saman?
— Þegar fólk langar til þess.
Það getur verið á hvaða aldri sem
er.
— Munduð þið þora að fara til
læknis og biðja um hettuna eða
pilluna?
— Já, það væri betra en aö fá
kúlu á magann.
— En finnst ykkur ekki lika að
strákarnir eigi alveg eins að
ganga með smokka I vasanum?
— Jú, jú enda hljóta þeir lika
að hafa áhyggjur eins og stelp-
urnar. Það er nú það mikið búið
að tala um kynlifið í skólanum.
— Jæja??
Pæld’iði gott innlegg
— G og K: Það var mjög góð
fræðsla i Æfingadeild kennara-
skólans, sérstaklega eftir að leik-
ritið Pæld’iðí var sýnt.
I: Pæld’Iði var nú bannað i
Hagaskóla sem við krakkarnir
mótmælum ákaft og fórum i
setuverkfall, þó það bæri nú eng-
ann árangur. Ég fór þvi á eigin
vegum á leikritið.
E: Það var mikiðrættum þessi
mál eftir að við sáum leikritið i
ölduselsskóla.
H: Ég var i sjötta bekk i Voga-
skóla, og við talin of ung til að sjá
leikritið.
— Fenguð þið þá enga fræðslu
um þessi mál?
H: Það var farið lauslega yfir
bls. 82, en kaflinn var ekki tekinn
til prófs.
— En leikritið Pæld’iði virðist
hafa veriö nauðsynlegt og gagn-
legt?
— Já, það var mjög gaman að
horfa á leikritið, og það var
sniðugt á köflum. Þó komu inni
það nokkuð væmnir kaflar. En
þetta var örugglega mjög gott
fyrir þá sem hafa verið feimnir
við að tala opinskátt um kynlifið.
Leikritið kom af stað miklum um-
ræðum i skólanum og kennar-
arnir voru fúsir til að ræða um
þessi mál þegar búið var að
brjóta isinn. — segja stelpurnar
að lokum. Bið að heilsa og þakka
fyrir spjallið!
Fatnaður
Allar aörar deildir
opnar til kl. 7
Byggingavörur —
Teppi —
Húsgögn
0
Jón Loftsson hf,
Hringbraut 121, sími 10600.
POSTUROG SIMI
Stuðarinn er ekki alvitur,
alsjáandi og alheyrandi frekar
en aðrir. Þó að hann viti
margt uin áhugamál og
vandamál ungs fólks, þá veit
liann ekki allt. Þess vegna ætl-
ar hann að opna póst- og síma-
þjónustu. Póstþjónustu fyrir
þá sem eru pennaglaðir, sima-
þjónustu fyrir þá sem eru
pennalatir.
Stuðarinn mun sitja við
sima 81866 á fimmtudögum
frá kl. 1-3 eftir hádegi og utan-
áskriftin er.
STUÐARÍNN
c/o Helgarpósturinn
Siöumúla 11
105 Reykiavik.