Helgarpósturinn - 22.01.1982, Side 11
neigarposTurmn Föstudagur 22. janúar 1982
J J
íunrn
Þörf fyrir
svona staðv
segir Vernharður
Linnet
um væntanlegan
djassklúbb í
Djúpinu
„Við höfum lengi verið að leita
að húsnæði undir djassklúbb-
starfsemi. Þar sem þcir i Djúpinu
eru að hætta mcð galleriið gerðu
þeir okkur tilboð um að sjá þar
um rekstur á djassklúbbi. Við
féllumst á það, ef þeir stækkuðu
húsnæðið og endurbættu, þannig
að hægt yrði að fá leyfi til að hafa
opið til eitt eða tvö, þvi það hefur
verið einn helsti ókosturinn, að
þcgar loksins allt er komið i gang
klukkan hálf tólf, cr lokað. Þann-
ig að tónlistin stoppar alltaf i há-
marki.”
Þetta sagði Vernharður Linnet,
formaður Jazzvakningar, þegar
hann var spurður um væntanleg-
an djassklúbb i Djúpinu við
Hafnarstræti.
Vernharður sagði, að eigendur
húsnæðisins myndu sjá um hina
likamlegu hlið rekstursins, þ.e.
veitingarnar, en Jazzvakning sæi
um hljómsveitirnar og hina and-
legu hlið. Enauk djassins, verður
boðið upp á blues.
„Við stefnum að þvi að opna
-fyrstu helgina i mars og að fá ein-
hvern stórblásara frá swing-
timanum til að koma hingað, en
það eru ekki komnir neinir
samningar enn”, sagði Vernharð-
ur ennfremur. Klúbburinn verður
svo opinn fimmtudaga, föstudaga
og laugardaga til aö byrja með.
— Er grundvöllur fyrir að reka
djassklúbb með þetta tiðum tón-
leikum?
,,D jassklúbburinn fúnkerar
lika sem restaurasjón, eins og
alls staðar i heiminum. Þetta er
litill staður, tekur aldreimeira en
hundrað manns, ef allt ér troðið,
þannig að ég sé ekki, að það sé of
mikið. Hér hafa verið tvö, þrjú
kvöld i viku.”
— Hvernig verður tónlistinni
háttað?
„Við munum reyna að hafa
fjölbreytni þessi þrjú kvöld, að
það sé ekki sama hljómsveitin,
nemaþað séu erlendir gestir. Við
munum fá sem flestar islenskar
hljómsveitir til að spila, og þá að
þeir æfi upp prógrömm, en komi
ekki bara og djammi. Auk þess
munum við fá erlenda sólista.
Þarna kemur grundvöllur fyrir
erlenda einleikara að spila með
Islendingum. Við höfum ekki haft
neinn stað til að bjóða þeim
uppá”, og sagði Vernharður, að
reynt yrði að fá erlenda spilara
öðru hvoru.
Breytingarnar, sem gerðar
verða á húsnæðinu eru þær, að
það verður stækkað aðeins, og ef
vel gengur er möguleiki á að
stækka meira si"ðar. Þá verður
komið fyrir tunnuborðum og
bekkjum meðfram veggjum.
Gerður verður bar og smiðað litið
svið fyrir hljóðfæraleikarana.
„Færeyingar geta rekið djass-
klúbb um helgar i Þórshöfn, af
hver ju skyldum við ekki geta rek-
ið slikan hér? Það hefur synt sig
undanfarið, að það er þörf fyrir
svona stað”, sagði Vernharður
Linnet að lokum.
ÞORR<NN:
Einar og Jóhann við þorratrogin góðu og gömlu.
Naust með tuttugu teg-
undir af þorramat
„Þetta er í 24. skiptið sem
Naustið er með þorramat, og við
byrjum á föstudagskvöld”, sagði
Einar Árnason, yfirmatreiðslu-
maður á Nausti,i samtali við
Helgarpóstinn, en hann hefur haft
allan veg og vanda að undirbún-
ingi þorrans á þeim bæ, ásamt
Jóhanni Bragasyni matreiðslu-
manni.
Þeir Naustsmenn bjóða upp á
tuttugu tegundir af þorramat, og
má þar finna hangikjöt, hrúts-
punga, súran hval, lundabagga og
annan klassiskan þorramat. Þá
eru þeir með nýjungar, eins og
selshreifa, laufabrauð og reyktan
magál.
Eins og áður segir hefst þorrinn
hjá þeim á föstudag, og næstu
fjórar vikur geta Reykvikingar
snætt þorramatinn bæði i hádegi
og á kvöldin. Hver skammtur
kostar 215 krónur og geta menn
fengið sér eins oft á diskinn og
þeir vilja og hafa magarými til.
Undirbúningur fyrir þorrann
tekur sinn tima og var byrjað að
verka matinn i lok september.
„Við erum með sérstaka þorra-
geymslu og við erum liklega þeir
einu, sem berum matinn fram i
sérstökum þorratrogum, sem eru
frá þeim tima er viö byrjuðum á
þessu”, sagði Einar.
Þeir félagar, Einar og Johann,
sögðu, að þorramaturinn væri
alltaf jafn vinsæll, og reiknuðu
þeir með um 1500 manns að þessu
sinni. Gestir væru á öllum aldri,
en mikið væri um að ungt fólk
kæmi til að smakka.
Hér á eftir fara myndir af nokkrum tegundum þorramatar, og sagt er stuttlega frá þvi hvernig hann er
unninn.
Hrútspungar: Þeir eru hreinsaðir vel og soðnir i
saltvatni. Siðan eru þeir settir i hlaup og pressaðir
undir fargi. Þá eru þeir settir i sérstaka
Naustsýru og látnir súrna i fjóra mánuði.
Selshreifar: Þeir eru sviðnir og skafnir, siöan
soðnir og látnir liggja i súr.
Bringukollar: Kjöt af framparti, soðið og sett i
súr.
Sviðatappir: Þær eru sviðnar og skafnar, soðnar
og lagðar i súr.
Nýi djassklúbburinn ætlar að fá erlenda sólista til að lcika með landan-
um. Hér sjáum viö John Tchicai er hann lék i Djúpinu i fyrra.
Þegar öil matvælin hafa legið i súri i tvo mánuði er skipt á þeim, en sýran er úr mysu og með sérstökum
bætiefnum frá Naustsmönnum.